04. tbl. 95. árg. 2009

Umræða og fréttir

Mynd mánaðarins. Höskuldur Baldursson

Sennilega myndataka fyrir sjúkraskrá. Sjúklingur á Landakoti með skaddaða mjöðm, tekið fyrir Matthías Einarsson lækni. Ljósmyndari: Magnús Ólafsson, MAÓ 2842 Ljósmyndasafn Reykjavíkur.

 

Undanfarna mánuði hafa birst hér í blaðinu gamlar myndir undir heitinu „Mynd mánaðarins±. Oftast hafa þetta verið myndir af læknum sem nú eru horfnir af sjónarsviðinu. Við brjótum nú í blað og birtum hér mynd af sjúklingi. Um sjúkling þennan vitum við ekkert umfram það sem ritað er á myndina, að þetta er sjúklingur Matthíasar Einarssonar og myndin tekin á Landakotsspítala þann 26. október 1931.

Matthías Einarsson var einn kunnasti og afkastamesti skurðlæknir landsins á árunum milli heimsstyrjalda. Hann útskrifaðist úr Læknaskólanum 1904 og var starfandi læknir hérlendis frá 1905, fyrst við frakkneska sjómannaspítalann sem stóð við Lindargötu (er nú tón-menntaskóli) og síðan við St. Jóseps-spítala að Landakoti. Þar varð hann yfirlæknir 1934 og gegndi því starfi þar til hann lést 1948. Á þessum tímum var framhalds- og sérfræðimenntun lækna ekki eins formföst og skipulögð og nú er. Í æviágripi Matthíasar segir að hann hafi siglt öðru hverju eftir 1905 með nokkurra ára millibili. Það kann að skýra að hann fær ekki viðurkenningu sem sérfræðingur í handlækningum fyrr en 1923. Matthías fékkst við allar tegundir skurðlækninga, enda vart um annað að ræða á þeim tíma. Undirritaður minnist þess frá fyrstu starfsárum eftir sérnám að alltaf öðru hvoru sá maður sjúklinga sem Matthías hafði haft til meðferðar og gert á skurðaðgerðir sem nú myndu flokkast sem stærri orthópaedískar aðgerðir.

Þótt örlög þessa sjúklings séu okkur ókunn hljótum við þó að undrast hvað veldur þessari miklu bæklun. Maðurinn er með mikla dextroconvex lumbar scoliosis. Auk þess sést sérkennilegur inndráttur í húð á miðju lumbal svæði (fistilör?). Gríðarleg adductionskreppa er í vinstri mjöðm og hugsanlega lið-hlaup í vinstri mjaðmarlið, samanber áberandi útstandandi trochanter major. Undirritaður minnist þess þó ekki að hafa nokkru sinni séð slíka kreppu í fullri extension eins og hér sést. Yfirleitt er einhver flexionsstaða samfara adductionskreppu, til dæmis við septiskar eða tbc. sýkingar í mjaðmarlið. Ef orsök skekkjunnar í mjaðmargrind er adductionskreppa eða anchylosis í vinstri mjaðmarlið vekur það furðu að maðurinn stendur að því er best verður séð í báða fætur (hæla) þannig að vinstri fótleggur er anatómískt mun lengri en sá hægri nema sá hægri sé verulega krepptur í mjöðm og hné sem ekki virðist þó vera. Eins sést illa hvort einhver rýrnun er í hægri ganglim.

Einhverjar tilgátur um sjúkdómsgreiningu?

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica