06.tbl. 112. árg. 2026
Umræða og fréttir
Viðurkenning undirsérgreina barnalækna á Íslandi
Barnalæknar hafa verið í erfiðleikum með að fá undirsérgreinar sínar samþykktar á Íslandi.
Læknablaðið leitaði til Helgu Elídóttur, formanns Félags íslenskra barnalækna, eftir frekari
upplýsingum um hvernig gengi í kjölfar þeirrar umræðu.
Í hverju er þessi hindrun fólgin og hjá hvaða embætti er þetta unnið?
Hindrunin felst í því að barnalæknar sem hafa sérhæft sig í vissum undirgreinum hafa fengið neitun við leyfisumsóknum sínum hjá embætti landlæknis frá árinu 2023. Ástæða þessa er reglugerðarbreyting frá því ári en sú breyting kveður á um ákveðin skilyrði sem samræmast ekki fyrri leyfisveitingum. Þetta á við þær undirsérgreinar og sérnám í þeim löndum sem falla ekki að skilyrðum þessarar íslensku reglugerðar um sérnám.
Hefur eitthvað breyst til batnaðar undanfarna mánuði?
Einn barnalæknir hefur fengið viðurkenningu á sinni undirsérgrein nýlega en það ferli tók eitt og hálft ár og gríðarmikla pappírsvinnu. Eftir fjölmiðlaumfjöllun átti ég fund með aðstoðarmanni heilbrigðisráðherra, Jóni Magnúsi Kristjáns-syni, sem var áhugasamur um þetta mál. Mér skilst að Sprett-hópurinn sem heilbrigðisráðuneytið skipaði sé með til athugunar að aðlaga leyfisveitingar með tilliti til þeirra sem hófu sérnámið áður en reglugerðinni var breytt því auðvitað er það sérkennileg stjórnsýsla að breyta reglugerð á þennan hátt og gera læknum sem þegar eru í miðju sérnámi þegar reglugerðinni er breytt, ómögulegt að uppfylla skilmálana. Síðan er annað mál að reglugerðin er meingölluð þegar kemur að sérnámi í undirsérgreinum barnalækninga og þarfnast endurskoðunar og hefur Embætti landlæknis einnig bent á það.
Læknaskortur á Íslandi virðist orðinn almennur í mörgum greinum, á það líka við hjá barnalæknum?
Já, því miður er skortur á barnalæknum í allmörgum undirgreinum og það er ekki eingöngu vegna þessarar reglugerðarbreytingar heldur einnig af öðrum orsökum. Við erum fámennur hópur og í mörgum undirsérgreinum eru bara 1-2 barnalæknar að störfum á landinu og því augljóst að ekki þarf mikið til að okkur vanti barnalækna til starfa en þetta sveiflast svolítið milli tímabila og undirsérgreina. Til dæmis bráðvantar okkur nú þegar barnameltingarlækna og barnakrabbameinslækna á Barna-spítala Hringsins og innan fárra ára vantar okkur í enn fleiri greinar.
Hefur þessi dráttur á viðurkenningu undirsérgreina áhrif á lækna sem stefna í sérnám?
Maður getur rétt ímyndað sér að læknar fari mun síður í undirsérgreinar sem ekki fæst form-leg viðurkenning á í eigin heimalandi. Ef við viljum að læknar komi aftur heim að loknu sér-námi þurfa starfsskilyrði að vera með þeim hætti að það sé boðlegt og eitt af þeim atriðum er að fá sína menntun metna að verðleikum og til jafns við kollega sem fyrir eru í faginu heima.
Hvernig horfir framtíð barnalækninga á Íslandi við ef undirsérgreinar verða ekki viðurkenndar með farsælli hætti á næstunni?
Ég vil helst ekki hugsa þá hugsun til enda því það yrði hreint út sagt skelfilegt. Það mun klárlega með tímanum leiða til skerðingar á þjónustu við börn hér á landi. Það er mikilvægt fyrir börn með alvarlega sjúkdóma að hér sé barnalæknaþjónusta í öllum undirsérgreinum barnalækninga rétt eins og fyrir fullorðna.
Eitthvað sem þú vilt bæta við?
Ég vil trúa því að heilbrigðisráðherra og starfsfólk heilbrigðisráðuneytisins leysi þetta á farsælan hátt og vona að þau geri sitt ítrasta til að tryggja börnum á Íslandi bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á, nú og til framtíðar.
