Stöðuauglýsingar

Yfirlæknir á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu


Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, auglýsir eftir yfirlækni á Þróunarmiðstöð Íslenskrar heilsugæslu.

Þróunarmiðstöð Íslenskrar heilsugæslu (ÞÍH) leiðir faglega þróun innan heilsugæslu á landsvísu. Markmið ÞÍH er að styðja við alla starfsemi heilsugæslunnar í landinu varðandi gæðamál, verklag, kennslu og vísindavinnu. ÞÍH vinnur að samræmingu verklags og samhæfingar milli fagfólks á heilsugæslustöðvum, gæðaþróun, framförum i heilsugæslu og vísindastarfi í samráði við aðila sem reka heilsugæslustöðvar.

Um er að ræða 50% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

· Leiða verkefni sem snúa að gæðaþróun í heimilislækningum og heilsugæslu á landsvísu og taka þátt í slíkum verkefnum í samstarfi við aðra fagaðila á ÞÍH

· Samstarf og samvinna við aðrar stofnanir og stjórnvöld

· Gerð leiðbeininga og gæðaskjala fyrir starfsfólk heilsugæslunnar

· Þáttaka í sjálfbærniverkefnum á vegum ÞÍH

· Önnur verkefni sem yfirlækni eru falin af forstöðumanni ÞÍH

Hæfniskröfur

· Sérfræðimenntun í heimilislækningum.

· Yfirgripsmikil reynsla af starfi í heilsugæslu.

· Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt.

· Skýr sýn og reynsla af gæðaþróun í heimilislækningum og heilsugæslu.

· Reynsla af vísindarannsóknum og kennslu heilbrigðisstétta æskileg.

· Metnaður til að ná árangri í starfi.

· Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

· Góð hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 13.05.2026

Nánari upplýsingar veitir Anna Bryndís Blöndal - Anna.Bryndis.Blondal@heilsugaeslan.is -




Þetta vefsvæði byggir á Eplica