Íðorðapistlar 1-130

088-Beinvernd, flogaveiki

Ólafur Ólafsson, landlæknir, sendi stutt bréf og sagði frá fyrirhugaðri stofnun Landssamtaka gegn beinþynningu. Hann bað um álit á heitinu Beinvernd. Þarna er augljóslega byggt á gamalli og góðri hugmynd. Landssamtök hjarta- og æðaverndarfélaga á Íslandi voru stofnuð árið 1964 og nefndust Hjartavernd. Það heiti náði strax miklum vinsældum og er nú orðið svo rótgróið og sjálfsagt að engum dettur í hug að spyrja hver hafi átt hugmyndina. Vera má að Ólafur hafi sjálfur komið þar nærri. Beinvernd er við fyrstu sýn ekki síðra, en líklegt er þó að vinsældir "verndarinnar" dvíni ef fram koma einnig Brjóstavernd, Heilavernd, Lungnavernd, Magavernd, Nýrnavernd og Ristilvernd.

Brottfall

Ólafur vakti einnig athygli því að í upphafi Hjartaverndarrannsókna var notað heitið brottfall um þá sjúklinga sem ekki tóku þátt í rannsókninni. Þetta heiti hefur ekki ratað inn í Íðorðasafn lækna og ekki heldur það heiti sem Ólafur segir að Læknablaðið hafi kosið í staðinn, vanheimtur. Hann bendir á að orðið brottfall finnist þó í orðabók Árna Böðvarssonar. Önnur útgáfa Íslenskrar orðabókar Máls og menningar frá 1992 lýsir brottfalli þannig: 1. fráfall, dauði. 2. það að e-ð fellur burt. 3. það að hljóð hverfur úr orði.

Íslenska alfræðiorðabókin lýsir nánar brottfalli hljóða í málfræði og Íslensk samheitaorðabók tilgreinir samheitin: hvarf, liðfall, niðurfelling, stytting, en að öðru leyti tekst undirrituðum ekki að finna brottfall eða vanheimtur í orðabókum. Við fyrstu sýn finnst honum að þau séu ekki endilega samheiti. Kvenkynsnafnorðið heimt er oftast notað í fleirtölu, heimtur, og þá helst um það hvernig sauðfé skilar sér af fjalli. Heimtur eru góðar þegar nær allur fénaðurinn finnst. Vanheimtur má nota um það að einstaklingar, sem kvaddir eru til þátttöku eða eiga að vera með í læknisfræðilegri rannsókn, skila sér alls ekki. Vanheimtum má lýsa með orðum (miklar, litlar) eða með hundraðshlutföllum. Brottfall má hins vegar nota um það þegar einstaklingar hverfa burt eða hafna þátttöku eftir að hafa verið með í fyrsta hluta rannsóknar. Brottfalli má einnig lýsa með orðum eða hlutföllum. Hvað finnst þér um þetta, Ólafur?



Flogaveiki

Í mars-hefti Læknablaðsins 1997 var grein um flogafár, sem á latneska fræðimálinu heitir status epilepticus. Greinin verður tilefni umfjöllunar um ýmis heiti sem notuð eru í tengslum við flogaveiki, epilepsy.

Status epilepticus er langvarandi flogakast sem, samkvæmt formlegri skilgreiningu, varir að minnsta kosti 30 mínútur og einkennist af samfelldum eða endurteknum flogum. Íðorðasafn lækna gefur íslensku heitin flogafár og síflog, en Íslensk læknisfræðiheiti Guðmundar Hannessonar tilgreina: samfelld flogaköst og síflog. Bæði heitin, flogafár og síflog, eru lipur og lýsandi og erfitt er að gera upp á milli þeirra. Þó má hugsa sér blæbrigðamun á þann veg að flogafár sé sjúklegt ástand sem einkennist af síflogum, stöðugum flogum.

Flog er gamalt hvorugkynsnafnorð, talið myndað með hljóðvarpi af nafnorðinu flug, og má því auðveldlega nota um það sem flýgur, flögrar eða hreyfist ört eins og á flugi væri. Íslenska samheitaorðabókin gefur samheitin: áfall, fítungur, hviða, kast, kippur, krampi, niðurfall, slag. Í Orðabók Máls og menningar má finna eftirtaldar skýringar: (kvala- eða æðis)kast, sjúkdómskast, snöggur verkur. Þar má einnig finna skýringar á hvorugkynsnafnorðinu fár: 1. tjón, ógæfa, voði, óhamingja, óðagot, ráðleysisráp, reiði, heift, hatur, geðshræring, hugstríð. 2. (meinlegur) fjöldi. 3. drepsótt. 4. vera í fári með e-ð: vanta e-ð, vera í vandræðum með e-ð.

Framangreind grein ber heitið "Flogafár án krampa". Flog eru því augljóslega ekki nákvæmlega það sama og krampar. Enda mun nú ætlunin að heitið flog skuli notað um öll þau köst (seizures) sem stafa af flogaveiki, en heitið krampar einungis um þau flog sem koma fram í vöðvasamdráttum (tonic-clonic seizures). (Framhald í næsta blaði.)



E.S. Beðist er velvirðingar á því að í síðasta pistli skolaðist til stafrófsröðin í upptalningu á tillögum að íslensku heiti á útbúnaðinum stent.

Lbl 1997; 83: 260
Til baka Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica