04. tbl. 112. árg. 2026

Umræða og fréttir

Öldungadeildin. Er gaman? Kristjana Kjartansdóttir

Eitt er hvað maður ætlar og annað hvað verður. Ætlaði aldrei að verða læknir, ekki heimilislæknir, hætta að vinna strax og ég gæti en er samt enn að tíu árum seinna og finnst það gaman. Einstaklega fjölbreytt og skemmtilegt starf og mikill skortur á heimilislæknum.

Að vinna því ég nýt þess að fara í vinnuna og hitta skemmtilegt fólk sem ég myndi ekki hitta annars.

Notalegt að fara út í upphitaðan bílinn og virða fyrir mér Reykjanesfjallgarðinn og litbrigði himins og hafs á leiðinni.

Furða mig á seinaganginum við byggingu Landspítala eins og þörfin er brýn, meðan byggðin handan Hring-brautar hefur þotið upp. Spítalinn reyndar flóknara verkefni en samt … Sakna þess að sjá ekki Öskjuhlíðna fyrir húsunum á Valsreitnum, þakka fyrir að ekki er búið að fylla flugvöllinn af kassahúsum og opið svæði þar. Þegar í vinnuna er komið, fyrsti kaffibollinn með útsýni til suðurs yfir Reykjanesið og Kópavoginn sem rétt grillir í. Gaman að kynnast nýju fólki og eiga gott samstarfsfólk á öllum aldri en sakna líka þeirra sem eru farnir.

Þegar ég kem inn á stofuna blasir við grenitré fyrir utan gluggann, ljósum prýtt og snævi þakið, sem margir gesta hafa orð á hvað sé fallegt. Já, umhverfið á leiðinni og í vinnunni skiptir verulegu máli. Margt hefur breyst á langri starfsævi og flest til betri vegar.

Tölvukerfið er ekki gallalaust en það er gífurlegur munur að þurfa ekki að handskrifa alla lyfseðla, tilvísanir og hverja einustu beiðni um rannsókn. Einnig að geta fengið flestar rannsóknir án mikillar fyrirhafnar. Heilsuvera hefur verið mikið gagnrýnd en hún er góð leið til að koma skilaboðum og niðurstöðum til sjúklinga og til samskipta við eigin sjúklinga.

Hins vegar er mjög pirrandi að fá kröfu um ýmsa þjónustu samstundis frá einhverjum sem ég hef aldrei heyrt eða séð, til dæmis vottorð eða tilvísun til einhvers læknis þar sem viðkomandi gat ekki pantað tíma án tilvísunar. Læknar sem eru alfarið á móti tilvísunum og vilja óheft aðgengi krefjast svo tilvísana. Mjög eðlilegt að biðja um tilvísanir til að forgangsraða eins og sumir læknar gera en bent hefur verið á að þetta sé notað í kjarabaráttu. Skrifa aftur á móti með ánægju tilvísanir fyrir þá sem ég sinni og eiga erindi til sérgreinalækna.

Sakna þess að fá orðið sjaldnar góð læknabréf en er óendanlega þakklát þeim sem þau senda. Það er ekki alveg nóg að hægt sé að nálgast flest í tölvukerfinu þegar samantekt og plan vantar. Afskaplega glöð yfir að geta flett upp í UpToDate og OpenEvidence því grunnmenntunin er yfir hálfrar aldar gömul. Og margt hefur breyst. Byrjaði að vinna fyrir tíma PPI, ACE, ARB, SSRI, GLP-1, SÓ, TS og svo framvegis. Nauðsynlegustu upplýsingar kandídatsins voru í lausblaðamöppu í sloppvasanum en ekki símanum. Kalltæki í brjóstvasanum og vaktir sem byrjuðu klukkan átta á laugardagsmorgni og stóðu fram á mánudag.

Já, margt hefur breyst, flest til batnaðar.

Á heimleið blasir Snæfellsjökull við í allri sinni dýrð í sjónlínu við umferðarljósin á Öskjuhlíðinni og enn sést Keilir í miðri Suðurgötu þrátt fyrir að búið sé að planta trjám í miðja götuna.

Enn að vinna en veit að ég hætti bráðum og örugglega þegar farið verður að sprengja fyrir háhýsum í Hamraborginni.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica