Íðorðapistlar 1-130

103-Nærsýni, fjarsýni

Í 85. og 86. pistli (Lbl 1997; 83: 42 og 123) voru nokkur augnorð tekin til skoðunar, og þá eingöngu líffærafræðileg heiti sem notuð eru um hluta augans, oculus, og nánasta umhverfi þeirra. Annars hefur umræða um augnsjúkdómafræði ekki verið sérlega fyrirferðarmikil í þessum pistlum og undirritaður verður að viðurkenna að hann hefur ekki mikla tilfinningu fyrir því hversu mikið sé um vandamál á sviði íslenskra íðorða í þeirri grein. Ljóst er þó að augnlæknar þeirrar kynslóðar, sem nýlega er sest í helgan stein eða horfin yfir móðuna miklu, lögðu ríka áherslu á að nota íslensk fræðiheiti í viðræðum við sjúklinga sína. Undirritaður hefur orðið var við það að meðal yngri augnlækna eru einnig áhugamenn um varðveislu og gerð íslenskra augnfræðiheita. Þeir hafa þó ekki mikið haft sig í frammi á þessum vettvangi og beiðnir um aðstoð við myndun íðorða í nýjustu tækni augnlækninga hafa ekki verið margar. Þetta er ekki sett fram til umvöndunar, heldur til þess að reyna að vekja áhuga og umræðu og bjóða fram aðstoð ef hennar er þörf. Orðanefnd læknafélaganna er mikið í mun að safna íslenskum íðorðum og heitir á alla lækna að senda henni hugarsmíðir sínar. Sendingar þurfa ekki að vera ýkja formlegar eða hugmyndir ítarlega rökstuddar. Stutt ábending í síma og handskrifaður minnismiði geta gert sama gagn og formlegt bréf eða hátæknisending um Alnetið.



Gleraugu á Esjuna

Hugmyndin að umræðu um augnorð kom fram við lestur á frétt í Morgunblaðinu þann 14. ágúst 1998. Sagt var frá því að myndlistarmaðurinn Stefán Geir Karlsson hefði í hyggju að setja gleraugu á Esjuna í tilefni af því að Reykjavík verður ein af menningarborgum Evrópu árið 2000. Gleraugun eiga að vera nákvæm en risavaxin eftirmynd af gleraugum, sem Halldór Laxness notaði á sínum yngri árum, og standa sumarlangt.

Eins og svo oft áður vita menn í fyrstu ekki sitt rjúkandi ráð þegar stórkostlegar hugmyndir eru settar fram. Á annarri myndinni sem fylgir fréttinni hafa slík gleraugu verið sett með tölvutækni á eitt klettanefið sem skagar fram úr Esjunni. Ekki kemur beinlínis fram hvort þetta sé hugmynd listamannsins eða útfærsla blaðsins, en lesandinn fær auðveldlega þá tilfinningu að þarna sé verið að sýna fram á dulræn og söguleg tengsl fortíðar og nútíðar. Ævaforn klettarisinn er settur í það hlutverk að fylgjast með okkur örsmáum mannverunum um skamma hríð og við fáum að sjá að með okkur sé fylgst. Ekki spillir að minnast þess að í gegnum gleraugu Halldórs fengum við að sjá marga þættina í því sem við getum kallað "Íslendingseðlið" dregna skírum dráttum, óbilandi sjálfsbjargarviðleitni og niðurdrepandi umkomuleysi, ódrepandi dugnað og sinnulaust dugleysi, gamalgróið stolt og hagnýtan undirlægjuhátt, lævísa valdbeitingu og háleita draumóra. Mörgum líkaði ekki það sem þeir fengu að sjá, en eftir á getum við ef til vill sæst á að áminningar hafi verið þörf. Skyldi svo vera enn?



Nærsýni, fjarsýni

Undirritaður hnaut um þá skýringu að Esjan þyrfti gleraugu af því að hún væri orðin "fjarsýn". Þetta er ekki í fyrsta sinn sem undirritaður rekst á það að orðin fjarsýni og nærsýni virðast misskilin. Margir í nánasta kunningjahópnum eru komnir á þann aldur að lesgleraugun mega aldrei vera langt undan og í tilefni af því hefjast oft umræður um ókostina sem fylgja því að eldast. Sumir hafa aldrei áður þurft á gleraugum að halda og sjá vel frá sér, eru því fjarsýnir. Aðrir hafa gengið með gleraugu frá unga aldri, séð illa það sem fjarri er, en vel það sem næst þeim er, og hafa því verið nefndir nærsýnir. Undirrituðum finnst að þessi orð ættu að vera auðskilin og Íslensk orðabók Máls og menningar útskýrir þau mjög skilmerkilega, þó að Íðorðasafn lækna birti heitin myopia, nærsýni, og hyperopia, fjarsýni, án nokkurra skýringa.

Ekki er ætlunin að gera lítið úr hugmynd listamannsins, en líklegra er að öldungurinn Esjan hafi tapað nærsýni sinni og þurfi þess vegna lesgleraugu frá efri árum Halldórs, en ekki nærsýnisgleraugun frá yngri árum hans. Hitt er svo annað mál að við hin getum haft gott af því að klifra upp á Esjuna og horfa úr fjarska á samfélagið okkar í gegnum nærsýnisgleraugu Halldórs.



Lbl 1998; 84: 690
Til baka Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica