03. tbl. 97. árg. 2011

Umræða og fréttir

Frá öldungadeild LÍ. Hughrif í ferð öldungadeildar um Austurland 2009. Hörður Alfreðsson

u10-fig1

Ferð þessi var farin 13.-17. júlí. Hjörleifur Guttormsson var leiðsögumaður, Leifur Jónsson fararstjóri og Sveinn Sigurbjarnarson bílstjóri Tanni Travel.

Á Fljótsdalshéraði var þoka fyrsta daginn.

 

Hörður Þorleifsson


Þrengir að oss þoka grá
svo þekkjast hvorki fjöll né hólar.
Vona að hún víki frá
og vermi aftur geislar sólar.

Borgarfjörður eystra er byggð í skjóli fjalla
og Borgin álfa vakir trygg yfir þessum stað.
Dyrastafir tröllauknir draga að sér alla
sem dýrka fagra veröld og Kjarval setti á blað.

Frá Borgarfirði eystri var farið til Loðmundarfjarðar á rútunni Gvendólínu nr. 2.

Yfir fjallaklöngur og ofar skýjum löngum
ók hún Gvendólína sem sögð er númer tvö.
Svenni var við stýrið og stýrði fram hjá dröngum,
styrkum höndum lagð‘ana allar beygjur sjö.

Loðmundarfjörðinn við litum nú augum,
ljúft var að kanna þann fjarlæga heim.
Horfið var flöktið á fínustu taugum
og friðinn þar gripum við höndum tveim.

Síðan fórum við í Emilíu, öðrum bíl Tanna Travel til Mjóafjarðar. Bræðravatn/vötn eru á Mjóafjarðarheiði.

u10-fig2
Brekka í Mjóafirði. Ljósm. P.Á.

Bræðravatni Emilía
ekki sinnti hót
en Mjóafjörðinn, fagra, hlýja,
flutti hún okkur mót.

Öldungur á bæ þar býr
búinn geði þekku.
Vinsæll er og viðmótshlýr
Vilhjálmur á Brekku.

Leiðsögn skýr og ljós í senn,
ljúft að fylgja henni.
Hafi þökk þeir heiðursmenn,
Hjörleifur og Svenni.

 

 u10-fig3
                          Sigmundur Magnússon blóðmeinafræðingur. Teikning: Sigurður V. Sigurjónsson

 u10-fig4

Þá var öldin önnur!

Þetta var fyrsta auglýsingin sem birtist á kápu Læknablaðsins í maí 1915. Hún „prýddi“ kápu blaðsins til ársloka 1918.

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica