Umræða fréttir

Reglur Fjölskyldu- og styrktarsjóðs sjúkrahúslækna og heilsugæslulækna

Fjölskyldu og styrktarsjóður sjúkrahúslækna og heilsugæslulækna er stofnaður annars vegar með kjarasamningi Læknafélags Íslands við sjúkrahúslækna og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og St Fransiskusspítala og hins vegar með úrskurði kjaranefndar við heilsugæslulækna.

Tekjur sjóðsins koma frá launagreiðendum lækna og samsvara 0,33% af heildarlaunum sjúkrahúslækna og heilsugæslulækna.

Sjóðurinn hefur það hlutverk að bæta greiðslur sjóðfélaga í fæðingarorlofi þar sem sýnt er að viðkomandi hefði notið betri réttar samkvæmt reglum kjarasamnings sjúkrahúslækna dagsettum 1. desember 1997 og reglugerð nr. 410/1989 um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins.

Skilyrði fyrir réttindum til greiðslna úr sjóðnum er að sjóðfélagi hafi notið betri réttinda samkvæmt eldri reglum. Þeir sjóðfélagar sem tekið hafa fæðingarorlof eftir gildistöku nýrra laga 1. janúar 2001 og hefðu notið betri kjara samkvæmt eldri reglum eiga rétt á greiðslum úr sjóðnum sem nemur þessum mismun.

Sjóðurinn mun að auki veita styrki þeim sjóðfélögum sem verða fyrir óvæntu tekjutapi vegna ólaunaðrar fjarveru frá læknisstörfum vegna veikinda sjóðfélaga eða náinna vandamanna auk þess að veita styrki þeim sem verða fyrir óbættum áföllum vegna óvæntra starfsloka eða annarra óvæntra áfalla.

Umsóknareyðublöð er hægt að fá á skrifstofu Læknafélags Íslands eða á heimasíðu félagsins. Reiknilíkan fyrir samanburð á fæðingar- og foreldraorlofi er að finna á heimasíðu Læknafélags Íslands, www.icemed.is

Reglur sjóðsins eru eftirfarandi:



1. gr.

Fjölskyldu- og styrktarsjóður sjúkrahúslækna og heilsugæslulækna, hér eftir nefndur FOSSH, er annars vegar stofnaður með kjarasamningi Læknafélags Íslands v/sjúkrahúslækna og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og St Fransiskusspítala dags. 2. júlí 2001 og hins vegar með úrskurði kjaranefndar vegna heilsugæslulækna dags. 4. desember 2001.

Sjóðurinn lýtur sérstakri stjórn.

Heimili og varnarþing sjóðsins er á starfstöð Læknafélags Íslands.



2. gr.

Hlutverk FOSSH er skv. greindum kjarasamningi og úrskurði kjaranefndar :

1. að taka við iðgjöldum launagreiðanda og ávaxta þau,

2. að taka við umsóknum, ákvarða og annast greiðslur til sjóðsfélaga í fæðingarorlofi, þegar fyrir liggur samkvæmt útreikningum að viðkomandi hefði notið betri réttar skv. reglum kjarasamnings sjúkrahúslækna dags. 1. desember 1997 eða reglugerð nr. 410/1989 um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins, er giltu um fæðingarorlof sjóðfélaga fyrir gildistöku laga nr. 95/2000, en sjóðfélagi nýtur skv. lögum nr. 95/2000. Skilyrði réttinda til greiðslna úr sjóðnum, er að læknir hafi á einhverjum tíma notið framangreindra réttinda til fæðingarorlofs eins og þau voru fyrir gildistöku laga nr. 95/2000. Uppgjör vegna barnsburðarleyfis getur eingöngu varðað lækni í starfi í samræmi við lög um fæðingarorlof nr. 95/2000 og reglur kjarasamnings dags. 1. desember 1997 / reglugerð nr. 410/1989 um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins.

3. Samkvæmt ákvörðun sjóðstjórnar er hlutverk sjóðsins að öðru leyti, að veita sjóðfélögum styrki, sjá. 8. gr., samkvæmt rökstuddri ákvörðun sjóðstjórnar hverju sinni, þannig að komið sé til móts við:

a) tekjutap sjóðfélaga vegna ólaunaðrar fjarveru frá læknisstörfum vegna veikinda sjóðfélaga eða náinna vandamanna hans eða vegna annarra sérstakra persónulegra aðstæðna

b) óbætt áföll vegna óvæntra starfsloka eða annarra óvæntra áfalla sjóðfélaga.



3. gr.

Sjóðsaðild eiga:

1. læknar á sjúkrahúsum, sem starfa skv. kjarasamningi Læknafélags Íslands f.h. sjúkrahúslækna og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, sbr. 5. gr.

2. læknar, sem starfa á sjálfseignarstofnunum eða öðrum stofnunum, hjá félögum eða fyrirtækjum skv. starfskjarasamningum er taka mið af kjarasamningi sjúkrahúslækna á hverjum tíma og launagreiðandi þeirra greiðir iðgjöld til sjóðsins sbr. 5. gr.

3. heilsugæslulæknar á starfskjörum samkvæmt úrskurði kjaranefndar

4. aðrir læknar sem óska eftir aðild að sjóðnum og launagreiðandi þeirra greiðir iðgjöld til sjóðsins, sbr. 5. gr.

Réttindi til styrkja skulu vera bundin því starfshlutfalli, sem læknir gegnir á þeim tíma sem umsókn kemur fram, nema sérstakar aðstæður mæli gegn þeirri niðurstöðu að mati sjóðstjórnar.

Réttur til styrkúthlutunar úr sjóðnum er bundinn því að iðgjald hafi verið greitt vegna sjóðfélaga í a.m.k. þrjá mánuði áður en tekjutap eða útgjöld, sem veita rétt til styrks úr sjóðnum, áttu sér stað. Sjóðstjórn getur vikið frá þessu skilyrði við sérstakar aðstæður sjóðfélaga.

Sjóðurinn bætir tímabundið tekjutap á vinnumarkaði. Réttur til framlags úr sjóðnum fellur niður þegar sjóðfélagi hættir störfum og iðgjöld hætta að berast sjóðnum.

Sjóðstjórn er þó heimilt í sérstökum tilvikum að veita lækni styrk úr sjóðnum allt að fimm árum eftir að læknir hætti störfum og iðgjöld bárust sjóðnum vegna starfa hans.

Sjóðstjórn getur hafnað umsókn sjóðfélaga skv. 3. tl. 2. gr. með rökstuðningi, hafi sjóðfélagi notið framlags úr sjóðnum samkvæmt þeirri heimild á síðustu tólf mánuðum fyrir dagsetningu nýrrar umsóknar til sjóðsins.



4. gr.

Stjórn sjóðsins skal skipuð þremur fulltrúum sjúkrahúslækna og einum fulltrúa heilsugæslulækna tilnefndum af stjórn Læknafélags Íslands til þriggja ára í senn og skal formaður tilnefndur sérstaklega.

Stjórnin skiptir með sér verkum.

Um hæfi stjórnarmanna til meðferðar einstakra mála fer eftir ákvæðum stjórnsýslulaga á hverjum tíma. Reynist stjórnarmaður vanhæfur til meðferðar einstaks máls skal stjórn Læknafélags Íslands tilnefna staðgengil hans til meðferðar málsins.

Stjórnarsamþykkt er lögleg ef a.m.k. þrír stjórnarmanna greiða henni atkvæði. Sjóðstjórn ber að rökstyðja niðurstöður sínar og afgreiðslu umsókna til sjóðsins í fundargerð, sem skal rituð á fundum stjórnar. Niðurstaða stjórnar er endanleg afgreiðsla máls.

Stjórnarfundir skulu haldnir svo oft sem þurfa þykir, - þó a.m.k. fjórum sinnum á ári. Umsóknir skulu afgreiddar innan átta vikna frá því að þær berast skrifstofu sjóðsins.

Skýrsla stjórnar sjóðsins, ásamt reglum sjóðsins skal birt í Læknablaðinu þegar endurskoðaðir reikningar sjóðsins liggja fyrir.



5. gr.

Tekjur sjóðsins eru:

a) Iðgjöld launagreiðanda, nema 0,33% af heildarlaunum sjóðsfélaga, sbr. kjarasamning sjúkrahúslækna dags. 2. júlí 2001 og úrskurð kjaranefndar dags. 4. desember 2001, - við stofnun allt frá 01. janúar 2001. Iðgjaldið skal greitt mánaðarlega eftirá skv. útreikningi launagreiðanda.

b) Vextir og verðbætur af innstæðum sjóðsins.

c) Aðrar tekjur.



6. gr.


Sjóðurinn greiðir allan kostnað af starfsemi sinni.

Stjórn sjóðsins hefur umsjón með sjóðnum og mælir fyrir um ávöxtun hans.

Læknafélag Íslands annast, með samningi við stjórn sjóðsins, almenna afgreiðslu fyrir sjóðinn, færslu bókhalds, undirbúning þess í hendur endurskoðanda og uppgjör opinberra gjalda vegna fyrirgreiðslu sem sjóðurinn veitir sjóðfélögum.



7. gr.

Reikningsár sjóðsins er almanaksárið.

Löggiltir endurskoðendur Læknafélags Íslands endurskoða reikninga sjóðsins. Skal endurskoðandi senda stjórn sjóðsins reikningana, með áritun sinni og athugasemdum fyrir 1. apríl ár hvert. Reikningarnir skulu jafnframt, ásamt skýrslu stjórnar, lagðir fram til kynningar á aðalfundi Læknafélags Íslands.

Skylt er að senda launagreiðendum, sem greiða til sjóðsins, endurskoðaða reikninga sjóðsins.



8. gr.

Starfsreglur um afgreiðslu umsókna og úthlutun styrkja:

1) Sækja þarf um framlög og styrki til sjóðsins á sérstöku umsóknareyðublaði.

Nauðsynleg gögn skulu fylgja umsókn í frumritum eða staðfestum afritum, s.s. læknisvottorð, vottorð launagreiðanda og önnur vottorð er varða erindið. Reikningar, sem framvísað er, skulu bera með sér nafn umsækjanda. Með umsókn um uppgjör vegna fæðingarorlofs skulu öll sömu gögn fylgja umsókn til sjóðsins og beint er til Fæðingarorlofssjóðs skv. lögum nr. 95/2000.

Stjórn sjóðsins getur óskað frekari gagna til upplýsinga um málsatvik hjá umsækjanda, telji hún þörf á því. Stjórn sjóðsins vinnur úr umsóknum og kynnir umsækjendum niðurstöður bréflega og með rökstuðningi með vísan í reglur sjóðsins eða mat stjórnar.

2) Styrkir skv. 3. tl 2. greinar.

Sjóðstjórn er heimilt að ákveða styrk til sjóðfélaga vegna ólaunaðrar fjarveru hans frá vinnu með jöfnum greiðslum í allt að þrjá mánuði:

vegna 70-100% starfs kr. 8.000,- fyrir hvern virkan dag.

vegna 25-69% starfs kr. 4.000,- fyrir hvern virkan dag.

Sjóðstjórn er heimilt að veita sjóðfélaga styrk úr sjóðnum með eingreiðslu allt að kr. 300.000,- vegna sérstakra aðstæðna sem hafa í för með sér launamissi eða veruleg sérstök fjárútlát sjóðfélaga.

Fjárhæðir þessar skulu endurskoðaðar 1. janúar ár hvert m.v. breytingar á vísitölu neysluverðs,- í fyrsta skipti 1. janúar 2003.

Af greiðslum til sjóðfélaga í fæðingarorlofi og af styrkjum, sem veittir eru skv. 3. tl. 2. greinar, ber sjóðnum að halda eftir og skila staðgreiðsluskatti og af greiðslum í fæðingarorlofi ber sjóðnum að halda eftir og skila lífeyrissjóðsframlagi sjóðfélaga og greiða og skila mótframlagi sjóðsins til lífeyrissjóðs viðkomandi, m.a. samningsbundnu viðbótarframlagi sé eftir því óskað.



9. gr.

Liggi fyrir lögmæt ákvörðun um að leggja sjóðinn niður skal stjórn hans taka ákvörðun um ráðstöfun eigna sjóðsins með almenna hagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi.



10. gr.

Sjóðstjórn skal endurskoða reglur sjóðsins fyrir 1. janúar 2003 og síðan a.m.k. á fimm ára fresti.







11. gr.

Þannig samþykkt í stjórn Fjölskyldu- og styrktarsjóðs sjúkrahúslækna og heilsugæslulækna á fundi stjórnar að Hlíðasmára 8, Kópavogi, hinn 11. desember 2001.



Reglur þessar taka þegar gildi.



Ástríður Jóhannesdóttir, formaður

Ebba Margrét Magnúsdóttir

Ólafur Þór Gunnarsson

Haraldur Ó. Tómasson

Stjórn Læknafélags Íslands tilnefndi stjórn FOSSH af hálfu sjúkrahúslækna á fundi stjórnar hinn 7. ágúst 2001. Að uppkveðnum úrskurði kjaranefndar dagsettum 4. desember 2001 tilnefndi stjórn Læknafélags Íslands fulltrúa heilsugæslulækna í stjórn sjóðsins hinn 11. desember 2001.

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica