11. tbl 93. árg. 2007
Ritstjórnargrein
Áfangaskýrsla. Jóhannes Björnsson
Lesendur Læknablaðsins munu greina nokkrar útlitsbreytingar í þessu hefti. Sá sem þetta ritar er enginn sérstakur fylgismaður breytinga breytinganna einna vegna. Sumir eru vafalaust annarrar skoðunar, og er hugsanlegt að tími einhvers konar fataskipta sé upp runninn. Sú ritstjórn Læknablaðsins sem lauk ferli sínum í nóvember 2005 breytti útliti blaðsins verulega og voru allar þær breytingar til framfara, ekki sízt umbreytingin í A-4 stærð. Önnur nýjung fyrri ritstjórna var sömuleiðis lofsverð, þ.e.a.s. nýtt listaverk á hverri forsíðu. Tiltekinn aðili, sérmenntaður á sviðinu, velur forsíðuna, upplýsir um listamanninn og skýrir verkið fyrir þeim okkar sem minna mega sín í sjónlistadeildinni. Undirritaður bíður forsíðunnar í hverjum mánuði með nokkurri eftirvæntingu enda ekki ólíklegt að sum þeirra listaverka sem fyrst birtust hér gætu öðlazt frægð og útbreiðslu, t.d. að því marki, að falsarar fengju á þeim augastað. Er þá sízt verra að geta leitað uppruna og forvarið verkið á forsíðu félagsrits íslenzkra lækna.
Útlitsbreytingarnar nú eru veigaminni en þær sem fyrr getur. Ritstjórn vill með þeim reyna að gera efni blaðsins aðgengilegra lesendum en verið hefur, sérlega með því að bæta og færa út efnisyfirlit. Með öðrum breytingum er þess freistað að auðkenna aðsent efni eftir tegund þess: vísindagreinar, yfirlitsgreinar, sjúkratilfelli, annað aðsent efni, þar með talinn félagslega hlutann. Ritstjórn óskar eftir og er þakklát viðbrögðum lesenda við þessum breytingum og gaumgæfir allar tillögur til framfara.
Heimsóknum á heimasíðu Læknablaðsins hefur fjölgað umtalsvert undanfarin ár, úr tæplega 35 þúsund árið 2003 í ríflega 105 þúsund árið 2006, þær hafa þannig þrefaldazt á fjórum árum. Það sem af er árinu 2007 virðist enn um að ræða verulega fjölgun. Vísindagreinar blaðsins urðu aðgengilegar á vef National Library of Medicine á útmánuðum árið 2005 og nú hefur allt fræðiefni blaðsins allt frá árinu 2000 verið vistað þar. Þótt að svo stöddu sé ekki tæknilega unnt að aðgreina heimsóknir innan lands og utan, er óhætt að ætla að MedLine eigi sinn þátt í fjölgun heimsóknanna. Greinahöfundar verða í vaxandi mæli varir við alþjóðavæðingu Læknablaðsins, fyrst og fremst með því að erlendir lesendur hafa við þá beint samband. Vitað er um a.m.k. eitt vísindaverkefni með erlendum aðilum, sem beinlínis er tilkomið vegna aðgengis erlendra lesenda að Læknablaðinu.
Eins og áður hefur verið á minnzt hefur sitjandi ritstjórn eytt umtalsverðum tíma í að setja fram vinnuramma blaðsins. Nú eiga hverjum þeim sem sendir efni til blaðsins að vera ljósar reglur um uppbyggingu, framsetningu og lengd efnis í hverjum flokki. Ritstjórnin hefur sömuleiðis skerpt á innri vinnureglum sínum og meðal annars skilgreint það efni sem Læknablaðið birtir eða birtir ekki. Læknablaðið á að vera sá vettvangur þar sem læknar geta reifað og, ef því er að skipta, rifizt um mál er varða heilbrigðisþjónustu í víðum skilningi. Óski læknar hins vegar að jafna hver um annan á einstaklingsgrundvelli verða þeir að leita til annarra miðla. Allar leiðbeiningar varðandi innsent efni eru aðgengilegar lesendum blaðsins, ýmist á prent- eða netútgáfu þess.
Í þessu hefti er viðtal við Ara Jóhannesson, lækni. Alþjóð veit, að þann 19. október sl. hlaut Ari bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar, sem veitt eru á samkeppnisgrundvelli fyrir ljóð, áður óbirt, sem send eru inn undir nafnleynd. Um það bil fjörutíu ljóðabálkar bárust. Ari og ljóð hans eru enn eitt dæmi um samtvinnun og skyldleika les beaux arts við læknisstarfið, en þessi tengsl eru alda- eða árþúsundagömul og umfram það sem tilviljun ein myndi valda. Læknablaðið óskar Ara til hamingju.
Ráðningartíma núverandi ritstjórnar lýkur, með einni undantekningu (Tómas Guðbjartsson), þann 30. nóvember nk. Einn ritnefndarmaður, Karl Andersen, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi starfa. Karl hefur starfað lengst allra ritnefndarmanna, eða í átta ár. Ritstjórn öll, sérlega undirritaður, þakkar Karli samstarfið, ekki sízt á tímum ritstjórnarumróts fyrir tveimur árum. Hvort einhverjir núverandi ritnefndarmanna munu sitja áfram, og þá hverjir, mun útgáfustjórn blaðsins ákveða á næstu vikum.