Stöðuauglýsingar
Fagstjóri lækninga - Heilsugæslan Garðabæ
Lýsing
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) auglýsir laust til umsóknar starf fagstjóra lækninga við Heilsugæsluna Garðabæ. Fagstjóri lækninga ber ábyrgð á skipulagningu læknisþjónustu. Mikil áhersla er lögð á samvinnu milli fagstétta innan starfsstöðva HH og að þjónustuþarfir skjólstæðinga séu ávallt í fyrirrúmi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, skipulagshæfileika og samskiptahæfni. Starfshlutfall er 100% og ráðið verður ótímabundið í starfið til frá og með 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Á starfsstöðvum HH starfa fagstjóri hjúkrunar og fagstjóri lækninga. Hlutverk fagstjóra er að annast skipulag, verkstjórn og samhæfingu innan fagsviðs í samræmi við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Á ráðningartíma mun forstjóri fela öðrum hvorum fagstjóranna að sinna verkefnum forstöðumanns samkvæmt gildandi fyrirkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Skipulag, verkstjórn og samhæfing innan fagsviðs með forstöðumanni, í samræmi við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
· Er forstöðumanni innan handar við daglegan rekstur stöðvar og er staðgengill hans
· Innleiðir nýjungar og vinnur að breytingum á starfsemi til hagsbóta fyrir skjólstæðinga stöðvar
· Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun klínískra leiðbeininga
· Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
· Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi
· Hefur umsjón með sérnámslæknum stöðvar, veitir fræðslu til nema, nýliða og starfsmanna fagsviðs í samvinnu við aðra starfsmenn stöðvar
· Er faglegur yfirmaður á sínu sviði og sinnir klínísku starfi samhliða
Hæfniskröfur
· Sérfræðingur í heimilislækningum
· Reynsla af starfi í heilsugæslu skilyrði
· Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar
· Nám í stjórnun er æskilegt
· Hæfni í mannlegum samskiptum
· Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi
· Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
· Reynsla af rekstri innan heilbrigðisþjónustu æskileg
· Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
· Góð íslenskukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Nanna Sigríður Kristinsdóttir
Framkvæmdastjóri lækninga Tölvupóstur: nanna.sigridur.kristinsdottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-5000
