Umræða fréttir

Læknar um allt land fylgjast með fræðslufundum frá FSA

- Ný tækni í fjarskiptum og tölvusamskiptum rýfur einangrun landsbyggðarlækna



Fjarskipta- og tölvutækninni fleygir fram þessi misserin og nú hafa læknar á Akureyri og víðar á landsbyggðinni tekið hana í notkun með athyglisverðum hætti. Á hverjum föstudagsmorgni er efnt til fræðslufundar í fundarsal Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og hann sendur með aðstoð fjarfundabúnaðar hvert á land þar sem áhugasamir þátttakendur finnast.

Læknablaðið fékk að fylgjast með einum slíkum fundi ekki alls fyrir löngu og þar var umræðuefnið ekki af verri endanum: Valur Þór Marteinsson sérfræðingur í þvagfæraskurðlækningum fjallaði um efnið Ristruflanir Akureyringa.



Eru að losna við feimnina

Fundurinn fór þannig fram að Valur Þór stóð við púltið norður á Akureyri og sást ýmist í eigin persónu eða þá hann sýndi glærur sem unnar voru í PowerPoint forritinu. Nokkur hópur fólks hlýddi á hann nyrðra en auk þess sátu læknar hér og þar um landið, allt frá Ísafirði til Norðfjarðar, og fylgdust með fyrirlestrinum á sjónvarpsskjá. Að honum loknum svaraði Valur Þór fyrirspurnum sem komu bæði úr salnum og frá þeim sem fylgdust með úr fjarlægð.

Að sögn Þorvalds Ingvarssonar bæklunarskurðlæknis á FSA hófust þessir fræðslufundir þann 1. október síðastliðinn og hafa þeir verið á hverjum föstudegi síðan. Hann segir að reynslan af þessu hafi verið mjög góð, menn hafi að vísu verið dálítið feimnir til að byrja með og ekki alveg kunnað að nýta þetta tjáningarform en það sé allt að lagast.

Fram til þessa hafa allir fyrirlesararnir verið frá Akureyri en strax nú í janúar mun það breytast. Á fundinum sem Læknablaðið fylgdist með voru þátttakendur frá Ísafirði, Hvammstanga, Húsavík, Vopnafirði, Seyðisfirði og Neskaupstað, auk Akureyri.



Fylgst með frá Vopnafirði

Hugmyndin að baki þessum fundum er fyrst og fremst sú að rjúfa faglega einangrun lækna sem starfa í hinum dreifðu byggðum og beita til þess nýjustu tækni. Við heyrðum hljóðið í einum þeirra sem fylgdust með fundinum, Baldri Friðrikssyni heilsugæslulækni á Vopnafirði, og fengum staðfestingu á því að þessi hugmynd hefur náð tilgangi sínum. Þetta var fyrsti fundurinn sem Baldur fylgdist með og hann var mjög ánægður með hann.

"Þetta var vissulega ekki alveg eins og að vera á staðnum en er samt mikil bylting," sagði Baldur. "Ég sit hérna einn og á ekki gott með að komast í burtu. Ég hlakka því til að eiga þess kost að fylgjast með því sem er að gerast í faginu. Að vísu get ég ekki valið efnið að vild en fyrir okkur einyrkjana kemur öll fræðsla að gagni."

Hann nefnir annað dæmi um gagnsemi þessarar nýju tækni.

"Fyrir skömmu hélt landlæknir fund þar sem greint var frá breytingum á bólusetningum barna og sá fundur var sendur út frá Akureyri. Við sátum hér, ég og hjúkrunarfræðingurinn, í félagsheimilinu á Vopnafirði og fylgdumst með, gátum varpað fram fyrirspurnum og fengið þær upplýsingar sem okkur vanhagaði um. Án þessarar tækni hefðum við orðið að leggja á okkur ferð til Egilsstaða eða Akureyrar og það hefði tekið okkur heilan dag hið minnsta. Á meðan hefði enginn verið hér til að sinna sjúklingum."



250 km á næsta sjúkrahús

Á Vopnafirði hagar þannig til að sveitarstjórnin er búin að kaupa fjarfundabúnað sem settur var upp í félagsheimilinu og segir Baldur að hann sé töluvert mikið notaður af sveitarstjórn og fyrirtækjum á staðnum. Hann segir það ekki nauðsynlegt fyrir heilsugæslustöðina að eignast svona búnað, hann kosti töluvert fé og sé fljótur að úreldast.

"Hins vegar væri gott að fá tæki til fjarlækninga hingað austur. Það byði upp á marga spennandi möguleika, ekki síst fyrir stað eins og Vopnafjörð sem er oft einangraður að vetrarlagi. Ég sit stundum uppi með veikt fólk dögum saman án þess að koma því á sjúkrahús en það næsta er í 250 km fjarlægð," sagði Baldur Friðriksson.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica