07/08. tbl. 97.árg. 2011

Umræða og fréttir

Frá öldungadeild LÍ. Perlur Austur-Þýskalands skoðaðar. Jón Hilmar Alfreðsson

u09-fig1
Hópurinn við Brandenborgarhliðið árla morguns. Ljósmyndarinn var Sergé bílstjóri á myndvél PÁ.


Í júníbyrjun gerðu nokkrir félagar ásamt mökum, alls 47, för sína til Austur-Þýskalands. Dvalist var í Berlín 4-5 daga og annað eins í Leipzig. Skoðast var um svo sem tíminn leyfði, en að auki var komið til Potsdam og Dresden, stjakað um síki í Spreewald og siglt á Elbu frá bænum Pirna til Königstein Festung.

Þetta mundi vera sú sjöunda af utanlandsferðum Öldunga, en skráðar heimildir vantar. Eftir því sem næst verður komist, eru ferðirnar þessar:

2003  K.höfn, Borgundarhólmur
2004  Eistland, Lettland, Litháen
2006  Slóvenía
2007  Suður-England
2008  Norður-Frakkland
2010  Spánn, Madrid
2011  Austur-Þýskaland

Gunnar Biering barnalæknir var hvatamaður að fyrstu ferðunum og fararstjóri en fararstjórinn í Berlín var Kristín Jóhannsdóttir.

Ferðirnar hafa þótt takast með ágætum. Vissulega er hönnun þeirra ekki frábrugðin öðrum slíkum hópferðum, gjarnan þó með sögulegu ívafi og svo kemur einnig til að hópurinn er hómógen, eldri læknar, sem um áratuga skeið hafa starfað í landinu og að auki allir útskrifast úr sama læknaskólanum. Það fer varla hjá því að þetta veki samkennd og  ekki að undra, þótt skrafdrjúgt verði mönnum á ferð í rútu og á síðkvöldum. Óskandi er að framhald verði á og fleiri fái notið.

Jón Hilmar Alfreðsson ritari

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica