Íðorðapistlar 1-130

043-Rútína

Á fræðslufundi fyrr í vetur notaði fyrirlesari slanguryrðið "rútína" svo oft að undirrituðum var farið að þykja nóg um. Orðið kom ýmist fyrir eitt sér eða í samsetningum og virtist við nánari athugun notað með þremur örlítið mismunandi blæbrigðum í merkingu. Fyrsta merkingin var í ætt við íslensku orðin vani og venja. "Það er algjör rútína að taka blóð við komu sjúklings á deildina." Þarna hefði fyrirlesari getað sagt: "Það er algjör venja..." eða "Það er föst venja að taka blóð við komu..." og svo framvegis. Önnur merkingin var fremur í ætt við lýsingarorðið venjulegur. "Talning á hvítum (blóðkornum) er rútínurannsókn hér." Fyrirlesari hafði greinilega í huga samanburð við vissar aðrar rannsóknir, sem venjulega eru ekki gerðar og eru því ekki meðal vanaverka rannsóknastofunnar eða sjúkrahússins. Þeirri merkingu hefði hann getað komið til skila með því að segja: "Talning hvítra blóðkorna er venjuleg rannsókn (venjurannsókn, vanarannsókn eða vanaverk)." Þriðja merkingin var helst í ætt við fastmótaða hefð, rótgróinn sið. "Það sem gert er í rútínu gengur alltaf best." Þarna hefði fyrirlesari til dæmis getað sagt: "Það sem gert er samkvæmt fastmótaðri hefð gengur alltaf best." eða jafnvel "Hefðbundin verk takast alltaf best."



Slanguryrði

Rútína er eitt af þeim mörgu slanguryrðum sem segja má að náð hafi vinsældum vegna hæfilegrar fjölbreytni í blæbrigðum merkingar og jafnframt vegna sveigjanleika í túlkun. Allir læknar og flestir heilbrigðisstarfsmenn og nemar í heilbrigðisfræðum geta notað þetta orð þannig að það skiljist í réttu samhengi, en flestir eiga erfitt með að finna eitt íslenskt orð sem er sömu merkingar. Slanguryrðið hefur því á vissan hátt öðlast sjálfstætt og eilíft líf. Það fær þá merkingu sem á þarf að halda hverju sinni og af þeim sökum verður það smátt og smátt ómissandi og allra manna gagn. Nýlega skaut orðið rútína meira að segja upp kollinum í virðulegri grein í Læknablaðinu.

Mörg fleiri slík orð má vafalaust finna í læknaslangri, en meðal þeirra algengustu eru lýsingarorðið klínískur og nafnorðið klínikk. Um þau var lítillega rætt í október-pistlinum 1991. Óskað var eftir tillögum til úrbóta, en lítið hefur orðið um svör. Enn er því skorað á málhaga menn að beina hugarorkunni um sinn að úrbótum á "klínikkinni" og að taka þá "rútínuna" með í leiðinni.

Það er álit undirritaðs að þessi orð geti vel átt nokkurn rétt á sér í daglegu læknaslangri, en að betur eigi að gera þegar haldnir eru vandaðir fyrirlestrar eða skrifaðar fræðilegar greinar. Ekki þarf síst að vanda málfarið þegar rætt er við leikmenn, hvort heldur það eru sjúklingar í einkaviðtölum eða fréttamenn á snöpum eftir æsifréttum dagsins.



Belgur - belgmein

Enska heitið cyst er komið úr grísku, leitt af kystis, sem þar merkir blaðra. Er þá ýmist átt við blöðrulaga líffæri, svo sem þvagblöðru eða gallblöðru, eða sjúklega blöðru, sem myndast hefur í vef eða líffæri. Vesica er hins vegar latneskt orð, sem virðist merkja nánast það sama, en er þó síður notað um sjúklega blöðru. Cyst er þýtt með orðunum belgur eða blaðra í Íðorðasafni lækna og er þá alltaf átt við sjúklegt fyrirbæri, vökvafyllt holrúm, oftast klætt þekju og gjarnan umlukið bandvefsvegg. Undirritaður hefur hins vegar tekið ástfóstri við heitið belgmein og notar þá heitið belgur í samsetningum og til styttingar þegar við á. Meðal algengra belgmeina í húð eru til dæmis cystis epidermalis og cystis dermoides, sem kalla má húðþekjubelg og húðlíkisbelg. Orðanefndin hefur á sínum tíma kosið að nefna síðara fyrirbærið skinnlíkisblöðru.

Þó ekki væri til annars en að hafa gaman af, má rifja upp að heitið dermoid er dregið af grísku orðunum dermis, sem er heiti á innra lagi húðar (L. corium), og eidos, sem merkir líkur. Nefndin hefur kosið að nota heitið leður um dermis, þannig að dermoid ætti samkvæmt því að nefnast leðurlíki. Hinu má þó ekki gleyma að gríska orðið derma virðist hafa verið notað um húð án aðgreiningar í þekju og leður. Húðlíki sýnist því vel við hæfi sem íslenskt heiti á dermoid.

FL 1993; 11(6): 6
Til baka Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica