04. tbl. 100. árg. 2014

Umræða og fréttir

Samningslausir læknar í þrjú ár 

- Steinn Jónsson lætur af störfum sem formaður Læknafélags Reykjavíkur á aðalfundi í vor

Nú er ljóst að töluverð umskipti verða í stjórn Læknafélags Reykjavíkur á aðalfundi sem haldinn verður 20. maí næstkomandi. Þá láta bæði formaður og varaformaður af störfum, auk tveggja meðstjórnenda. Læknablaðið hitti formanninn, Stein Jónsson, að máli og innti hann eftir því hvernig formannstíð hans hefði verið.

„Ég tók við formennsku í félaginu vorið 2010 svo ég er búinn að gegna embættinu í fjögur ár. Þetta voru um margt erfiðir tímar, heilbrigðiskerfið í landinu sætti miklum niðurskurði og uppsögnum starfsfólks sem bitnuðu hvað harðast á Landspítalanum. Auk þess voru sérfræðilæknar án samnings við Sjúkratryggingar ríkisins í þrjú ár af þessum fjórum sem er mjög óvenjulegt, reyndar einsdæmi,“ sagði Steinn.


Steinn Jónsson á skrifstofu sinni á E7 á gamla Borgarspítalanum. Mynd: Védís.

Tvö meginverkefni

Eins og lesendur Læknablaðsins vita er Læknafélag Reykjavíkur stærsta aðildarfélag Læknafélags Íslands með um 70% stéttarinnar innan sinna vébanda. Steinn segir að helstu verkefni félagsins séu tvö. „Annars vegar semur félagið við Sjúkratryggingar ríkisins um kjör sjálfstætt starfandi sérfræðilækna og hins vegar stendur það vörð um vöxt og viðgang heilbrigðisþjónustunnar í landinu. Ég hef reynt að vekja athygli á því ástandi sem ríkt hefur með greinaskrifum í Læknablaðið og aðra fjölmiðla.

Samningamálin voru í sérstæðu fari lengst af minni formennskutíð eins og ég nefndi. Samningurinn við SR rann út snemma árs 2011 og við það hefðu að öllu óbreyttu fallið niður allar endurgreiðslur hins opinbera á kostnaði sjúklinga við þjónustu sérfræðilækna. Þáverandi stjórnvöld komu þó í veg fyrir að neyðarástand skapaðist með því að setja reglugerð sem tryggði endurgreiðslur á sama einingarverði og gamli samningurinn kvað á um.

En lög gera ráð fyrir því að samningur sé í gildi. Því var gengið í það að semja við SR síðastliðið haust og nýr samningur tók gildi um síðustu áramót. Það urðu því engin veruleg áföll þótt vitaskuld væri þetta bagalegt,“ sagði Steinn.

 

Árshátíð og safnamál

Auk þessara tveggja meginþátta í starfsemi LR leggur félagið drjúgan skerf til félagsstarfa lækna og ekki bara í Reykjavík. Árshátíðir félagsins sem haldnar eru í lok Læknadaga í janúar eru rómaðar og þar lætur enginn íslenskur læknir sig vanta, eigi hann heimangengt. Annað mál sem hefur verið á borði stjórnar undanfarin ár er uppbygging Lækningaminjasafn sem hefur gengið upp og ofan.

„LÍ og LR lögðu hvort um sig 25 milljónir króna í uppbyggingu lækningaminjasafns á Seltjarnarnesi og gerðu samning um safnið við bæjarstjórn Seltjarnarness og menntamálaráðuneytið árið 2006. Við höfum reynt að stuðla að því að þetta mál fái framgang en Seltjarnarnesbær sagði samningnum upp í fyrra og skilaði safninu til ráðuneytisins,“ segir Steinn. Nú er alls óvíst hver framtíðin verður en hugmyndir hafa verið uppi um að skrifstofur læknasamtakanna verði fluttar í safnhúsið.

En hvernig líst Steini á framtíð félagsins?

„Nú er nýbúið að gera samning við SR til næstu 5 ára. Samkvæmt honum verður forminu á samningagerðinni breytt þannig að hér eftir mun hver læknir semja fyrir sig. Ég hef ekki trú á að það breyti miklu fyrir kjör lækna en það boðar væntanlega að kjarabarátta félagsins er komin á lygnari sjó, í bili að minnsta kosti. Það þarf þó áfram að halda vöku sinni enda mikilvægt að standa vörð um hagsmuni félagsmanna. Þeirri baráttu lýkur aldrei,“ segir Steinn Jónsson.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica