04. tbl. 112. árg. 2026
Ritstjórnargrein
Ritstjórnargrein. Brotin bök! Freyr Gauti Sigmundsson
Hryggbrot eru algeng í flestum samfélögum og þau eiga það sameiginlegt að fylgja ákveðnu mynstri. Ungir menn verða oftar fyrir hryggbrotum en ungar konur. Ástæðan kann að vera störfin sem þeir stunda, ásamt áhættuhegðun ungra manna. Stærsti hópurinn sem verður fyrir hryggbrotum er þó eldri konur en þar er beinþynning mikilvægur áhættuþáttur. Hryggbrot hjá eldra fólki eru langalgengust og þau eru oftast vegna svokallaðra lágorkuáverka á meðan hryggbrot hjá þeim yngri eru háorkuáverkar. Umferðarslys eru í flestum samfélögum algengasta orsök hryggbrota en slík slys flokkast sem háorkuáverkar. Einnig má flokka brotin eftir því hvort til aðgerðar þurfi að grípa og hvort sá slasaði hafi hlotið mænu- eða taugaskaða.
Hryggbrot eru algengust á mótum lendhryggjar og brjósthryggjar en þar mætast hinn hreyfan-legi lendhryggur og hinn stífi brjósthryggur. Hryggnum á þessu svæði er oft skipt niður í þrjár súlur: fremri, mið og aftari. Séu tvær af þremur súlum brotnar er oftast um óstöðugt brot að ræða og aðgerðar er þörf. Þegar hryggbrot eru metin þá er tölvusneiðmynd nauðsynleg fyrir greiningu og segulómskoðun er oft mikilvæg svo að hægt sé að meta stöðugleika brotanna að fullu – ekki síst til að meta hvort sterk liðbönd séu slitin. Brotin geta verið mjög ólík og oft getur verið erfitt að meta hvort grípa þurfi til aðgerðar. Gerðar hafa verið einfaldar, klínískar leiðbeiningar sem hjálpa læknum að meta þessi brot og ákveða hvort ástæða sé til að framkvæma skurðaðgerð og spengja brotin.1 Margir áverkar eru þó á gráu svæði og þess vegna er oft mikill munur á milli landa hvort brot eru meðhöndluð með skurðaðgerð eða ekki. Það gefur til kynna að góðar rannsóknir vanti um það hvernig rétt er að meðhöndla brot. Einkum á þetta við um brot þar sem hryggbolurinn hefur sprungið (burst fractures). Það er þó búist við að nýjar rannsóknir geti leiðbeint okkur í framtíðinni en í haust er von á niðurstöðum samnorr-ænnar framskyggnrar slembirannsóknar.2
Ný rannsókn, sem sagt er frá í þessu hefti Læknablaðsins, beinir sjónum að hryggbrotum á brjóst- og lendhryggjarmótum sem urðu vegna háorkuáverka á tímabilinu 2003 til 2022 en rannsóknin takmarkaðist við gagnasafn Landspítalans. Rannsókn Hjartar V. Sigurðssonar o.fl. gefur góða innsýn í faraldsfræði hryggbrota á þessu tímabili og er áhugaverð aflestrar.4 Umferðaróhöpp voru algengust. Á tímabilinu urðu 424 einstaklingar fyrir háorkuáverkum á þessu svæði og, eins og í öðrum rannsóknum, voru þessir áverkar algengari hjá körlum. Næstum einn af hverjum fimm voru með erlent ríksfang og um það bil einn af hverjum fjórum voru með mænuskaða. Meðallegutími á Landspítala var um sjö dagar en sjúklingar með alvarleg brot og mænuskaða lágu inni mun lengur. Brot sem flokkuð voru sem óstöðug, þurftu eðli málsins samkvæmt oftar aðgerða við. Tíðni brota var um 6,7% sem er sambærilegt við niðurstöður úr samantektarrannsókn.3 Athyglisvert er að ekki varð marktæk aukning á brotum hjá erlendum ferðamönnum á tímabilinu, þrátt fyrir fjölgun þeirra. Einn helsti galli á rannsókn Hjartar og félaga er að engar upplýsingar eru til staðar um það hvernig þessum sjúklingum hefur reitt af eftir meðferð. Skráning á árangri meðferða ætti að vera hluti af öllum rannsóknum þar sem meðferð er veitt. Með innleiðingu á skráningu árangurs aðgerða á Landspítala ætti að vera hægt að framkvæma slíkar rannsóknir í framtíðinni.
Heimildir
| 1. Vaccaro AR, Lehman RA, Hurlbert RJ, et al. A new classification of thoracolumbar injuries: the importance of injury morphology, the integrity of the posterior ligamentous complex, and neurologic status. Spine. 2005 Oct 15;30(20):2325-33. https://doi.org/10.1097/01.brs.0000182986.43345.cb |
||||
| 2. Blixt S, Mukka S, Försth P, et al. Study protocol: The SunBurst trial-a register-based, randomized controlled trial on thoracolumbar burst fractures. Acta Orthop. 2022 Jan 24;93:256-63. https://doi.org/10.2340/17453674.2022.1614 |
||||
| 3. Katsuura Y, Osborn JM, Cason GW. The epidemiology of thoracolumbar trauma: A meta-analysis. J Orthop. 2016 Dec;13(4):383-8. https://doi.org/10.1016/j.jor.2016.06.019 |
||||
| 4. Sigurðarson HV, Harðarson HB, Jónsson jr. H, et al. Háorku brjóst- og lendahryggsbrot á Landspítala 2003-2022. Læknablaðið. 2026: 112(4):168-174. | ||||
