04. tbl. 100. árg. 2014

Umræða og fréttir

Fimm ljóð frá Ferdinand



Ferdinand Jónsson
geðlæknir í London er höfundur þessara ljóða en hann gaf út ljóðabókina Innsævi árið 2013 sem fjallað var um í júníblaðinu.

Ferdinand kom á ritstjórnarskrifstofu Læknablaðsins núna í janúarbyrjun og af-henti þessi fimm glóðvolgu ljóð, blaðinu og lesendum þess til gagns og gamans. Ljóðin bera höfundi sínum fagurt vitni. Hann fer um rammíslenskan efniviðinn lærðum læknishöndum, meitlar og tálgar og eftir stendur eitt orð í hverri línu, hreinn tregi, sterkur lífsvilji, auðmjúk samlíðan og svo einn fugl.


LÍKN

muggan

hylur

landið

hvíta



í afkima

orða

leitar

lækna-

jurta



allra

meina

smyrslum

smurður



þú

 

 

NÁTTBÓL

í  gömlu

túni

marglitra

grasa

náttból

þér



vallgresið

varðveitir

hugsun

þína



heim

 

 

GJAFIR

á þoku-

heiði

huldufólks

lyfja

grasið

grær

 

gefur

þér

 

mjöðinn

eina

af askinum

 

eilífa

 

aftur

 

 

GALDUR

magna

seið

úr fléttum

fornaldar

fjöllin

heima

gefa



ægistyrk

útveðra



í urðinni

okkur

gangan

léttist



GRJÓT

klappar

gráu

grjóti

steindepill

syngur


í endalausri

urð



yfir

birtir



okkar

fugl

vakir



von-

glaður



Þetta vefsvæði byggir á Eplica