09. tbl. 96.árg. 2010

Umræða og fréttir

Nýr Landspítali. Stakkur sniðinn eftir vexti

Gagngerar breytingar hafa orðið á áætlunum varðandi byggingu nýs spítala á Landspítalalóðinni við Hringbraut frá því að verkefninu var upphaflega hleypt af stokkunum með fögrum fyrirheitum í skjóli góðæris. Þann 9. júlí í sumar voru kynnt úrslit í samkeppni um áfangaskipt heildarskipulag fyrir nýtt háskólasjúkrahús við Hringbraut og frumhönnun 1. áfanga nýja spítalans og tengdrar háskólastarfsemi. Tillaga hönnunarteymisins SPITAL varð hlutskörpust.


u05-fig1
Guðrún Ágúststdóttir formaður dómnefndar og Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra afhjúpa
vinningstillögu SPITAL. Mynd: Hreinn Magnússon.


„Nú hillir undir að framkvæmdir hefjist við eitt metnaðarfyllsta verkefni heilbrigðiskerfisins um langa hríð,“ sagði Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra við þetta tækifæri. Hún sagði að bygging nýs Landspítala hafi verið í burðarliðnum um árabil og áformin tekið miklum breytingum á þeim tíma. Mestu hafi munað um efnahagshrunið haustið 2008 en í kjölfarið hafi þurft að endurskoða öll fyrri byggingaráform. „Fyrir vikið er sú hugmynd sem hér er kynnt talsvert smærri í sniðum og ekki eins ríkmannleg og lagt var upp með á tímum ofþenslu. Stakkur hefur verið sniðinn eftir vexti,“ sagði ráðherra.

Í SPITAL teyminu eru ASK arkitektar, Bjarni Snæbjörnsson arkitekt, Kanon arkitektar, Medplan, Teiknistofan Tröð, Landark, Efla verkfræðistofa, Lagnatækni og Norconsult. Ein af meginforsendum hönnunarsamkeppninnar var að flytja starfsemi Landspítala í Fossvogi að Hringbraut og ljúka þannig sameiningu stóru spítalanna á höfuðborgarsvæðinu. Samkeppnin var tvíþætt, annars vegar tillaga að áfangaskiptu skipulagi Hringbrautarlóðarinnar og hins vegar tillaga að frumhönnun 1. áfanga verkefnisins, sem samanstendur af spítalastarfsemi í 66.000 m² nýbyggingu og háskólastarfsemi í allt að 10.000 m² nýbyggingu.

Hönnunarsamkeppnin er síðasta verk verkefnisstjórnar um nýjan Landspítala því um miðjan júní 2010 samþykkti Alþingi lög um stofnun opinbers hlutafélags sem standa mun að undirbúningi og útboði á byggingu nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Félagið fær lokaskýrslu verkefnisstjórnar þar sem er lagt til að samið verði við SPITAL um forhönnun bygginga og skipulagsmál en forhönnun og útboðsgögn vegna framkvæmda eiga að liggja fyrir vorið 2011. Gert er ráð fyrir útboði og að ríkið taki bygginguna á langtímaleigu til allt að 40 ára þegar byggingarverktaki hefur lokið umsömdu verki.
Samkvæmt áætlunum verkefnisstjórnar, sem fékk heimild heilbrigðisráðherra til að vinna verkefnið áfram í framhaldi af viljayfirlýsingu við lífeyrissjóðina í nóvember 2009, ættu jarðvegsframkvæmdir að geta hafist sumarið 2011.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica