06. tbl. 111. árg. 2025
Umræða og fréttir
Viðtal. „Háskólasamfélagið á að tala skýrt og heiðarlega við almenning“
Unnur Anna Valdimarsdóttir tók við stöðu forseta Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands fyrir tæpu ári. Með bakgrunn sem alþjóðlega viðurkenndur vísindamaður í faraldsfræði og áralanga reynslu innan HÍ, stígur hún nú inn í hlutverk sem krefst stefnumótandi sýnar,
pólitískrar útsjónarsemi og dýptarþekkingar á fjölbreyttum málefnum heilbrigðisvísinda.
Í viðtali við Læknablaðið deilir hún reynslu sinni af fyrstu mánuðum í starfi, framtíðarsýn og þeirri samfélagslegu ábyrgð sem hún telur háskólasamfélagið bera í heimi þar sem
upplýsingar eru bæði verkfæri og veikleiki
Þegar Unnur Anna tók við stöðunni 1. júlí í fyrra, beið hennar ekki einungis viðamikið stjórnunarsvið heldur líka formleg opnun á framkvæmdum við nýtt húsnæði sviðsins. „Þetta hefur verið ofboðslega viðburðaríkur tími,“ segir Unnur Anna um fyrstu mánuði sína sem forseti Heilbrigðisvísindasviðs. Hún lýsir því hvernig hún, með langa starfsreynslu innan Háskóla Íslands og heilbrigðisvísindanna, hafi svo stigið inn í algjöra yfirsýn yfir sviðið, sem telur hátt í 500 starfsmenn og allt að 2700 nemendur.
„Það er eins og ég hafi skroppið úr mínu litla húsi og fái nú sýn yfir í heilt sveitarfélag,“ segir hún og bætir við að starfsemi sviðsins sé nátengd Landspítalanum og öðrum heilbrigðisstofnunum. „Við erum með margt sameiginlegt starfsfólk og það þarf að huga að því hvernig samstarfið er mótað svo það nýtist öllum.“
Samstarf og samtal í miðju umbrotanna
Unnur Anna hefur frá byrjun lagt áherslu á aukið samstarf, bæði innanhúss og út á við. Hún segir samráðsfundi milli Háskólans og Landspítala skipta sköpum í því að samræma væntingar, verkefni og uppbyggingu, sérstaklega þegar kemur að þjálfun nemenda í klín-ísku umhverfi.
„Við erum að byggja upp sameiginlega rannsóknarinnviði,“ útskýrir hún. Þar skiptir öllu að heilbrigðisgögn séu örugg og aðgengileg vísindafólki, þannig að vísindastarf megi blómstra. Samtal við samfélagið skiptir líka máli. Eitt af stærri verkefnunum sem sviðið hefur hrundið af stað í samvinnu við Landspítala er fundaröðin Heilsan okkar, þar sem tekin eru fyrir brýn heilsutengd málefni og bestu þekkingu á hverjum tíma miðlað. „Við viljum miðla öruggum upplýsingum til almennings og ákvörðunaraðila, í baráttunni gegn upplýsingaóreiðu.“
Vísindamaðurinn í forsetahlutverki
Unnur Anna hefur unnið víða á vettvangi vísinda; sem prófessor, leiðbeinandi og gestaprófessor við bæði Harvard og Karolinska Institutet. Hún viðurkennir að það sé áskorun í nýju starfi að halda dampi í eigin rannsóknum en telur þó mikilvægt að sinna þeim samhliða öðru. „Ég á góðar fyrirmyndir sem hafa látið þetta ganga upp,“ segir hún og nefnir Jón Atla Benediktsson rektor sem dæmi, auk forvera sinna sem hafi einnig verið öflugir vísindamenn í starfi sviðsforseta, bæði Inga Þórsdóttir og Unnur Þorsteinsdóttir.
„Það er mikilvægt að skilja þarfir vísindastarfsins þegar maður er í þessari stöðu. Þetta nýja hlutverk er í forgangi og ég fór í það til að vera til gagns fyrir aðra, en ég mun halda áfram að vera virk með mínum rannsóknarhópi á minn hátt.“
Áskoranir í kennslu og fjármögnun
Eitt af því sem hefur reynst hvað erfiðast á undanförnum misserum er samspil aukins nemendafjölda og þröngs fjárhagsramma. „Við höfum orðið við ákalli stjórnvalda um að fjölga nemum í heilbrigðistengdum greinum, þar á meðal í læknisfræði, hjúkrunarfræði og sjúkraþjálfun. Yfirvöld hafa fylgt þessu átaki eftir með tímabundnum stuðningi en betur má ef duga skal,“ segir hún.
Unnur bendir á að það hafi reynst áskorun, sérstaklega á sumum sviðum, að fá sérfræðinga til að sinna starfi háskólakennara en einnig sé núverandi húsnæði og aðstaða heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og Landspítala þröskuldur á þessari vegferð. „Í sumum tilfellum berast endurtekið ein eða engin umsókn um auglýst störf og sumar greinar eru í vanda vegna þess. Háskólakennsla hefur ekki verið vel launað starf hérlendis, frekar en önnur kennsla, en svo vantar einnig nokkuð upp á viðunandi aðstöðu og styrkjaumhverfi til vísindarannsókna á Íslandi. Við erum auðvitað fámenn þjóð sem birtist stundum í skorti á sumum sérsviðum en við þurfum að skapa öflugt háskóla- og vísindaumhverfi sem laðar til sín fagfólk, bæði innanlands og erlendis frá.“
Framtíðarsýn og ný tækifæri
Aðspurð um framtíðarsýn sína til næstu fimm ára, talar Unnur með mikilli gleði og ákafa um nýja tíma í heilbrigðisvísindum. „Við erum á frábærri vegferð bæði í vísindum og kennslu heilbrigðistengdra greina. HermÍs, hermisetrið okkar, er eitt gott dæmi um byltingu í kennslu á þessu sviði,“ segir hún og lýsir aðstöðunni þar sem nemendur geta, með hjálp flókins búnaðar og gervigreindar, æft sig í krefjandi klínískum aðstæðum sem líkja eftir raunverulegum aðstæðum þegar á hólminn er komið. „Ég fékk kökk í hálsinn og fylltist algjörri uppljómun þegar ég sá aðstöðuna og alla þessa uppbyggingu á stuttum tíma en ég bind miklar vonir við að HermÍs muni auka gæði og skilvirkni kennslu í heilbrigðistengdum greinum til framtíðar. En við erum líka í mjög spennandi innviðauppbyggingu sem er til þess fallin að efla heilbrigðisvísindastarf á Íslandi.“
Hún vonar að nýja húsið við hlið Læknagarðs verði tekið í notkun innan fárra ára og að það marki upphaf öflugs þverfræðilegs samstarfs innan HÍ og milli HÍ og Landspítala. „Við erum afar dreifð um höfuðborgarsvæðið og það að sameina öll undir sama þaki, á sömu lóð, mun skipta sköpum fyrir samstarf í kennslu og vísindum.“
Þekking sem þjónusta
Unnur Anna telur að háskólasamfélagið eigi að tala skýrt og heiðarlega við almenning. Það sé ekki einungis hluti af því að efla meðvitund um vægi vísinda á tímum upplýsingaóreiðu, heldur einnig til að tryggja velferð og lífsgæði fólks. „Við viljum að samfélagið sé meðvitað um mikilvægi háskólanna og vísindaframlags þeirra í velsæld þess.“
Rætur, fjölskylda og fyrirmyndir
Þegar líður á viðtalið er Unnur spurð örlítið um persónulega hlið lífsins og við hlýja ásjónuna bætast blik í augu. Hún segist búa í Vesturbænum með eigin-manni sínum, Pétri Marteinssyni, og dóttur þeirra – sem sjálf er nemandi á Heilbrigðisvísindasviði. Auk þess er fjölskylduhundur á heimilinu. „Ég vona að ég hafi verið dóttur minni góð fyrirmynd. Ég er stolt af því að hún valdi þetta svið,“ segir hún brosandi.
Sviðsforsetinn Unnur Anna stendur á krossgötum þar sem framtíð heilbrigðisvísinda á Íslandi mótast og hún er ákveðin í að nýta bæði reynslu sína og ástríðu fyrir þekkingu til að leiða sviðið áfram með festu, innsæi og sýn. Hún ber með sér rólegan styrk, sem hentar vel þeim sem þurfa að stýra „litlu sveitarfélagi“ í hjarta háskólasamfélagsins.