05. tbl. 100. árg. 2014

Umræða og fréttir

Heimilislæknaþingið 2014 – auglýsing

Egilsstöðum 3.-4. október

Heimilislæknaþing Félags íslenskra heimilislækna verður haldið á Hótel Héraði dagana 3.-4. október 2014. Skráning er á thorunn@islandsfundir.is fyrir 5. september.

Eins og á fyrri þingum verða kynntar rannsóknir, rannsóknaráætlanir og þróunarverkefni í erindum og veggspjöldum. Útdráttum (sbr leiðbeiningar að neðan) skal skila til Emils L. Sigurðssonar á emilsig@hi.is og er skilafrestur til 25. ágúst næstkomandi. Ágripin verða birt í sérstöku riti þingsins.

Útdráttur á rannsókn skal rýmast á einu A4-blaði með hefðbundnum spássíum og hægri jöfnun. Texti getur að jafnaði verið um 300- 350 orð.

Letur: Times New Roman.

Leturstærð 16 í fyrirsögn og 14 í megintexta.

Nota skal lágstafi í fyrirsögn.

Á eftir fyrirsögn koma nöfn höfunda.

Undirstrikið nafn flytjanda/aðalhöfundar ásamt vinnustað hans og tölvupóstfangi. 

Ef um hefðbundna megindlega rannsókn er að ræða skal megintexta skipt í Bakgrunnur; Tilgangur; Efniviður og aðferðir; Niðurstöður og Ályktanir. Framsetning eigindlegra (kvalitative) rannsókna getur verið frjálslegra, en kaflaskipti æskileg. Að jafnaði er ekki gert ráð fyrir heimildalista í útdrætti.

Á þinginu verður jafnframt umfjöllun á vegum gæðaþróunarnefndar.

Þinginu lýkur með aðalfundi Félags íslenskra heimilislækna laugardaginn 4. október.

Nánari dagskrá verður send í tölvupósti til félagsmanna þegar nær dregur.


Fyrir hönd undirbúningsnefndar

Jón Steinar og Salome



Þetta vefsvæði byggir á Eplica