06. tbl. 111. árg. 2025
Umræða og fréttir
Vinnufundur ritstjórnar Læknablaðsins
Eins og alltaf, er líf og fjör í kringum útgáfu Læknablaðsins og að nægu að huga hjá starfsfólki. Ritstjórn hélt sinn árlega vinnufund á dögunum því nauðsynlegt er og gott að hrista sig aðeins saman og fara í hugmyndavinnu hvað blaðið varðar. Ritstjórn er glöð og þakklát með það hvað íslenskir læknar hafa verið duglegir að senda metnaðarfullar rannsóknir og fræðigreinar sem og annað efni inn til birtingar.
Fundurinn var góður, en meðal þess sem áorkað var, var að uppfæra leiðbeiningar á síðu blaðsins fyrir höfunda efnis sem sent er inn. Í náinni framtíð dregur til tíðinda og stórar breytingar hvað varðar vefsíðu blaðsins. Spennandi tímar eru framundan hjá Læknablaðinu og dyggum lesendum þess. Meira um það síðar.