06.tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Umfangsmikið skipulagviðbragðsaðila vegna sólmyrkvans

Undirbúningur lögreglu og annarra viðbragðsaðila vegna væntanlegs álags á umferð og ferðamannastraums í tengslum við sólmyrkvann 12. ágúst hefur staðið yfir um nokkurt skeið. Læknablaðið heyrði í Runólfi Þórhallssyni, yfirlögregluþjóni hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

 

Runólfur segir að Vegagerðin og lögregluembætti víða um land hafi unnið markvisst að skipulagningu vegna aukins álags á vegakerfið, sérstaklega á Vesturlandi, Vestfjörðum, Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu. Að undirbúningnum koma fjögur lögregluembætti á þessum fjórum svæðum og hófst vinna þeirra þegar undir lok síðasta árs.

„Lögð hefur verið áhersla á umferðarskipulag, upplýsingagjöf og samhæfingu milli fjölmargra aðila. Vegagerðin hefur opnað sérstakan upplýsingavef þar sem birtar verða upplýsingar um mögulegar vegalokanir, umferð og aðstæður á ferðaleiðum um þessi svæði. Líklega verða einhverjar leiðir í einstefnu þennan dag, en það þarf mikið skipulag og mannskap í slíkt,“ segir Runólfur. Þá sé jafnframt unnið að sérstakri upplýsingasíðu á island.is þar sem almenningur og ferðaþjónustuaðilar geti nálgast samræmdar og áreiðanlegar upplýsingar, ásamt tenglum á efni frá Vegagerðinni, lögregluembættum og öðrum viðbragðsaðilum.

Runólfur tekur sérstaklega fram að þótt almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafi komið að undirbúningnum sé ekki um eiginlegt almannavarnaástand að ræða. „Aðkoma deildarinnar byggist fyrst og fremst á reynslu hennar af samhæfingu stórra verkefna og samstarfi við viðbragðskerfi um allt land. Markmiðið hefur verið að leiða saman fjölmarga aðila sem koma að verkefninu, þar á meðal björgunarsveitir, Landhelgisgæsluna, heilbrigðiskerfið, sveitarfélög, markaðsstofur landshlutanna og fulltrúa Náttúruverndar, enda eru bæði Snæfellsjökulsþjóðgarður og Látrabjarg (sem er friðlýst svæði) meðal þeirra svæða sem búast má við að verði fjölsótt.“

Einnig hafi verið unnið að því að tryggja aukna mönnun og viðbragðsgetu á þeim svæðum þar sem búast má við miklum fjölda ferðamanna. „Sérstök áhersla hefur verið lögð á að meta hvaða áhrif umferðarteppur gætu haft á viðbragðsaðila og hvernig tryggja megi að neyðarþjónusta komist leiðar sinnar ef umferðarálag verður mikið. Það er því verið að skoða mismunandi sviðsmyndir og viðbragðsáætlanir til að bregðast við slíkum aðstæðum,“ segir Runólfur.

 

 

Lærðu af stórviðburðum árin 1994 og 2000

Aðspurður bætir hann við að reynsla af fyrri stórviðburðum nýtist við þennan undirbúning og vísar hann sérstaklega til lýðveldishátíðarinnar á Þingvöllum árið 1994 og kristnitökuhátíðarinnar árið 2000, þar sem mikill mannfjöldi og umferð kölluðu á umfangsmikið skipulag. „Sú reynsla hefur sýnt mikilvægi þess að dreifa fólki á fleiri svæði til að minnka álag á einstaka staði og vegi. Ég tek sem dæmi Álftanes, Gróttu og Suðurnesin. Það þurfa ekki allir að fara í sunnudagsbíltúr til Vestfjarða og vera megnið af deginum í umferð,“ segir Runólfur og brosir.

Í því samhengi séu nú til skoðunar sérstök safn- og útsýnissvæði á Vesturlandi, Snæfellsnesi og jafnvel á höfuðborgarsvæðinu. Með því sé vonast til að draga úr hættu á miklum umferðarþunga og skapa betri dreifingu ferðamanna. Það verður fljótlega birt nánari kynning á skipulagi, umferðartilhögun og upplýsingagáttum svo að almenningur og ferðafólk geti undirbúið sig með góðum fyrirvara,“ segir Runólfur að endingu.

 

 

https://www.vegagerdin.is/vegagerdin/starfsemi/vidburdir/almyrkvi-a-solu



Þetta vefsvæði byggir á Eplica