07/08. tbl. 96.árg. 2010

Umræða og fréttir

Lífeyrisgreiðslur stórlega skertar, - Tryggvi Ásmundsson gagnrýnir ákvarðanir Almenna lífeyrissjóðsins


u05-fig1Læknar sem fá greiddan lífeyri úr Almenna lífeyrissjóðnum hafa fundið fyrir umtalsverðri skerðingu á greiðslum á undanförnu ári. Sjóðurinn tapaði verulegu fé í bankahruninu og ákvarðanir stjórnar sjóðsins um ráðstöfun fjármuna eru harðlega gagnrýndar í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis (Aðdragandi og orsakir falls íslensku bankanna 2008 og tengdir atburðir. Rannsóknarnefnd Alþingis 2010; 4: 131-4.

Tryggvi Ásmundsson læknir hefur gagnrýnt ákvarðanir sjóðsins og kveðst byggja gagnrýni sína á umsögn skýrslu rannsóknarnefndarinnar. „Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins tók stöðu með krónunni í aðdraganda bankahrunsins og tapaði 5,4 milljörðum króna á þeim gjörningi. Rannsóknarnefndin leitaði álits virts erlends sérfræðings á þessum gjörðum og hann gagnrýnir þær harðlega, notar m.a. orðið brjálæði („the fund is mad“) í umsögn sinni. Rökin fyrir þessum gjörningi voru að verja þyrfti erlendar eignir sjóðsins fyrir gengisbreytingum. Höfundar skýrslunnar telja þetta gert í von um skjótfenginn gróða, með öðrum orðum græðgi. Það þarf væntanlega ekki að deila um að slíkt á ekki við þegar menn eru að ávaxta lífeyri. Lífeyrissjóðir eru engir vogunarsjóðir. Stjórnendur sjóðsins hafa mótmælt þessari gagnrýni, telja hana ósanngjarna. Ég vildi samt gjarnan sjá þá rökstyðja þau mótmæli betur. Vissulega féllu margir aðrir lífeyrissjóðir í sömu gryfju, þetta var hálfgerð hjarðhegðun. En mér finnst það ekki nægileg réttlæting að aðrir hafi verið jafn vitlausir og það má finna lífeyrissjóði sem létu þetta ógert. Þetta tap er ein af fleiri ástæðum þess að skerða þurfti lífeyrisgreiðslur um 10% í fyrra, 12% núna 1. júní og það er spáð 5% lækkun á næsta ári.“

Tryggvi lagði til á aðalfundi Almenna lífeyrissjóðsins í vor að laun stjórnarmanna yrðu lækkuð jafnt og lífeyririnn eða um 20%. Sú tillaga var felld, en fékk þó rúm 42% atkvæða. „Ég er eftir á ekkert leiður yfir að þessi tillaga var felld. Ég held þrátt fyrir allt að stjórn sjóðsins og stjórnendur séu hæft fólk þótt þeim yrðu á þessi mistök. En þau þurfa að endurheimta traust. Það er ekki sanngjarnt að krefjast af þeim að sigla sjóðnum óskertum í gegnum þennan ólgusjó. Það sem ég nefndi hér áðan er kannski það eina sem mér finnst með fullri sanngirni hægt að gagnrýna þau fyrir, en það eru samt engir smámunir. Sá sem tapar fyrir manni peningum, þótt á því séu að hluta til eðlilegar skýringar, glatar trausti. Það traust þarf þetta fólk að endurvinna. Það að neyða uppá þau launaskerðingu hjálpar ekkert til að endurheimta slíkt traust. Ef þau afsöluðu sér þessum 20% eða létu þau ganga til líknarmála gæti það hins vegar verið einn liður til þeirrar endurheimtu.“

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica