Dagskrá
Miðvikudagur 29. apríl í K-byggingu kl. 11:30
Kynning á klínísku rannsóknasetri Landspítala og Háskóla Íslands
Kristján Erlendsson, framkvæmdastjóri kennslu, vísinda og þróunar
Opnun veggspjaldasýningar sem mun standa til 7. maí
Höfundar veggspjalda verða á staðnum - Léttar veitingar á boðstólum
Miðvikudagur 29. apríl í Hringsal kl. 13:00–16:30
Fundarstjóri: Inga Þórsdóttir forstöðumaður Næringarstofu og prófessor
kl. 13:00–13:15 Ávarp ráðherra
kl. 13:15–13:25 Frá Vísindaráði
Gísli H. Sigurðsson yfirlæknir og prófessor, formaður Vísindaráðs
kl. 13:25–14:00 Gestafyrirlestur:
Vilmundur Guðnason forstöðulæknir Hjartaverndar
Notkun segulómunar af heila í faraldsfræði – Öldrunarrannsókn Hjartaverndar
kl. 14:00–14:15 Ungur vísindamaður ársins á Landspítala verðlaunaður
og vísindamaðurinn heldur stutt erindi um rannsóknir sínar
kl. 14:15–14:30 Kaffihlé
kl. 14:30–14:35 Heiðursvísindamaður ársins á Landspítala
Kristján Erlendsson framkvæmdastjóri kennslu, vísinda og þróunar tilkynnir um
heiðursvísindamann ársins á og afhendir viðurkenningu
kl. 14:35–15:10 Fyrirlestur
Heiðursvísindamaður ársins flytur fyrirlestur um niðurstöður rannsókna sinna
kl. 15:10–16:00 Úthlutun styrkja úr Vísindasjóði
Hulda Gunnlaugsdóttir forstjóri afhendir styrki úr Vísindasjóði
Fundarslit
Áhugavert í hádeginu - Gangið við í K-byggingunni!
Veggspjaldahöfundar halda stutta fyrirlestra:
kl. 12:15–12:45 Mánudagur 4. maí
Erik Brynjar Schweitz Eriksson deildarlæknir
Hefur meðferð með þunglyndis- og kvíðalyfjum áhrif á árangur HAM
meðferðar hjá hópi í heilsugæslu?
Þorbjörg Sóley Ingadóttir hjúkrunarfræðingur
Aukin lífsgæði og færri sjúkrahúsinnlagnir: Árangur stuðningsmeðferðar fyrir fólk með
langvinna lungnateppu og fjölskyldur þeirra
kl. 12:15–12:45 Þriðjudagur 5. maí
Ívar Axelsson meistaranemi
Æðaþelsfrumur gegna lykilhlutverki í myndun greinóttrar formgerðar í lungum
Sólveig Helgadóttir læknanemi
Bráður nýrnaskaði eftir kransæðahjáveituaðgerðir á Íslandi
kl. 12:15–12:45 Miðvikudagur 6. maí
Gunnar Sigurðsson yfirlæknir
LRP5 genið og beinþynning: Algengar breytingar í geninu hafa lítil en marktæk áhrif á
beinþéttni en sjaldgæfari stökkbreytingar hafa veruleg áhrif í nokkrum íslenskum fjölskyldum
með beinþynningu
Ari Kárason sameindalíffræðingur
Ættgengi sóragigtar er sterk í fjóra ættliði
Allir velkomnir
Vísindaráð Landspítala og skrifstofa kennslu, vísinda og þróunar