01. tbl 92. árg. 2006

Íðorð 183. Gervilíffæri og ígræði

Íðorð 183. Gervilíffæri og ígræði

Prosthesis

Frá Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins barst verkefni. Í firnalöngum evrópskum útboðslista, þar sem meðal annars var tilgreindur ýmis konar lækningabúnaður, kom á nokkrum stöðum fyrir heitið prosthesis. Lagt hafði verið til að þar yrði notað íslenska heitið ígræði. Undirritaður fékk sendan hluta listans og var beðinn um álit. Við nána skoðun kom í ljós að hugtökin implant og prosthesis voru ekki notuð og aðgreind eins og vera ætti.

Gervilíffæri

Íðorðasafn lækna notar íslenska heitið gervilíffæri um prosthesis. Upprunalega heitið er komið úr grísku, myndað úr forskeytinu pros-, sem merkir nálægt, í áttina, að e-u, og sögninni tithenai, sem merkir að setja, bæta við. Læknisfræðiorðabók Dorlands lýsir prosthesis þannig að um sé að ræða tilbúinn hlut í stað líkamshluta sem vantar, svo sem handlegg, fótlegg, auga eða tönn, ýmist til að bæta starfsemi eða útlit. Aðrar heimildir gefa einnig til kynna að prosthesis sé langoftast notað um heila líkamshluta eða líffæri og að engu skipti hvort hluturinn sé áfestur eða ígræddur. Dæmi um slík gervilíffæri og -líkamshluta eru, gerviauga, gervibrjóst, gervifótur, gervihjarta, gervihné, gerviliður, gerviloka og gervimjöðm.

Ígræði

Íðorðasafn lækna notar íslenska heitið ígræði í stað enska nafnorðsins implant. Það er komið úr latínu, myndað af forskeytinu im-, sem merkir í, inn í, og nafnorðinu planta, sem táknar græn grein eða græðlingur. Læknisfræðiorðabók Dorlands lýsir merkingunni þannig að implant sé tilbúinn hlutur eða efni, sem er grætt eða sett inn í líkamann sem gervilíffæri eða gervilíkamshluti eða til meðferðar, greiningar eða rannsóknar. Aðrar heimildir leggja ýmist áherslu á að hluturinn sé tryggilega festur og settur djúpt í líkamann eða honum varanlega komið fyrir. Nokkur tilgreind dæmi eru breast implant (brjóstaígræði), cochlear implant (kuð­ungsígræði), intraocular implant (augnígræði), penile implant (reðurígræði) og testicular implant (eistaígræði).

Aðgreining

Undirritaður lagði til að þessum hugtökum yrði haldið aðgreindum. Ígræði er eitthvað sem komið er fyrir í líkamanum (grætt í) og getur verið búnaður, tæki eða gervilíffæri. Prosthesis er hins vegar gervilíffæri eða gervilíkamshluti og getur verið áfestur eða ígræddur.

Honeycomb lung

Sigríður Ólína Haraldsdóttir, lungnalæknir, sendi tölvupóst og sagðist vera að leita að íslensku orði til að þýða enska orðið honeycomb í samsetningunni honeycomb lung. Undirritaður benti á að Íðorðasafn lækna geymdi heitið býkúpulungu, en að það heiti hefði sennilega ekki sömu myndrænu tilvísun fyrir Íslendinga og það enska hefði fyrir innfædda í mörgum öðrum löndum. Sigríður Ólína svaraði með því að hún hefði oft notað samlíkingu við fiskinet til að lýsa þessu ástandi, þar sem fiski­net væru Íslendingum líklega hugleiknari en býflugnabú.

Býkúpa

Ensk-íslensk orðabók Arnar og Örlygs birtir ágæta lýsingu á honeycomb: 1. vaxkaka með sexstrendum hólfum, búin til af hunangsflugum undir egg þeirra og hunang. 2. hvað eina sem líkist þessu að gerð. Læknisfræðiorðabók Dorlands lýsir honeycomb lung þannig: útlit á lungna röntgenmynd, sem einkennist af geislaglærum útvíkkunum í lungnavef, svo sem við lungnatrefjun af óþekktum uppruna; birtist einnig sem fjölmargar litlar blöðrur eða hol­rými. Læknisfræðiorðabók Stedmans bætir því við að útlitslýsingin geti einnig átt við um þær breytingar sem greinast við skoðun á lungnavef með berum augum eftir skurðaðgerð eða krufningu. Ekki kemur fram að holrýmin í lungunum séu reglulega sexstrend eins og hólfin í býkúpunni, miklu fremur að þau séu óreglulega hringlótt. Því má gera ráð fyrir að líkingin við býkúpuna byggist fyrst og fremst á fjölda holrýmanna og þunnum, vel afmörkuðum veggjum þeirra.

Netlunga?

Gaman væri að geta fundið íslenskt heiti sem hefur jafn dramatíska, myndræna tilvísun og hið enska heiti, honeycomb lung. Lýst er eftir hugmyndum og tillögum frá þeim sem áhuga hafa. Fyrstu innlegg í þann hugmyndabanka eru (í stafrófsröð) eftirfarandi: froðulunga, gatasigtislunga, loftbólulunga, netlunga, sápukúlulunga.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica