02. tbl. 96. árg. 2010

Umræða og fréttir

Athugasemd

Í síðasta tölublaði Læknablaðsins (1/2010)  er viðtal við Björn Zoëga, forstjóra  Landspítalans, þar sem hann meðal annars fjallar um sparnað í heilbrigðiskerfinu og starfsemi sjúkrahúsanna í kringum Reykjavík. Þar kemur hann inn á svokallaðar „hagkvæmnisathuganir“ og er þar væntanlega að vitna í skýrslu starfshóps heilbrigðisráðuneytisins um sjúkrahúsþjónustuna á suðvesturhorninu og segir að þar komi glögglega í ljós hversu óhagkvæmt núverandi fyrirkomulag sé.

Þar er fyrst til að taka að mjög margt er við þessa skýrslu heilbrigðisráðuneytisins að athuga og of langt mál að koma með þær athugasemdir hér enda hefur ráðuneytið fengið þær til sín.

Rekstur Sjúkrahússins og heilsugæslunnar á Akranesi (áður SHA) hefur verið til fyrirmyndar um áraraðir. Starfsmenn hafa undanfarið tekið á sig umtalsverða kjaraskerðingu til að ekki þyrfti að segja upp fólki. Það er erfitt að skilja að hagkvæmt geti verið að leggja niður slíka stofnun og flytja alla starfsemi til Landspítala sem virðist ofhlaðinn verkefnum og glímir við mikinn hallarekstur. Fyrir örfáum dögum var frétt í Morgunblaðinu um að spítalinn væri kominn nærri öryggismörkum hvað mönnun áhrærir; samt segist yfirstjórn Landspítala geta tekið við flestum verkefnum kragasjúkrahúsanna með litlum tilkostnaði.

Ekki er efi í okkar huga að Landspítalinn er „endastöð“ þegar upp koma mjög alvarleg tilfelli. En fæst tilfelli eru alvarleg og margt má gera og er gert á minni stofnunum. Ummæli forstjóra Landspítala um að bakvaktir á sjúkrahúsunum í kringum Reykjavík veiti falskt öryggi og séu einungis til þess að hækka laun eru ómerk og ber að vísa til föðurhúsanna. Það er naumast stórmannlegt að gera lítið úr vinnu annarra. Við trúum því að læknar og  annað heilbrigðisstarfsfólk um allt land vinni jafnvel fyrir kaupinu sínu og starfsfólk Landspítalans.

Landspítalinn er sjúkrahús allra landsmanna og það er öllum í hag að góð samvinna sé við sjúkrastofnanir um allt land. Sparnaðar- og hagræðingarkröfur á hendur Landspítala mega ekki verða til þess að vegið sé með óréttmætum hætti að öðrum stofnunum. Landspítalinn verður líka að hagræða; það er ekki traustvekjandi að ætla einhverjum öðrum að spara fyrir sig.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica