05. tbl. 91. árg. 2005

Broshorn 58. Af dulmáli og hitamælingum

p03-hofnyÍ starfsþjálfun

Reyndur deildarlæknir var með nokkra lækna­nema á öðru ári í sýnikennslu á lyflækningadeild þar sem verið var að kenna skoðun sjúklinga. Hann greindi læknanemunum frá því að það mikilvægasta við slíka skoðun væri að kanna lífsmörk sjúklinganna. Svo vildi til að einn af nemunum var með glænýjan hitamæli í vasanum og stakk honum upp í félaga sinn til að ganga í augun á þeim sem var að kenna. Deildarlæknirinn sagði: "Gott hjá þér, en það var þrennt sem þú gerðir vitlaust. Í fyrsta lagi gleymdir þú að þrífa mælinn, í annan stað gleymdir þú að athuga hvaða hitastig stóð á mælinum áður en þú stakkst honum upp í félaga þinn og í þriðja lagi er þetta rassmælir."

Dulmál fæðingarinnar

Verðandi faðir vildi ekki að vinnufélagar hans vissu að hann ætti vinkonu og enn síður að hún væri ófrísk eftir hann. Þegar kom að því að barnsmóðirin yrði léttari fylgdi hann henni á fæðingadeildina en treysti sér ekki til að vera viðstaddur fæðinguna. Áður en hann hvarf á braut ræddi hann við ljósmóður á vakt.

"Viltu gjöra svo vel og hringja á vinnustaðinn minn þegar sonur minn fæðist og biðja símastúlkuna að skila til mín "klukkan er komin" í stað þess að segja það beint út að ég sé orðinn pabbi."

Barnið fæddist og barnið var stúlka. Ljósmóðirin hugsaði með sér: Ef ég hringi í vinnuna til mannsins og læt skila til hans "klukkan kom ekki" gæti hann orðið mjög áhyggjufullur og haldið að eitthvað hafi komið fyrir barnið."

Síðan hringdi ljósmóðirin og skilaboðin urðu svohljóðandi: "Klukkan er komin, en pendúlinn vantar."

Úr ræsinu

Það var fyrir þann tíma sem allir þekktu alla á landinu bláa að tveir lögreglumenn á eftirlitsferð í miðbæ Reykjavíkur komu árla morguns að karlmanni drukknum og illa til reika. Maðurinn var án allra skilríkja og greinilega hjálpar þurfi. Það fór ekki milli mála að hann hafði ekki verið að drekka áfengi í fyrsta sinn og hann var lítið gefinn fyrir afskipti ókunnugra. Þegar annar lögreglumaðurinn yrti á manninn varð hann strax hinn fúlasti og neitaði að gefa nokkuð upp um sína hagi. Lögreglan sá ekki annað úrræði en að koma honum undir læknishendur á slysadeild Borgarspítala. Ekki jók það á gleði mannsins nema síður væri og enn sem fyrir var hann með stæla og neitaði að gefa upp nafn, aldur, kennitölu, hemilisfang eða aðrar upplýsingar um sjálfan sig.

Þegar búið var að athuga blóðþrýsting og hjartslátt bað deildarlæknirinn um að hann yrði mældur og gekk það nokkuð mótbárulaust fyrir sig.

"Þrjátíu og sjö," sagði sjúkraliðinn yfir hópinn sem var að stumra yfir manninum.

"Hvert þó í heitasta," sagði þá maðurinn. "Þau stinga einhverju upp í afturendann á manni og finna út hvað maður er gamall."

Lögga með bólginn botnlanga

Lögreglumaður sem var talinn til hraustustu manna fékk magapínu og var lagður á spítala þar sem í ljós kom að botnlanginn var bólginn. Hann fór beint í aðgerð sem gekk vel fyrir sig. Þegar hann var að komast til meðvitundar eftir svæfinguna fann hann að magaverkurinn var horfinn en í staðinn fann hann til umtalsverðra óþæginda í brjóstkassanum. Það var engu líkara en verið væri að rífa af honum bringuhárin. Þegar hann gat loks hneppt frá sér sloppnum sá hann þrjá heftiplástra af breiðari gerðinni sem voru límdir þvert yfir vel hærða bringuna. Með feitum tússpenna stóð skrifað: "Vona að þú hressist fljótt en hugsaðu þig tvisvar um áður en þú tekur hjúkku aftur fyrir of hraðan akstur."



Þetta vefsvæði byggir á Eplica