Umræða fréttir
  • Hans Kristian Bakke

Norrænir læknar ræða öryggi sjúklinga

Tvisvar á ári hittist stjórn Norræna læknaráðsins til skiptis á Norðurlöndum og í byrjun febrúar var röðin komin að Íslandi. Í stjórninni sitja formenn læknafélaganna fimm eða staðgenglar þeirra ásamt framkvæmdastjórum og/eða öðrum starfsmönnum. Formennskan færist milli landa og um þessar mundir eru Norðmenn í forsæti.

Svo vill til að í Noregi hafa orðið töluverð umskipti í forystu lækna. Um áramótin tók nýr maður við sem forseti norsku læknasamtakanna, Hans Kristian Bakke, og með honum í för voru tveir nýir menn, þeir Åsmund Hodne framkvæmdastjóri og Magne Nylenna sem gegndi starfi ritstjóra norska læknablaðsins fram til síðustu áramóta þegar hann færði sig yfir í stól aðalritara. Læknablaðið hitti Hans Kristian Bakke að máli og innti hann eftir því um hvað fundurinn í Þjóðmenningarhúsinu hefði snúist.

"Á þessum fundum er fjallað um sameiginleg málefni norrænna lækna og að vanda var rætt um samstarf okkar á vettvangi Alþjóðafélags lækna og Evrópusamtaka lækna. En það sem tók mestan tíma var að undirbúa fund Norræna læknaráðsins sem haldinn verður í Björgvin dagana 21.-23. maí næstkomandi," sagði Hans.

Hann sagði að á fundum ráðsins væri rætt um ýmis mál en að þessu sinni verður meginefni fundarins öryggi sjúklinga. "Það verður rætt um kerfi sem eiga að tryggja gæði meðferðar, um óhöpp sem hent geta sjúklinga og um lækna sem ekki standa sig í starfi. Þá verður einnig fjallað um fjármögnun og uppbyggingu heilbrigðiskerfisins, eignarhald og annað sem haft getur áhrif á öryggi og velferð sjúklinga," sagði norski formaðurinn.

Hann sagði að norrænir læknar ættu margt sameiginlegt þótt vissulega væri uppbygging og skipulag heilbrigðisþjónustu með mismunandi hætti í löndunum. "Í Noregi erum við til dæmis mjög upptekin af því að koma á nýju kerfi í þjónustu heimilislækna, svonefndu "fastlegesystem" sem gerir ráð fyrir því að hver sjúklingur hafi fastan lækni sem fylgist með honum hvar svo sem hann er staddur í heilbrigðiskerfinu. Þetta kerfi tökum við upp að danskri fyrirmynd en Danir og raunar ýmsar aðrar þjóðir hafa aðhyllst þetta skipulag um langt árabil. Þarna sést hins vegar vel hve ólík Norðurlönd geta verið því í Svíþjóð eru flestir læknar starfsmenn sveitarfélaga eða léna en á Íslandi er blanda af einkarekstri og opinberum og allt kerfið miklu opnara," sagði Hans.

Hann bætti því við að vissulega gætu læknar á Norðurlöndum lært ýmislegt af íslenskum kollegum og tók sem dæmi miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði. "Það er mjög forvitnilegt fyrir okkur að fylgjast með gangi þess máls hér á landi því þetta er ákaflega mikilvægt hagsmunamál sem snertir okkur ekki síður en ykkur," sagði Hans Kristian Bakke að lokum. -ÞH

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica