05.tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Lögfræði 60. pistill. Símenntun lækna. Dögg Pálsdóttir

Allt frá því að fyrst voru sett lög um lækna árið 1932 hafa í slíkum lögum verið ákvæði um það að læknum beri að viðhalda sem best þekkingu sinni. Í lögum um heilbrigðisstarfsmenn nr. 34/2012 sem eru rammalög um lækna og aðrar löggiltar heilbrigðisstéttir er enn slíkt ákvæði. Í 3. málsgr. 13. gr. laganna segir að heilbrigðisstarfsmanni beri að þekkja skyldur sínar og siðareglur, viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni, tileinka sér nýjungar er varða starfið og kynna sér lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðisþjónustu á hverjum tíma.

Til að auðvelda læknum að stunda símenntun og endurmenntun hafa um áratuga skeið verið ákvæði í kjarasamningi Læknafélags Íslands (LÍ) og fjármála- og efnahagsráðherra um námsleyfi, sem gera læknum kleift að stunda símenntun. Réttur lækna til námsleyfis er rúmur. LÍ hefur oft þurft að standa dyggan vörð um þennan námsleyfisrétt þar sem ríkið hefur á stundum reynt að semja um það að draga úr honum. Í 8. kafla nýjasta kjarasamnings LÍ og ríkisins frá 28. nóvember 2024 er fjallað um símenntun lækna. Þar kemur fram að læknar með sérfræðileyfi eiga rétt á 15 almanaksdögum í námsleyfi á ári hverju, til að fara í námsferðir innanlands eða til útlanda. Almennir læknar eiga rétt á 7 almanaksdögum í námsleyfi, séu þeir ráðnir til eins árs eða lengur. Til viðbótar við námsleyfi á launum fylgir námsleyfisréttinum á hverju ári greiðsla á fargjöldum upp að ákveðnu hámarki og greiðsla fyrir þátttökugjöld í námskeiðum, einnig upp að ákveðnu hámarki. Með kjarasamningi, sem gerður var árið 2023, náðist það fram að hámörk fargjalda og þátttökugjalda fylgja vísitölu, þó aldrei til lækkunar. Loks fá læknar í námsleyfi dagpeninga fyrir hvern dag í námsferð, að ferðadögum meðtöldum, samkvæmt reglum fjármálaráðuneytisins um dagpeninga ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis.

Úttekt á því hvernig læknar nýta námsleyfisrétt sinn hefur leitt í ljós að þennan rétt mættu læknar nota í ríkari mæli. Allt að 60% lækna notfæra sér að hluta eða öllu leyti kjarasamningsbundinn námsleyfisrétt. Sem þýðir að allt að 40% lækna notfæra sér hann ekki. Vegna þessa hefur LÍ reynt um nokkurt skeið við endurskoðun kjarasamnings LÍ og fjármála- og efnahagsráðherra að fá einnig inn í kjarasamninginn ákvæði um það að að minnsta kosti hluti þeirra útgjalda sem ríkið sparar sér vegna þess að læknar notfæra sér ekki að fullu námsleyfisréttinn, renni í símenntunarsjóð lækna. Það hefur ekki enn tekist. Á COVID-tímanum sparaði ríkið sér umtalsverðar fjárhæðir þar sem læknar hreinlega komust ekki í námsleyfi vegna kringumstæðna. Á sama tíma fengu símenntunarsjóðir annarra háskólamenntaðra stétta sem tekist hefur að semja um slíka sjóði, fullar greiðslur í sjóðinn og þær greiðslur söfnuðust upp.

Það skiptir miklu að læknar notfæri sér helst að fullu allan þann námsleyfisrétt sem þeir njóta samkvæmt kjarasamningum. Símenntun og endurmenntun er lögboðin skylda á læknum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum, eins og áður er rakið, sbr. 3. málsgr. 13. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn. Þessi skylda er áréttuð í reglugerð um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta lækningaleyfi og sérfræðileyfi nr. 856/2023. Um símenntunarskylduna er nánar fjallað í 3. málsgr. 25. gr. reglugerðarinnar. Þar segir að lækni beri að stunda símenntun og viðhalda þannig þekkingu sinni og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið. Þar segir ennfremur, sem er nýmæli, að læknar skuli skrá upplýsingar um símenntun sína í samræmi við tilmæli fagfélags og sinna upplýsingaskyldu til vinnuveitenda þar um eins og við á.

LÍ lét fyrir nokkrum árum útbúa skráningarkerfi fyrir símenntun lækna, sem fékk nafnið Mínerva. Nú þegar skráning símenntunar lækna er orðin skylda samkvæmt framangreindri reglugerð, er enn mikilvægara en áður að læknar skrái sig í Mínervu og skrái þar alla þá símenntun sem þeir stunda. Aðgangur að Mínervu og leiðbeiningar að skráningarkerfinu er að finna á innri vef heimasíðu LÍ. Hafi læknar ekki virkjað aðgang sinn að innri vef heimasíðunnar þarf að hafa samband við skrifstofu félagsins til að opna aðganginn að innra netinu. Mínerva hefur áður verið kynnt fyrir læknum í Læknablaðinu.1 Nú þegar ákveðið hefur verið með reglugerð að læknar þurfi að skrá upplýsingar um símenntun sína þykir LÍ mikilvægt að árétta þessar upplýsingar til félagsmanna um leið og þeir eru hvattir til að nota sem mest af kjarasamningsbundnum rétti sínum til námsleyfa, jafnframt því að skrá alla símenntun í Mínervu.

Heimild:

Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir. Mínerva komin í gagnið, - rætt við Hrönn Pétursdóttur. Læknablaðið. 2022: 108(05): 245.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica