02. tbl. 112. árg. 2026
Umræða og fréttir
Lögfræði 58. pistill. Ekki gera ekki neitt. Dögg Pálsdóttir
Læknafélag Íslands (LÍ) hefur um árabil staðið fyrir málþingi á Læknadögum, oftast um einhver lögfræðileg efni sem talin eru gagnleg fyrir félagsmenn.
Á nýliðnum Læknadögum 2026 var málþing félagsins haldið í samvinnu við embætti landlæknis og þar fjallað um eftirlitshlutverk embættisins undir yfirskriftinni: Kvartanir, atvik og eftirlit með störfum lækna: Hvað gerir landlæknir?
Í lögum um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007 er fjallað um embætti landlæknis, verkefni þess, vinnulag og úrræði.
Í 4. gr. laganna eru meginhlutverk embættisins talin upp í 15 -stafliðum. Meðal þeirra eru að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu, heilbrigðisstarfs-mönnum og lyfjaávísunum. Þá skal embættið sinna kvörtunum almennings vegna heilbrigðisþjónustu. Í lögunum eru einnig fyrirmæli um það að til embættisins skuli tilkynna alvarleg atvik og hvernig embættið skuli rannsaka slík mál.
Alvarleg atvik eru skilgreind í lögunum sem óvænt atvik í heilbrigðisþjónustu sem valdið hefur eða hefði getað valdið sjúklingi alvarlegu tjóni, svo sem dauða eða varanlegum örkumlum. Óvænt atvik skilgreina lögin sem óhappatilvik, mistök, vanræksla eða önnur atvik í heilbrigðisþjónustu sem valdið hafa sjúklingi tjóni eða hefðu getað valdið sjúklingi tjóni.
Hafi eitthvað farið úrskeiðis hjá heilbrigðisstarfsmanni í störfum hans getur embætti landlæknis beitt viðkomandi eftirlitsúrræðum sem eru samkvæmt 14. og 15. gr. laga nr. 41/2007 tilmæli um úrbætur, áminning eða svipting starfsleyfis að fullu eða tímabundið. Um eftirlitsúrræðin er ítarlega fjallað í III. kafla laganna.
Á málþinginu fóru læknar og lögfræðingar, sem starfa hjá embætti land-læknis, yfir það með hvaða hætti embætt-ið sinnir þeim lögbundnu verkefnum, sem því eru falin, og rakin hafa verið hér að framan. Skýrt kom fram hversu mikilvægt það er að læknar, sem fá bréf frá embætti landlæknis vegna kvörtunarmáls, tilkynningarmáls eða eftirlitsmáls, sem stofnað hefur verið, sinni því að svara bréfum, sem frá embættinu berast. Það versta sem læknir gerir í slíkri stöðu er að gera ekki neitt. Undirstrikað var að alltaf er hægt að óska eftir fresti, ef lækni finnst hann þurfa rýmri tíma til svara eða upplýsingaöflun, sem hann metur nauðsynlega, er tímafrek.
Hér er vert að minna á það, sem fram kom hjá lögfræðingum LÍ, sem héldu erindi á málþinginu, að LÍ aðstoðar félagsmenn, sem fá bréf frá landlækni. Þetta er mjög mikilvæg þjónusta. Miklu skiptir að félagsmenn séu meðvitaðir um þessa þjónustu LÍ og leiti til félagsins í þessum kringumstæðum. Aðstoð LÍ getur falist í að gera drög að bréfi til að svara embættinu, fara yfir drög að bréfi sem félagsmaður er sjálfur búinn að gera og stundum, ef mál eru að mati félagsins fordæmisgefandi, að taka að sér beina hagsmunagæslu fyrir félagsmann.
Fram kom hjá starfsmönnum -embætt-is landlæknis að oftast lýkur þessum málum með því að læknir eða annar heilbrigðisstarfsmaður upplýsir málið með viðunandi hætti. Það er algengasta niðurstaða þessara bréfaskipta. Ef engu er svarað liggur í augum uppi að embættið fær ekki skýringar á því sem um er spurt. Þá þarf embættið að halda áfram að knýja á um svör, með þeim leiðum sem embættinu eru færar.
Á málþinginu fór Ólafur Þór Ævars-son geðlæknir yfir það hvað það er mikil-vægt að læknar sem eru í þessum kringumstæðum leiti sér stuðnings. Meðferð mála hjá embætti landlæknis tekur alltof langan tíma, fyrst og fremst vegna manneklu hjá embættinu. Það er mjög bagalegt og staðreynd sem LÍ hefur margsinnis gert athugasemd við bæði við embættið sjálft og heilbrigðisráðuneytið. Löng málsmeðferð hjá embættinu tekur á, skapar óvissu fyrir lækninn og er streituvaldandi. Þess vegna er svo mikilvægt að leita sér stuðnings. Læknar fyrir lækna er þjónusta sem LÍ hefur staðið fyrir um árabil. Í henni felst í jafningjastuðningi, sem hefur sýnt sig að vera gagnlegur.
Málþingið á nýliðnum Læknadögum var fjölsótt, Góðar og gagnlegar umræður spunnust í lok þess. LÍ telur þetta málþing og þær upplýsingar sem þar komu fram skipta máli fyrir félagsmenn. Þess vegna var ákveðið að taka málþingið upp. Upptaka af málþinginu er aðgengileg á innri vef heimasíðu LÍ. Félagsmenn eru hvattir til að horfa á upptökuna.
Í ávarpi sínu við setningu málþings LÍ á nýliðnum Læknadögum sagði Steinunn Þórðardóttir formaður LÍ:
Algengt er að læknum og öðru heilbrigðisstarfsfólki sé mjög brugðið fái þau erindi frá embættinu og voru Læknafélagið og embættið sammála um að samtal á borð við það sem við munum eiga hér í dag geti dregið úr þeirri upplifun. Mikilvægt sé að undirstrika að hlutverk embættisins er fyrst og fremst að tryggja öryggi sjúklinga og gæði heilbrigðisþjónustu en ekki að leita að sökudólgum eða blórabögglum í einstaka heilbrigðisstarfsmönnum.
Þetta er auðvitað kjarni þessa máls. Eftirlit með heilbrigðisþjónustu á að tryggja gæði heilbrigðisþjónustunnar og efla öryggi sjúklinga eins og frekast er kostur. Það breytir því þó ekki að það er erfitt að fá bréf frá embætti landlæknis. Þess vegna er mikilvægt að muna, ef slíkt bréf berst, að LÍ veitir læknum lögfræðiaðstoð til að svara bréfinu og að félagið getur einnig tryggt þeim jafningjastuðning.
