Ritstjórnargreinar

Sumarþankar af slysadeild

Ég var beðin um sumarhugleiðingu af slysadeildinni. Var þá nýkomin á kvöldvakt og þykir við hæfi að byrja þar ...

Strax á leið inn í húsið - í gegnum biðstofuna á Slysa- og bráðadeildinni - sé ég að sumarið er komið með öllu tilheyrandi. Börnin með skrapsár í andliti og á útlimum, sárin full af möl og sandi og stundum líka beinbrot.

Þegar dyrnar opnast þeysast þeir hvítklæddu um, skoðunarstofurnar fullar og sumir skjólstæðingar því á göngunum. Á bekkjunum liggja þeir sem hafa meiðst á neðri útlimum eða fengið alvarlegri áverka og höfuðhögg.

Áfram geng ég inn, heyri að von sé á fólki úr umferðarslysi. Mér dettur strax í hug Kringlumýrarbraut ef slysið varð í bænum, en annars Reykjanesbraut, Vesturlandsvegur eða Hellisheiði. En slysin geta svo sem átt sér stað hvar sem er.

Það flögrar í gegnum huga minn hvernig það geti gerst að verið sé að tvöfalda Reykjanesbraut í báðar áttir, kostnaður á hvern kílómetra litlar 125 milljónir króna. Á meðan er lítið eða ekkert verið að gera til dæmis fyrir Vesturlands- eða Suðurlandsveg. Ég óttast að með fleiri akreinum verði bara meiri hraði og því verri slys. Mér skilst að fyrir svipaða upphæð og á að fara í tvöföldun Reykjanesbrautar mætti aðskilja akstursstefnur og gera 2+1 veg (ein akrein í hvora akstursstefnu og þriðju akreininni víxlað fyrir framúrakstur) til Selfoss, Reykjaness og að Hvalfirði. Eins skil ég ekki, fyrst fjármunir hins opinbera eru takmarkaðir, af hverju ekki var frekar úthlutað 50 milljónum króna til að halda uppi löggæslu við Reykjanesbraut allan sólarhringinn, allan ársins hring. Þessi upphæð samsvarar kostnaði við að tvöfalda um 400 metra af Reykjanesbraut. Með löggæslu allan sólarhringinn myndi draga úr hraða og með því fækka slysum og vegurinn yrði öruggari. Auk þess sem allt að 3700 milljónir myndu sparast og nota mætti til úrbóta víðsvegar í vegakerfi landsins, meðal annars á Reykjanesbraut.

Ég skil ekki heldur að þrátt fyrir yfirlýsta stefnu ráðamanna um að stefna beri að fækkun umferðarslysa og búið er að margsýna fram á að með aukinni löggæslu verður veruleg fækkun slysa, veita þessir ráðamenn minna fé til lögreglunnar sem á því erfiðara með að sinna löggæslu, meðal annars í umferðinni.

Mér þykir því sérstaklega athyglisvert nú í upphafi sumars, þegar vitað er að umferð mun aukast og því aukin hætta á slysum, að hugsa til þess að engar sumarafleysingar verða í umferðardeild lögreglunnar þar sem ekki fæst til þess fjárveiting.

Geng áfram eftir ganginum. Þar liggur kona á mínum aldri (sem sagt á besta aldri) með línuskautana hjá sér. Það þarf hvorki skoðun né röntgen til að sjá að hún er brotin. Önnur anatomía um úlnliðinn sem hún hefur getað fæðst með (ætli hún sé með radíalis púls?) Engin merki um hlífar eða hjálm. Heyri lækninn hennar segja að hún komist ekki í aðgerð í kvöld þar sem hún borðaði rétt áður en hún fór út að skauta. Það er þá annaðhvort að nota hlífar og hjálm eða að vera fastandi (því þá þarf ekki að fresta aðgerð til að rétta brotið). Minnisstæðar eru margar vaktir í Bretlandi þar sem endurtekið komu ljót brot hjá börnum eftir slys á línuskautum. Þar er lítið um hlífa- og hjálmanotkun. Hinsvegar sá ég ekki eins marga fullorðna slasaða þar á skautum og hér. Spurning hvort fólk á besta aldri hér sé virkara eða bara meiri klaufar?

Ástandið hér á landi hefur batnað hvað varðar notkun á hjálmum, til dæmis á hestum, hjólum, línuskautum og brettum, þó enn vanti töluvert upp á, því miður. Miklu fleiri börn og fullorðnir nota hjálma í dag en fyrir nokkrum árum, og það skilar sér tvímælalaust í fækkun alvarlegra höfuðáverka.

Er nú komin fyrir horn og fer inn í gáminn á skrifstofuna mína. Fer í hvítu fötin, breytist í enn eina hvítklædda veru. Svo er það vaktin. Hún er nú eiginlega efni í nýja grein. Hún kemur kannski síðar ...

Vaktin er búin og þegar ég geng útaf deildinni verð ég að viðurkenna að vera fegin að vera á heimleið. Fyrstu næturgestir deildarinnar byrja að mæta, þeir sem skemmtu sér of mikið eða slösuðust í næturgleðinni. Hugsa um útihátíðina sem á eftir að verða í nótt og verðandi fórnarlömb hennar. Ég hef ekkert á móti stórum mannfögnuðum undir beru lofti, síður en svo, og hlakka alltaf mikið til Þorláksmessu og 17. júní. Vandinn er hins vegar óhófið sem okkur Íslendingum hættir svo við, ofurölvun og neysla fíkniefna og sá harði heimur sem þeim fylgir. Eitt er að taka á móti og reyna að sinna þeim sem hafa sjálfir komið sér í vandræði sökum hegðunar sinnar en það er erfiðara og oft yfirbugandi að taka á móti fórnarlömbum ofbeldis sem fylgir ofneyslu. Sérstaklega sláandi er það viðhorf að í lagi sé að berja liggjandi mann. Óskiljanleg þykir mér sú lausn að lengja opnunartíma veitingastaða og bæta við súlum í miðbænum, en fækka lögreglumönnum á móti. Með þessa hugsun í kollinum geng ég út í góða veðrið.

Lesendur góðir, njótið sumarsins, hreyfingar, útivistar, ferðalaga, góða veðursins og gleðinnar sem þessu fylgir. En farið skynsamlega og munið eftir og minnið á hjálma og hlífar, akið á löglegum hraða og miðað við aðstæður, verið allsgáð undir stýri og sleppið á meðan spjallinu í farsímann. Reynið að sannfæra stjórnmálamenn um að auka fjárframlög til löggæslu í landinu og bæta umferðarmannvirki á skynsamlegan hátt. Við erum nefnilega líka þátttakendur í þessu lífi þó við séum heilbrigðisstarfsmenn. Þegar kemur að ráðum og forvörnum eru það helst tveir hópar sem almenningur hlustar á, það eru fórnarlömb slysa og svo þeir sem koma að og sinna slösuðum. Þannig geta raddir okkar allra skipt máli til að fækka fórnarlömbum. Nóg er nú samt.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica