Íðorðapistlar 1-130

060-Enn um framburð

Athugull lesandi vakti athygli á bágum framburði sem stundum má heyra. Sérkennilegar áherslur ákafra fréttamanna verða gjarnan til þess að kynsjúkdómur verður "kjinnsjúkdómur". Undirritaður hafði raunar tekið eftir því að margir eiga erfitt með að halda ákveðnum sérhljóðum hæfilega löngum og tvöfalda gjarnan samhljóðana í staðinn. Sjúklingur getur þannig orðið að "sjúkklingi" og skurðlæknir að "skurrlakkni". Gaman væri að heyra um fleira sem betur mætti fara.



Bacterial vaginosis

Nýlega fékk undirritaður það verkefni frá Félagi íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna að koma með tillögu að íslenskun fræðiheitisins bacterial vaginosis. Erindinu var svarað bréflega og skal úrvinnsla þess nú rakin.



Skilgreining

Mikilvægt er að skilgreina þau hugtök sem gefa á íslensk fræðiheiti. Skilgreiningin á að tryggja að viðkomandi hugtak sé rétt afmarkað frá öðrum skyldum fyrirbærum og að hið íslenska heiti þess sé ekki byggt á misskilningi. Í þessu tilviki fylgdi erindinu stutt skilgreining sem var síðan endurskoðuð og að lokum orðuð svo: "Bacterial vaginosis er sjúklegt ástand, fremur en sjúkdómur, sem einkennist af truflun á örverugróðri í leggöngum (skeið), þrálátum ofvexti ákveðinna baktería og útferð sem er ríkuleg, þunn og jöfn. Við skoðun sést ekki bólga í skeiðarslímhúð, en útferðin er oft lyktandi."



Söguskoðun

Fyrrum voru oft notuð heitin colpitis eða vaginitis hjá konum með óeðlilega útferð af þessu tagi og var útferðin upphaflega talin stafa af sýkingu með loftóháðum (anerobic) sýklum. Árið 1954 fannst ný baktería sem fékk heitið Hemophilus vaginalis og var talin orsök sýkingarinnar. Þessi baktería fékk tvívegis ný nöfn, fyrst Corynebacterium vaginale (1963) og síðan Gardnerella vaginalis (1980). Nú er talið víst að ekki sé um eiginlega innrás sýkla eða teljandi bólgufrumuíferð í skeiðarslímhúð að ræða, en að ofvöxtur þessarar bakteríu útrými þeim sýklum sem þarna búa venjulega, einkum Lactobacillus vaginalis. Líklegt er þó talið að ofvöxtur fleiri sýkla geti skipt máli. Á síðasta áratug hefur heitið vaginosis átt fylgi að fagna, ýmist í samsetningunni non-specific vaginosis eða sem bacterial vaginosis.



Orðskýringar

Bacterium (ft. bacteria) nefnist ýmist gerill eða baktería á íslensku. Orðið er grískt að uppruna, myndað af baktron, sem þýðir stafur eða prik, en bakterion mun vera smækkunarorð og þýðir þá lítill stafur. Staflaga örverur hafa greinilega verið fyrstu sýklarnir sem greindust við smásjárskoðun. Undanfarið virðist heitið baktería hafa átt meira fylgi að fagna en gerill í fræðilegri umræðu meðal lækna, en heitið gerill hefur meir verið notað í matvælafræði og heilbrigðisfræði.

Bakteríur eru örsmáar lífverur (um 1 míkron í þvermál) sem ýmist lifa sjálfstæðu lífi eða sem sníklar á öðrum lífverum. Sýkill er hins vegar örvera (microorganismus) sem getur valdið sýkingu í lifandi vef. Sýkill er því samheiti á meinvirkum örverum (pathogenic microorganisms), það er bakteríum, veirum, sveppum og sníkjudýrum.

Orðhlutinn -osis er viðliður úr grísku, notaður til að tákna líkamlegt eða andlegt ástand sem gjarnan er sjúklegt (leukocytosis, neurosis, virosis). Heitið vaginosis má því vel nota um sjúklegt ástand í leggöngum (skeið). Íslenskir orðasmiðir hafa stundum átt í erfiðleikum með að finna sambærilega stuttan og lipran viðlið, sem nái til þess sem gríski orðhlutinn -osis getur gefið til kynna, en oft hefur verið gripið til þess að mynda kvenkynsorð sem endar á -un, svo sem eitrun (toxicosis).

Bacteriosis er skilgreint sem sýking eða sjúkdómur af völdum baktería og hefur fengið þýðinguna bakteríukvilli í Íðorðasafni lækna. Það heiti er þó fremur stirðlegt í samsetningum. Í tannlæknisfræði hefur örverugróður sá sem býr í munnholi fengið samheitið munnsýkla, þó að slíkt sé ekki fyllilega rökrétt heiti á eðlilegum örverugróðri. Það virðist hins vegar vel við hæfi að sýklun feli í sér sjúklegt ástand sem stafar af örverugróðri, til dæmis bacteriosis. Vissulega má þó segja að sýklun sé víðfeðmara hugtak en bacteriosis og geti náð til annarra sýkla en baktería. Rétt er að geta þess að með fullum rétti mætti nota heitið sýklun um landnám sýkla á ákveðnum stöðum, til dæmis í munni, görnum eða skeið. (Framhald í næsta blaði.)



Lbl 1994; 80: 580
Til baka Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica