04. tbl. 112. árg. 2026
Umræða og fréttir
Dagur í lífi læknis. Dagur í lífi sérnámslæknis á Barnaspítala Hringsins. Jóhann Ragnarsson
06:15 Rumska við góðlátlegt spark í síðuna. Dóttir mín liggur þvert í rúminu og steinsefur áfram en ég er vaknaður. Venjulega myndi ég hanga í símanum en ég nýti tímann í dag til þess að lesa mér til í kringum tilfelli sem farið verður yfir á „Grand round“ á morgun.
07:10 Vek stelpuna, það er í ýmis horn að líta áður en farið er á leikskólann. Maður er alltaf lengur að öllu en reiknað er með. Ég ætla samt ekki að fara að læra af því. Förum út aðeins seinna en stefnt var á. Hæfilega sveittur á bakinu og veit að ég verð aðeins seinn.
Þessa vikuna er konan á næturvöktum svo við förum hjólandi, nokkuð spennandi í hríðarbyl en allir komast heilu og höldnu á leikskóla og í vinnu.
08:10-09:00 Missi af morgunfundi en gríp mér kaffibolla fyrir fræðslufund barnalækna sem haldinn er flesta fimmtudaga. Titill fyrirlestursins er „Þú býður ekki syndinni í kaffi“ og efnið er eftir því. Allir sammála því að blessað kaffið sé allra meina bót, sérstaklega ef þú ert örfyrirburi sem gleymir að anda.
09:00-12:30 Ég er þessa vikuna á barnadeild, stöðufundur hefst stundvíslega klukkan 9:00. Í kjölfarið ræðum við áætlun dagsins. Stofugangur er genginn með frjálsri aðferð, þar kennir ýmissa grasa en þema vikunnar hjá mér eru liðbólgur.
12:30-13:30 Hleyp út í matsal að grípa hádegismat, alltaf spennandi að sjá hvað LSH Brasserie hefur uppá að bjóða. Dýrindis lax og meira til, maður lifandi!
Graðga í mig matnum á BMB og stefni síðan í sérnámskennslu sem er alla fimmtudaga. Hún fellur niður vegna veikinda, enginn er óhultur …
13:30-16:00 Þeysist um deildina og útskrifa bróðurpartinn af mínum sjúklingum. Í mörg horn að líta með snúin tilfelli en það leysist farsællega, stuttar boðleiðir eru stór kostur við að vinna á Barnaspítalanum. Klára læknabréf og reyni að komast heim á réttum tíma.
16:15-18:15 Miklir fagnaðarfundir, við fjölskyldan förum yfir helstu atburði dagsins. Ég byrja að undirbúa kynningu morgundagsins, konan skýst á æfingu en dóttirin er sérlega tillitssöm við pabba sinn í undirbúningnum, ber greinilega virðingu fyrir fræðunum.
18:30-19:30 Körfubolti með góðum hópi kollega í íþróttahúsi HÍ. Reynum að hittast vikulega en það vantar nýliðun í stéttina. Spilum tvo leiki upp í 21, við töpum báðum, saka hitt liðið um svindl eins og alltaf þegar ég tapa.
Hvet alla sem vilja komast í hópinn að setja sig í samband, mega bara ekki vera of góðir.
19:30-21:00 Borða léttan kvöldmat, sturta mig og fer að svæfa. Það gengur fyrir rest og ég sofna ekki! Persónulegur sigur.
21:00-23:00 Legg lokahönd á kynningu morgundagsins og tek generalprufu fyrir betri helminginn. Þakið ætlar að rifna af húsinu.
23:00 Leggst á koddann og les örfáar blaðsíður, endist ekki lengi þetta kvöldið og steinsofna innan skamms.
