Umræða fréttir

Skotar framarlega í flokki við gerð klínískra leiðbeininga

Í þessum pistli verður vakin athygli á vönduðu efni um klínískar leiðbeiningar sem Skotar hafa unnið og birt á netinu. Á vefi landlæknisembættisins - www.landlaeknir.is - er tengill á þennan skoska vef, en auk þess er slóðin birt hér að aftan.

Scottish Intercollegiate Guidelines Network (SIGN) var stofnað 1993 og eins og nafnið gefur til kynna myndar þetta net fjöldi lækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna. Meðal annars eiga þarna fulltrúa öll læknafélög/sérgreinafélög í Bretlandi auk þess sem þarna eru fulltrúar frá hjúkrunarfræðingum, lyfjafræðingum, tannlæknum og öðrum starfsgreinum sem tengjast heilbrigðismálum. Höfuðstöðvar SIGN eru í húsnæði skoska læknafélagsins í Edinborg og nýtur þessi virta stofnun mikils stuðnings læknafélagsins og einstakra fagfélaga.



Fámenn þjóð á að nýta vandað efni frá öðrum

Sú ákvörðun stýrihóps um klínískar leiðbeiningar á Íslandi, að benda heilbrigðisstarfsfólki á leiðbeiningar SIGN byggist á eftirtöldu: Vinnulag við gerð SIGN leiðbeininga er mjög vandað (val verkefna, heimildarvinna, samsetning vinnuhópa) og lýtur viðurkenndum gæðakröfum. Leitast er við að koma sannreyndum (evidence based) vinnubrögðum í notkun þannig að gagnast megi heilbrigðisþjónustunni. Ráðleggingar innan leiðbeininga eru beint tengdar þeim vísindalega grunni sem að baki liggur þegar þess er kostur. Leiðbeiningarnar fá mjög víðtæka kynningu sem drög og boðið er upp á umræður (fundi) meðal heilbrigðisstarfsmanna um einstakar leiðbeiningar áður en að formlegri útgáfu kemur. Á þessum fundum hafa allir rétt á að koma skoðunum sínum á framfæri.

Framsetning leiðbeininganna þótti mjög aðgengileg, heildarleiðbeiningar og síðan einnar til fjögurra blaðsíðna ágrip (quick reference). Fámenn þjóð hefur minni tök á að vinna mikinn fjölda leiðbeininga og henni er því nauðsynlegt að nýta vinnu annarra sé þess nokkur kostur.



Nýtur trausts Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar

SIGN vinnur í náinni samvinnu við heilbrigðisyfirvöld og sjúklingasamtök við gerð leiðbeininga. Nýverið var stofnunin valin til að hafa umsjón með leiðbeiningum útgefnum af Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni og má ætla að það hafi komið til vegna vandaðs vinnulags. Í náinni samvinnu við læknafélögin í Skotlandi hafa verið unnar á vegum stofnunarinnar sannreyndar leiðbeiningar frá 1993 og nú þegar hafa verið gefnar út meira en 50 leiðbeiningar sem allar eru aðgengilegar á heimasíðu hennar - http://www.show. scot.nhs.uk/sign/guidelines/published/index.html - auk yfirlits yfir leiðbeiningar sem eru í vinnslu - http://www.show.scot.nhs.uk/sign/guidelines/development/index.html

Þar er litið á leiðbeiningar sem eðlilegan og í raun nauðsynlegan þátt í að veita sem besta heilbrigðisþjónustu. Það er landlæknisembættinu því afar mikilvægt að hafa fengið leyfi SIGN-stofnunarinnar til að nota og dreifa leiðbeiningum sem unnar hafa verið á hennar vegum. Það má þó aldrei líta svo á að heimfæra megi erlendar aðstæður beint upp á íslenskar aðstæður. Hver og einn heilbrigðisstarfsmaður þarf að vega og meta hvort leiðbeiningarnar eigi við á hans vinnustað.

Leiðbeiningarnar frá SIGN eru ekki birtar sem íslenskar leiðbeiningar og ekki alltaf yfirfarnar með tilliti til íslenskra aðstæðna. Þótt stýrihópur landlæknisembættisins um klínískar leiðbeiningar sé sammála því að vönduð vinnubrögð nái langt í að tryggja gæði leiðbeininganna þá er ekki hægt að taka ábyrgð á innihaldi einstakra leiðbeininga. Hver og einn heilbrigðisstarfsmaður verður að beita eigin dómgreind og taka tillit til viðhorfa skjólstæðinga sinna. Þetta er í samræmi við að SIGN telur ábyrgð liggja hjá notendum leiðbeininganna.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica