04. tbl 93. árg. 2007

Umræða og fréttir

Golfið er fyrir alla aldurshópa - viðtal við Ásgerði Sverrisdóttur

Ásgerður Sverrisdóttir krabbameinslæknir er í hópi fremstu golfkvenna landsins. Hún var Íslandsmeistari tvö ár í röð, 1983 og 1984 og var í kvennalandsliðinu í golfi frá 1981 fram til ársins 1995. Hún útskrifaðist úr læknadeild HÍ árið 1989 og hélt síðan til sérnáms í Svíþjóð og fluttist heim til Íslands árið 2004. Hún hefur ekki tekið þátt í stóru móti undanfarin ár en segist þó litlu hafa gleymt og er í dag með sömu forgjöf og árið sem hún varð Íslandsmeistari.

„Eftir að við fluttum til Svíþjóðar þá breyttist þetta talsvert. Það var minna svigrúm til æfinga og þátttöku í mótum og einnig komu börn til sögunnar þannig að ýmislegt kom í veg fyrir fulla þátttöku í golfinu. Golf er tímafrek íþrótt og við bjuggum í Stokkhólmi og erfitt að komast að á golfvöllum nema í fríum, vinnudagurinn var lengri og birtan á kvöldin endist ekki jafnlengi og hér heima.“

Ásgerður bendir á að hér á Íslandi sé einstaklega gott tækifæri til að stunda golfíþróttina, „ ... þegar veður og árstíðir leyfa, en það er ekki víða í veröldinni jafn auðvelt og fljótlegt að komast út á golfvöll einsog hér heima. Það setur reyndar svolítið strik í reikninginn að ekki er hægt að spila úti yfir veturinn en á sumrin er birtutíminn svo langur og hægt að fara eldsnemma á morgnana eða á kvöldin með litlum fyrirvara.“

Hvenær byrjaðirðu að spila golf?

„Ég byrjaði að dingla golfkylfum 7-8 ára gömul því foreldrar mínir voru í Golfklúbbi Ness á Seltjarnarnesi og 12 ára gömul krafðist ég þess að fá að taka þátt í meistaramóti klúbbsins.“

Var þetta ekki dálítið óvenjulegt á þessum tíma?

„Jú, þetta þótti svolítið öðruvísi íþrótt og var nærri óþekkt. Það var helst miðaldra fólk sem spilaði golf og klúbburinn á Nesinu var með svolítið sérstöku yfirbragði. Golfklúbbur Reykjavíkur, sem ég gerðist síðar meðlimur í, var stærri og með öflugt unglingastarf, en það má reyndar rifja upp að hann var upphaflega stofnaður af læknum. Það voru mjög fáir krakkar að spila golf á þessum tíma og enn færri stelpur. Ég spilaði bara með strákunum og vandist því að þurfa að keppa við þá líka.“

Og árangurinn lét ekki á sér standa. Íslandsmeistari kvenna tvö ár í röð.

„Það er reyndar skrýtið hvað þetta gekk vel því á þessum sama tíma var ég á fyrsta og öðru ári í læknisfræðinni sem voru býsna strembin. En ég var auðvitað búin að vera spila mjög mikið golf í mörg ár á undan, hafði verið í landsliðinu og var að berjast um toppsæti á mótum.“

Hverjar voru þínir helstu sam- og mótherjar?

„Á mínu reki voru Steinunn Sæmundsdóttir, Sólveig Þorsteinsdóttur, Þórdís Geirsdóttir og Kristín Þorvaldsdóttir en nokkru eldri og reyndari voru Jóhanna Ingólfsdóttir og Kristín Pálsdóttir. Síðan koma Karen Sævarsdóttir og Ragnhildur Sigurðardóttir til sögunnar og hafa báðar verið Íslandsmeistarar margsinnis. Ólöf María, sem er atvinnukona á Evrópumótaröðinni núna, var að byrja í lok míns keppnisferils. Við vorum allar að keppa hver við aðra og æfðum líka saman í landsliðinu, þannig að þetta var mjög skemmtilegur tími.“

Ásgerður segir ekki hægt að bera saman golfið eins og það var stundað á áttunda áratugnum og hvernig það er núna.

„Það er eiginlega alveg sama hvar litið er á. Allar aðstæður til golfiðkunar hafa breyst mikið til batnaðar. Þegar ég var að byrja í golfinu, þá þótti mörgum sem þetta væri alls ekki íþrótt fyrir börn og unglinga og sumir vildu jafnvel banna okkur aðgang að völlunum. Sem betur fer varð þetta sjónarmið ekki ofan á og unglingastarfið hefur skilað gríðarlega góðum árangri, m.a. með atvinnumönnum erlendis. Vellirnir eru líka orðnir fleiri og betri gæði á grasi sem notað er og umönnun vallanna og því hægt að byrja fyrr á vorin og spila lengra fram eftir haustinu og ástand vallanna ekki eins háð árferðinu eins og var áður. Golf er líka orðin ein helsta almenningsíþrótt á landinu og þar hefur þróunin orðið svipuð og á Norðurlöndunum. Þetta er ekki snobbíþrótt hér heldur fyrir alla sem vilja enda er golf einstaklega vel fallið fyrir alla aldurshópa. Börn, foreldrar og afar og ömmur geta spilað saman og þó getan sé misjöfn þá geta allir fylgst að vegna forgjafarinnar.“

Þú mælir semsagt með golfinu?

„Golf er mikil og góð úthaldsþjálfun. Í því felst kraftganga upp á allt að 7 kílómetra á misjöfnu undirlagi, upp og niður brekkur og síðan þarf að bera eða draga kylfurnar með sér og slá kúluna. Þetta er miklu meiri hreyfing en flestir sem ekki hafa spilað golf gera sér grein fyrir. Þetta er líka góð hreyfing sem hentar öllum aldurshópum. Golf er kjörið fyrir þá sem vilja njóta náttúrunnar og stunda íþrótt um leið. Golfið er líka félagsskapur því það er ekki gaman að spila golf einn. Ég vil endilega benda þeim körlum sem eru að byrja að stunda golf að drífa konuna með sér. Þetta er frábær íþrótt að stunda fyrir pör og miklu skemmtilegra að vera í þessu saman.“

En hvernig er að spila golf í dag sem hobbí með slíkan keppnisferil að baki?

„Það er ekki eins erfitt og ég hafði ímyndað mér. Og sannleikurinn er sá að ég nýt þess betur að spila golfið og fæ að sumu leyti meira útúr því en þegar ég var að æfa og keppa sem mest. Mér finnst ég líka vera betri golfari núna að vissu leyti. Búnaðurinn hefur reyndar þróast mikið, kylfurnar eru miklu betri og léttari og auðveldara að slá lengra og nákvæmara. Það er í rauninni auðveldara að spila golf núna með nýrri kylfum úr léttari málum með alls kyns ?fídusa? sem leiðrétta vitleysurnar í sveiflunni. Ég hef alltaf haldið mér sæmilega vel við og spila ágætlega en mig vantar auðvitað keppnisþjálfun og stöðugleika ef ég væri að hugsa um að taka þátt í stóru móti aftur. Mér hentar ágætlega að taka þátt í stuttum og skemmtilegum mótum eins og þeim sem læknar efna til.“

Og rúsínan í pylsuendanum er sú að forgjöf Ásgerðar er sú sama í dag og árið sem hún varð Íslandsmeistari.

„Ég er með 6 í forgjöf.“

Hvernig standa konur í læknastétt sig í golfinu?

„Þær sem eru að spila golf standa sig vel en þær mættu alveg vera fleiri. Oftast er ég ein þegar kemur að mótum innan stéttarinnar en almennt er konum að fjölga í golfi, þannig að þær hljóta að fara að láta sjá sig. Ég auglýsi semsagt eftir konum í læknastétt til að spila golf.“

„Ég auglýsi eftir konum í læknastétt til að spila golf,“ segir Ásgerður Sverrisdóttir.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica