11. tbl 93. árg. 2007

Umræða og fréttir

Tæknipistill 2. Kíkjum heim í frímínútum. Davíð B. Þórisson

Davíð B. ÞórissonFyrir nokkru var ég að keyra um á svarta Nissan bílnum mínum þegar ég óvænt en til mikillar gleði uppgötvaði að á milli framsætanna er bollahaldari sem hægt er að draga út og geyma kaffibollann í. Eftir þetta hef ég átt auðveldara með að brosa á leið minni í vinnuna enda áhyggjulaus af því að sulla niður ilmandi kaffinu í morgunumferðinni.

Stundum uppgötvum við nýjungar sem gera okkur lífið þægilegara. Enn skemmtilegara er þó að uppgötva nýjungar sem breyta lífi- eða lífsrútínu okkar til hins betra. Persónulega er ég í stöðugri leit að nýjungum sem gera dagsrútínuna fljótvirkari og skilvirkari ? að ná að kreista út þessa auka klukkustund úr sólarhringnum sem okkur öll vantar svo sárlega. Læknastéttin er á hlaupum frá frá fyrstu til seinustu mínútu vinnudagsins en er jafnframt í þeirri sérstöðu að inn á milli verkefna myndast dauðir tímar sem nýtast illa eða ekki. Því langar mig til að deila með ykkur uppgötvun sem ég gerði á sínum tíma og hefur margfaldað afköst mín yfir daginn. Það er mín reynsla að nánast enginn kollega minna þekkja til þessa tóls og því get ég ekki ímyndað mér annað en að þessi uppgötvun geti komið mörgum lesendum til góða.

Hvað gerir Remote Desktop fyrir mig?

Um er að ræða Remote Desktop (RD) - smáforrit sem er innbyggt í Windows stýrikerfið og því til staðar á öllum PC tölvum. Það sem RD gerir er að tengja þig við aðra tölvu þannig að það sé eins og þú sért sestur fyrir framan viðkomandi vél. Stór gluggi opnast og öll forrit og gögn sem eru á hinni tölvunni eru nú komin í tengigluggann. Öll gögn og forrit eru nú aðgengileg eins og þú værir staddur fyrir framan viðkomandi tölvu. Möguleikarnir sem opnast með þessu eru gríðarlegir enda getur þú með þessu tengst heimatölvu þinni hvaðan sem er á í heiminum svo lengi sem tölvurnar tvær eru tengdar Internetinu. Sem er ekki óalgengt í dag!

Hvað þýðir þetta fyrir hinn venjulega tölvunotanda? Tökum nokkur praktísk dæmi.

  • Outlook-póstforritið þitt er nú opið eins og heima og þú hefur strax aðgang að kontakt-lista, skipulagsbók, verkefnalista og tölvupósti. Þú getur auðveldlega sent út póst frá heimanetfanginu þínu án þess að skrá þig inn á flókið vefviðmót fyrst.
  • Öll skjöl á tölvunni hinum megin eru nú aðgengileg og sömuleiðis forritin sem lesa þau. Sjálfur safna ég gjarnan tímaritagreinum sem ég tel skipta máli fyrir starf mitt. Ég nota PDF forrit til að strika yfir aðalatriðin með rafrænum, gulum penna og vista svo skjalið aftur þannig að þetta sé geymt. Með RD tengingunni get ég gert þetta án þess að þurfa að færa greinasafnið á milli tölva með USB kubb eða flóknum tölvupóstsendingum. Gögnin eru alltaf geymd á sama stað, á heimatölvunni. Sama á við um öll önnur gögn sem ég hef safnað að mér, hvort sem er Powerpoint fyrirlestrar, Word-skjöl, hljóðskrár, myndir og myndbönd sem ég hef safnað að mér til að hjálpa mér í klínískri vinnu.
  • Þar sem ég kemst í öll forrit sem ég hef sett upp á heimatölvunni er ég ekki háður því að þau séu sett upp á vinnutölvunni. Ég nota reglulega flókin myndvinnsluforrit til að klippa til og laga myndir sem ég hef komist yfir. Með RD tengingunni get ég unnið í myndunum hvort sem ég er heima hjá mér eða við vinnutölvuna.
  • Oft erum við búin að stilla vafrarann þannig að hann man leyniorð og stillingar á netsíðum sem við erum að skoða. Það getur verið algjörlega óþolandi að komast ekki inn á síður í öðrum tölvum þegar maður man ekki aðgangsorðin. Með RD tengingu getur þú notað vafrarann heima og þetta vandamál er úr sögunni.
  •  Öðru hvoru þarf ég að rifja upp hjartahljóð sem ég hef tamið mér að hlusta eftir. Hljóðskrárnar eru að sjálfsögðu allar geymdar í heimatölvunni og því er auðvelt að hlusta á þær í gegnum RD tenginguna. Þegar bið er eftir næsta sjúkling get ég jafnvel sett lappir upp á borð og hlustað á sinfoníur Beethovens úr heimatölvunni.

Í raun er hægt að tengjast hvaða nettengdri tölvu sem er. Auk þess að tengjast heim úr vinnutölvunni er einnig hægt að tengjast öðrum tölvum sem eru á sama neti. Þannig getur þú t.d. tengst tölvu sem er annars staðar á vinnustaðnum eða stýrt öðrum tölvum heima hjá þér úr móðurtölvunni. Við ætlum í þessum pistli bara að skoða tengingu heim úr vinnutölvunni - við ætlum að skreppa heim í frímínútunum!

Gangi ykkur vel!

 

www.lis.is



Þetta vefsvæði byggir á Eplica