Umræða fréttir

Minning: Fríða Guðmundsdóttir barnalæknir

Fríða Guðmundsdóttir barnalæknir lést á líknardeild Landspítalans þann 20. desember síðastliðinn, langt fyrir aldur fram. Hún greindist með illkynja heilaæxli í janúar 2001 sem ekki réðst við þrátt fyrir tvær stórar aðgerðir, geislameðferð og krabbameinslyfjagjöf.

Fríða lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík, náttúrufræðideild, 1987. Hún hóf nám við læknadeild Háskóla Íslands í september sama ár og útskrifaðist 1993 með fyrstu einkunn. Hún starfaði sem aðstoðar- og deildarlæknir á ýmsum deildum Landspítalans þar til hún fluttist til West-Hartford í Connecticut-fylki í Bandaríkjunum í maí 1997 og hóf sérnám í barnalækningum. Hún fylgdi þar með í fótspor fjölmargra íslenskra lækna sem áður höfðu stundað sérnám við University of Connecticut. Það var lengi regla hjá Ed Zalneraitis, yfirmanni barnalæknanámsins þar, að geyma eina stöðu á ári handa Íslendingi, enda reyndust unglæknar þeir sem Hörður Bergsteinsson sendi honum alltaf vel. Allir samnemendur Fríðu og Ed fylgdust náið með veikindum hennar og stóðu fyrir söfnun á síðasta vori, gagngert til að hún kæmist með Sævari eiginmanni sínum og börnum til Flórída í apríl síðastliðnum. Sú ferð var farin og tókst frábærlega. Ed hafði samband við mig nýlega og sagði:

"I remember Frida as a strong and dedicated resident here at the University of Connecticut. She was not only a brilliant pediatrician, but a humanist who dedicated her professional life to meeting all the needs of her patients. She would never provide less than the best care possible, and would not allow others to provide less than she thought was needed either. We all learned from Frida, and rededicated ourselves to the mission that we set out to do, at least in part because of her."

Fríða útskrifaðist barnalæknir í júní 2000 og stóðst ameríska barnalæknaprófið með glæsibrag seinna það sama ár.

Sumarið 2000 flutti Fríða ásamt Sævari Leifssyni eiginmanni sínum og börnum þeirra, Birtu Rún 10 ára, Viktori 6 ára og Leifi 5 ára, til Rising Sun í Maryland-fylki. Þar festu þau kaup á hestabúgarði og Fríða hóf frekara nám í gigtsjúkdómum barna við Barnaspítalann í Fíladelfíu í Pennsylvaníu-fylki (CHOP). Hún kunni vel við sig á nýjum stað og varð strax vinsæl hjá unglæknum á CHOP vegna þess hve ljúf hún var í viðmóti og hjálpfús. Terri Finkel yfirlæknir gigtardeildarinnar lýsir Fríðu sem þróttmikilli og áhugasamri en fyrst og fremst sem heillandi persónu. Ég hef fengið kveðjur frá foreldrum sjúklinga hennar sem hæla henni fyrir fagmennsku og áreiðanleika. Ég minnist sérstaklega sjö ára drengs með alvarlegan gigtsjúkdóm og krampa. Foreldrar hans leituðu mikið til Fríðu, oft til að greina frá versnandi einkennum hans en líka til að leyfa henni að fylgjast með ef vel gekk. Þau litu á Fríðu sem hluta af fjölskyldunni. Ég lít á það sem merki um afburðalækni, enda var Fríða það svo sannarlega.

Gigtardeildin á CHOP hefur stofnað sjóð til minningar um Fríðu. Terri Finkel skrifaði mér: "We have established - The Frida Fund for Training in Pediatric Rheumatology -. The response to this has been tremendous, with many people already having donated to the fund, in Frida's memory. The Frida Fund will carry on Frida's mission, by fostering the training of fellows in evidence-based clinical medicine and in ground-breaking basic and clinical research, leading to an understanding of the causes and cure of childhood rheumatic disease."

Fríða var jafnframt mikil áhugamanneskja um kynningu Íslands, íslenska hestsins og íslenska smalahundsins í Bandaríkjunum. Hún stóð meðal annars fyrir hestamannamóti eina helgi í maí síðastliðnum sem heppnaðist vonum framar.

Fríða sýndi ótrúlegan kraft í veikindum sínum. Hún kvartaði aldrei og naut þeirra stunda sem buðust til hins ýtrasta. Það má vera að sjúkdómurinn hafi náð yfirhöndinni að lokum en hann náði aldrei að buga hana, né heldur að dempa hennar innri fegurð.

Fyrir hönd fjölskyldu Fríðu vil ég þakka Huldu Brá Magnadóttur heilaskurðlækni og frábærri vinkonu sem kom í skyndi til Fíladelfíu í september þegar ástand Fríðu var alvarlegt og hjálpaði okkur í gegnum erfiðar stundir. Þá viljum við þakka vinahjónum frá Ameríku, þeim Óla og Hrefnu og Tryggva og Ástu, og vinkonum Fríðu úr læknadeildinni, Gerði, Helgu, Soffíu og Hrönn, sem létu ekkert aftra sér frá því að koma úr sérnámi sínu til að vera hjá henni. Að lokum viljum við þakka Friðbirni Sigurðssyni og Valgerði Sigurðardóttur krabbameinslæknum sem ásamt starfsfólki sínu náðu að gera þessar síðustu vikur bærilegar.

Ég vil þakka Fríðu fyrir ótrúlega vináttu og fyrir allar okkar stundir saman. Við fylgdumst hvor með annarri frá unglingsárum, gegnum menntaskóla, læknadeild og nú síðast í sérnámi erlendis. Vinátta okkar gerði mig að betri manneskju, móður og lækni.





barnataugalæknir í Fíladelfíu

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica