Umræða og fréttir
  • 2004-05-u02-fig1

FSA er háskólasjúkrahús

Stjórn Læknafélags Íslands hélt til Akureyrar og efndi þar til fundar föstudaginn 26. mars. Margt bar á góma, svo sem kostnaðarvitund lækna, innflutning sjúklinga og útflutning heilbrigðisþjónustu, að ógleymdu öryggi sjúklinga sem nánar er fjallað um í tengslum við formannafund LÍ. Síðast en ekki síst hlýddu stjórnarmenn á heimamanninn Þorvald Ingvarsson lækningaforstjóra rökstyðja af hverju Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri (FSA) beri nafnbótina háskólasjúkrahús með réttu.

Þorvaldur greindi frá því að á FSA færi nú fram stefnumótun sem þegar hefði skilað þeim árangri að skilgreiningu á starfsemi sjúkrahússins hefði verið breytt. Samkvæmt þeirri gömlu er FSA sérgreinasjúkrahús fyrir Norður- og Austurland og aðalvarasjúkrahús. Nýja skilgreiningin er sú að FSA sé háskólasjúkrahús sem veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu, þekkingarstofnun sem leggur metnað sinn í að stunda auknar rannsóknir og kennslu, auk þátttöku og þróunar á sviði heilbrigðisþjónustu. Einnig er FSA aðalvarasjúkrahús landsins með tilliti til almannavarna og miðstöð sjúkraflugs.



Sjúkraflug og sérgreinar

Þorvaldur sagði að sérstaða FSA væri margvísleg. Það væri eina sérgreinasjúkrahúsið utan höfuðborgarsvæðisins, þar væri eina gjörgæslan, eina geðdeildin, eina myndgreiningardeildin og eina kennslusjúkrahúsið á landsbyggðinni. Miðstöð sjúkraflugs fyrir landsbyggðina er á Akureyri en þar var henni valinn staður vegna þess að þaðan er álíka langt flug í alla landshluta. Síðast en ekki síst væru flestöll ferliverk sem unnin eru á Akureyri gerð inni á sjúkrahúsinu en ekki á stofum úti í bæ og það styrkti kennsluhlutverk spítalans.

Kennsla hefur um alllangt skeið verið snar þáttur í starfsemi FSA. Þar er kennt nemum í hjúkrunarfræði og iðjuþjálfun við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri en einnig koma þangað í almennt starfsnám læknanemar á öðru og þriðja ári og nemar á fjórða og sjötta ári sækja þangað þjálfun í svæfingarlækningum. Við þetta má bæta að sjúkraflutningaskólinn hefur aðsetur á Akureyri þótt kennsla í honum fari fram víða um land.

Enn má geta þess að spítalinn hefur lagt verulega áherslu á kennslu- og fræðslufundi sem sendir eru út um allt land með aðstoð fjarfundabúnaðar. Þar kemur fyrir að allt að 300 manns fylgist með fræðslunni á 20 stöðum. Þessi starfsemi hefur svo ýtt undir rafræna þróun á FSA en þar er verið að gera ýmsar tilraunir með rafrænar sendingar á myndgreiningum, lyfseðlum, tilvísunum og læknabréfum eins og frá var greint í janúarhefti Læknablaðsins.



Fimm rannsóknastöður

Rannsóknir eru undirstaða framfara í læknavísindum og stjórnendur FSA vilja ýta undir þær með því að gera samninga við háskólastofnanir. Sett hefur verið á fót heilbrigðisvísindastofnun sem er sameiginlegt verkefni FSA og Háskólans á Akureyri og hafa verið auglýstar lausar þrjár stöður við þá stofnun. Framlag FSA er 20% starfshlutfall við rannsóknir. Sjúkrahúsið hefur einnig gert samning við Háskóla Íslands um samstarf og í krafti hans hafa verið auglýstar tvær stöður sem veittar verða frá og með næsta hausti. - Ég lít svo á að ef heilbrigðisþjónusta á að vera til staðar á landsbyggðinni til framtíðar þá verður háskólastarfsemi að samtvinnast henni meira en orðið er. Heilbrigðiskerfið á landsbyggðinni þarf að taka þátt og vera órjúfanlegur hluti af kennslu, rannsóknum og þróun í framtíðinni, sagði Þorvaldur.

Hann bætti því við að þeir sem hljóta þessar nýju stöður geti sótt um akademískt hæfi og fengið stöðuheitin prófessor, dósent eða lektor eftir því hvernig þeir eru metnir. Hann sæi því ekki annað en að kennsluhlutverk spítalans væri gulltryggt til frambúðar og að spítalinn bæri nafnbótina háskólasjúkrahús með réttu.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica