Vísindaráð

Vísindaráð

Vísindi á vordögum


Á
hverju vori eru haldnir vísindadagar á Landspítala, Vísindi á vordögum, þar sem vísindaniðurstöður eru kynntar fyrir starfsfólki spítalans, fræðimönnum og almenningi. Einnig eru veitt verðlaun til vísindamanna og styrkir veittirúr Vísindasjóði Landspítala og kynntir Heiðursvísindamaðurársins og Ungur vísindamaður ársins. Þá er opnuð Vimeo-rás áheimasíðu Landspítala með 34 örfyrirlestra um vísindaleg verkefni starfsmanna spítalans.

Vísindasjóður Landspítala er rannsóknarsjóður, sem árlega veitir rúmlega 80 milljónum króna í rannsóknarstyrki til starfsmanna spítalans. Vísindasjóður var formlega stofnaður á árinu 2000 við sameiningu vísindasjóða Landspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur og voru fyrstu styrkveitingar úr sjóðnum á árinu 2002. Stjórn Vísindasjóðs ákveður hverjir fá styrki úr sjóðnum, með hliðsjón af umsögnum frá Vísindaráði Landspítala. Á árinu 2015 voru á árinu veittir 115 styrkir, samtals 77 milljónir króna, við þrjár úthlutanir:

Vorstyrkir Vísindasjóðs: Á vísindadögum voru veittir 106 vísindastyrkir, samtals 53 milljónir kr.

Hvatningarstyrkir til sterkra rannsóknahópa sem þegar höfðu öðlast alþjóðlega viðurkenningu. Þrír styrkir voru veittir 1. desember, samtals 15 milljónir kr.

Styrkir til ungra vísindamanna: 16. desember voru veittir 9 styrkir til ungra starfsmanna sem stunda klínískar rannsóknir, samtals 9 milljónir króna.

 

Stjórn Vísindasjóðs Landspítala

Páll Matthíasson forstjóri og formaður
Gísli H. Sigurðsson yfirlæknir og prófessor
Sigríður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar
Ólafur Baldursson framkvæmdastjóri lækninga
Rúnar Bjarni Jóhannsson deildarstjóri reikningshalds

 

Vísindaráð er framkvæmdastjórn til ráðgjafar um vísindastefnu og vísindastarf á sjúkrahúsinu. Vísindaráð er vísinda- og þróunarsviði Landspítala til ráðgjafar um þau verkefni þess sem snúa að háskóla- og vísindastarfi og þróun heilbrigðisvísinda. Vísindaráð á aðild að úthlutun styrkja úr Vísindasjóði Landspítala samkvæmt reglum sjóðsins, og semur matsreglur í samræmi við alþjóðlegar viðmiðanir. Þá er Vísindaráð til ráðgjafar við veitingu viðurkenninga fyrir vísindastörf á spítalanum.

Vísindaráð er skipað 10 manns til fjögurra ára í senn. Verkefnastjóri Vísindaráðs er Jóhanna Gunnlaugsdóttir, vísinda- og þróunarsviði.

 

Vísindaráð skipa

Gísli H. Sigurðsson læknir
            (formaður), tilnefndur af læknaráði Landspítala

Guðrún Kristjánsdóttir
            hjúkrunarfræðingur (varaformaður), tilnefnd af hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands

Arnar Geirsson
            læknir, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands

Helga Gottfreðsdóttir
            hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala

Jón Friðrik Sigurðsson
            sálfræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala

Jóna Freysdóttir
            náttúrufræðingur, tilnefnd af forstjóra Landspítala

Sigurður Yngvi Kristjánsson
            læknir, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands

Þorvarður Jón Löve
            læknir, tilnefndur af læknaráði Landspítala

Þórarinn Guðjónsson
            náttúrufræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala

Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir
            hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala

 

Varamenn

Anna Margrét Halldórsdóttir
            læknir, tilnefnd af læknadeild Háskóla Íslands

Auðna Ágústsdóttir
            hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala

Bertrand Lauth
            læknir, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands

Herdís Sveinsdóttir
            hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands

Inga Reynisdóttir
            náttúrufræðingur, tilnefnd af forstjóra Landspítala

Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
            læknir, tilnefnd af læknaráði Landspítala

Ingibjörg Gunnarsdóttir
            næringarfræðingur, tilnefnd af forstjóra Landspítala

Jón Jóhannes Jónsson
            læknir, tilnefndur af læknaráði Landspítala

Paolo Gargiulo
            verkfræðingur, tilnefndur af forstjóra Landspítala

Sigríður Zoëga
            hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af hjúkrunarráði Landspítala




Þetta vefsvæði byggir á Eplica