Umræða fréttir
  • Viðauki 1
  • Viðauki 2
  • Viðauki 3

Nýjar reglugerðir um bólusetningar og skýrslugerð vegna smitsjúkdóma. Alþjóðlegt samstarf um farsóttaskráningu



Bólusetningar

Á síðasta ári féllu úr gildi lög um ónæmisaðgerðir nr. 38/1978. Í stað þeirra hefur verið sett reglugerð (nr. 221/2001) um bólusetningar og er hún byggð á stoð í sóttvarnalögum nr. 19/1997 (sjá viðauka 1). Reglugerðin kveður á um hvenær mönnum eru bólusetningar að kostnaðarlausu og hvernig greiðsluhlutdeild er háttað þegar greiða þarf fyrir þær.

Allar bólusetningar skal skrá annars vegar í sérstakt skírteini sem afhent er þeim sem er bólusettur og hins vegar í sjúkraskrá. Þar skal koma fram hvaða bóluefni var gefið, hvenær það var gefið og hvort aukaverkanir hlutust af. Ef barn er ekki bólusett í samræmi við 2. gr. reglugerðarinnar þar sem þau bóluefni, sem mælt er með, eru talin upp skal skrá ástæðu þess. Sóttvarnalækni skulu sendar skýrslur um bólusetningar að minnsta kosti árlega eða oftar samkvæmt ákvörðun hans. Þá er kveðið á um að senda skuli sóttvarnalækni tilkynningar um hver var bólusettur, með hvaða bóluefni og hvenær, samkvæmt. 2. gr. reglugerðarinnar eða samkvæmt nánari ákvörðun sóttvarnalæknis. Ástæðurnar fyrir því að komið er á slíkri skrá eru í aðalatriðum eftirfarandi:

1. Fylgjast þarf með árangri bólusetninga og greina með skjótum hætti hvað valdi því að smitsjúkdómur greinist sem stefnt er að að bægja frá (eliminate) eða útrýma (eradicate).

2. Afla þarf nákvæmra upplýsinga um þekjun bólusetninga og ástæður fyrir því ef þátttaka í bólusetningum verður ónóg til að ná fullnægjandi hjarðónæmi.

3. Þegar þeir sjúkdómar sem bólusett er gegn og afleiðingar þeirra verða einungis óljósar minningar beinist athygli manna í vaxandi mæli að hugsanlegum, óheppilegum áhrifum bólusetninga til lengri eða skemmri tíma. Heilbrigðisyfirvöld þurfa á hverjum tíma að geta rannsakað og svarað gagnrýni sem beinist að bóluefnum. Því eru aðgengilegar upplýsingar um framleiðanda og tegund bóluefna sem gefin voru ásamt upplýsingum þá sem eru bólusettir nauðsynlegar.

4. Auðvelda þarf aðgengi heilbrigðisstarfsmanna og almennings að upplýsingum um bólusetningar sem hafa verið gerðar, til dæmis vegna umsókna um skólavist.



Skráningar og tilkynningar um smitsjúkdóma

Gefin hefur verið út reglugerð nr. 222/2001 (1.,2.) um breytingu á reglugerð nr. 129/1999 um skýrslugerð vegna smitsjúkdóma. Nokkrir smitsjúkdómar sem áður voru skráningarskyldir verða samkvæmt reglugerðarbreytingunni framvegis tilkynningarskyldir. Fyrst og fremst er um að ræða sjúkdóma sem bólusett er gegn eins og rauðir hundar, mislingar, hettusótt, kikhósti, Hemophilus influenzae gerð b og stífkrampi. Ástæðan fyrir því að þessir sjúkdómar eru tilkynntir einstaklingsbundið er að þegar það markmið er að nást að sjúkdómi sé bægt frá samfélaginu er nauðsynlegt að rannsaka hvert og eitt tilfelli sérstaklega. Nauðsynlegt er að fyrir liggi örugg greining með ræktun eða mótefnamælingum og einnig þurfa upplýsingar um bólusetningar að liggja fyrir eins og áður var getið um. Framvegis verður litið á eitt tilvik vegna sumra af þessum sjúkdómum, til dæmis mislinga, rauðra hunda og hettusóttar sem faraldur.

Þá er blóðkreppusótt af völdum Entamöba histiolytica ekki lengur á lista yfir tilkynningarskylda sjúkdóma en þess í stað þess eru sýkingar af völdum Giardia lamblia tilkynningarskyldar. Ástæðan fyrir þessari breytingu er að ólíkt E. histiolytica virðist G. lamblia eiga sér smitleiðir hér á landi sem lítt eru kunnar. Það er því mikilvægt að fá heildarmynd af faraldsfræði sjúkdóms af völdum G. lamblia svo hægt sé að grípa til viðeigandi sóttvarna.

Vakin skal athygli á því að auk gulusóttar (mýgulusótt, Yellow fever), sem skal tilkynna í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar, skal einnig tilkynna aðrar blæðandi veiruhitasóttir, svo sem Ebola, Marburg, Lassa og krímversk-kongóska veiruhitasótt.

Í viðaukum 2-3 eru sýnd eyðublöð fyrir skráningarskylda- og tilkynningarskylda sjúkdóma sem leysa eldri eyðublöð af hólmi.



Alþjóðlegt samstarf um skráningar og tilkynningar um smitsjúkdóma

Sóttvarnir þurfa eðli máls samkvæmt að vera alþjóðlegar enda virða sjúkdómsvaldarnir engin landamæri. Íslendingar hafa alltaf tekið þátt í sóttvarnastarfi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Um þessar mundir er þar efst á baugi að útrýma lömunarveikinni úr heiminum. Umtalsverður árangur hefur þegar náðst. Heita má að sjúkdómnum hafi verið bægt frá Evrópusvæði Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Þó eru til svæði í Mið-Afríku og í Austurlöndum fjær þar sem sjúkdómsins verður enn vart en búast má við því að honum verði einnig bægt frá þeim svæðum heimsins eða útrýmt þaðan innan örfárra ára. Eftir stendur þá að uppræta lömunarveikiveiruna þar sem hana er að finna á rannsóknarstofum. Íslendingar eins og aðrir þurfa að sýna fram á það að lömunarveikiveiruna sé ekki að finna hér á landi.

Íslendingar eru einnig virkir þátttakendur í sóttvörnum Evrópusambandsins sem byggjast á lagasetningu sambandsins (Decision 2119/98/EG). Samkvæmt þessum lögum skal koma á farsóttaskrá sambandsins, samræma sjúkdómsskilgreiningar og ákvarða hvaða sjúkdóma skuli tilkynna. Farsóttaskrá þessi verður grunnur viðvörunarkerfis og sóttvarnaráðstafana Evrópusambandsins. Um þessar mundir er unnið að því að koma skránni á laggirnar og eru væntanlegar íslenskar skilgreiningar á sjúkdómstilfellum sem eru tilkynningarskyld. Vakin skal athygli á því að þegar tilkynnt er um smitsjúkdóm á alþjóðlegum vettvangi er persónuauðkenna aldrei getið.



Haraldur Briem

sóttvarnalæknir

Viðauki 1



Reglugerð nr. 221/2001

um bólusetningar á Íslandi



1. gr.

Reglugerð þessi tekur til bólusetninga (ónæmisaðgerða) og framkvæmdar þeirra á Íslandi. Allar bólusetningar skal skrá. Sóttvarnalæknir er ábyrgur fyrir því að halda skrá um bólusetningar. Sóttvarnalæknir skipuleggur og samræmir bólusetningar um land allt.



2. gr. Bólusetningar barna

Bólusetningum barna er ætlað að verja börn gegn alvarlegum smitsjúkdómum. Börnum með lögheimili hér á landi skal boðin bólusetning gegn eftirtöldum sjúkdómum þeim að kostnaðarlausu:

1. barnaveiki

2. hettusótt

3. H. influenzae b sjúkdómi

4. kikhósta

5. mænusótt

6. mislingum

7. rauðum hundum

8. stífkrampa



3. gr. Bólusetningar fullorðinna

Bólusetningum fullorðinna er ætlað að viðhalda endingu barnabólusetninga eða bæta slíka bólusetningu hafi hún ekki verið gerð á barnsaldri. Skal fullorðnum gefinn kostur á bólusetningum gegn eftirtöldum sjúkdómum:

1. stífkrampa

2. barnaveiki

3. lömunarveiki



Öllum sem eru 60 ára að aldri eða eldri eða eru í sérstökum áhættuhópum skal gefinn kostur á bólusetningum gegn eftirtöldum sjúkdómum:

1. inflúensu

2. pneumókokkasýkingum



Greiðsluhlutdeild fullorðinna samkvæmt þessari grein skal fylgja lögum og reglugerðum um almannatryggingar.



4. gr. Aðrar bólusetningar

Bólusetningar vegna opinberra sóttvarnaráðstafana skv. 12. gr. sóttvarnalaga þegar hætta er á alvarlegum farsóttum vegna eftirtalinna sjúkdóma eða þegar sérstök smithætta er fyrir hendi innan lands skal vera mönnum að kostnaðarlausu:

1. berklaveiki

2. lifrarbólgu A

3. lifrarbólgu B

4. meningókokka sjúkdómi

5. öðrum sjúkdómum sem unnt er og brýnt að beita virkri bólusetningu gegn.



5. gr.

Gefa skal kost á bólusetningum, sem hinn bólusetti greiðir sjálfur fyrir, gegn viðeigandi sjúkdómum vegna ferða fólks úr landi.



6. gr.

Bólusetningar samkvæmt þessari reglugerð annast heilsugæslustöðvar eða aðrir þeir sem sóttvarnalæknir ákveður að geti haft þær með höndum. Sóttvarnalæknir skal bjóða út innkaup á bóluefnum.



7. gr.

Heilsugæslustöðvar skulu í samráði við sóttvarnalækni gera almenningi kunnugt, hvernig bólusetningum er hagað.



8. gr.

Sóttvarnalæknir lætur heilsugæslustöðvum í té sérstakt skírteini sem afhent eru þeim sem bólusettir eru. Skal skrá í skírteinið allar bólusetningar sem viðkomandi gengst undir samkvæmt reglugerð þessari.



9. gr.

Sá sem bólusetur skal skrá bólusetninguna í sjúkraskrá. Þar skal koma fram hvaða bóluefni var gefið, hvenær það var gefið og hvort aukaverkanir hlutust af. Ef ekki er bólusett skv. 2. gr. skal skrá ástæðu þess.



10. gr.

Heilsugæslustöðvar, og aðrir þeir sem sem bólusetja skulu senda sóttvarnalækni skýrslur um þær, sbr. 1 gr., a.m.k. árlega eða oftar samkvæmt ákvörðun hans. Senda skal sóttvarnalækni tilkynningar um hver var bólusettur, með hvaða bóluefni og hvenær, skv. 2. gr. eða samkvæmt nánari ákvörðun sóttvarnalæknis. Tilkynna skal um aukaverkanir bólusetningar samkvæmt ákvörðun sóttvarnalæknis.



11. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 18. gr., sbr. 17. gr., sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingu, öðlast þegar gildi.



Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu,

9. mars 2001.



Ingibjörg Pálmadóttir

Davíð Á. Gunnarsson

Tengd skjöl




Þetta vefsvæði byggir á Eplica