06. tbl. 111. árg. 2025

Umræða og fréttir

Lýðheilsuþing að vori, um lækningar og lýðheilsu

Lýðheilsuþing lýðheilsuráðs Læknafélags Íslands (LÍ) var haldið þann 14. maí síðastliðinn. Læknum bauðst að koma með tillögur að efni auk þess sem Ölmu Dagbjörtu Möller heilbrigðisráðherra var boðið á þingið. Þar talaði hún undir yfirskriftinni Mikilvægi lýðheilsu, oft var þörf en nú er nauðsyn. Hún bar kveðju Maríu Heimisdóttur landlæknis sem var fjarverandi. Dagur B. Eggertsson alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur flutti erindið Að skapa heilsuborg – hvað hefur pólitík með lýðheilsu að gera?

Efnistök annarra fyrirlesara voru á mjög breiðum grunni. Hans Jakob Beck lungnalæknir talaði um lýðheilsu á tímum pólitískrar óvissu í heiminum. Arnar Hafsteinsson íþróttafræðingur kynnti rannsóknarverkefni um sérhæfða þjálfun með tilliti til vöðvauppbyggingar meðal aldraðra á Landakoti. Héðinn Sigurðsson heimilislæknir fór yfir samanburð á örorkubyrði vegna umferðarslysa á Íslandi og í Danmörku þar sem skilgreining á þaki á örorku við 15% skerðingu starfsgetu hefði afdrifarík áhrif á umfang bótagreiðslna. Sigurdís Haraldsdóttir krabbameinslæknir fór yfir hve þekking á umfangi krabbameins-áhættu sem fylgifiski áfengisneyslu hafi styrkst í seinni tíð og taldi að fólk væri ekki meðvitað um skaðsemi jafnvel „hóflegrar“ drykkju. Arna Guðmundsdóttir innkirtlalæknir fjallaði um hve útbreidd regluleg áfengisneysla er á meðal aldraðra sem svo þola mun verr áfengi þegar líkaminn eldist. Þannig valdi áfengisneysla meiri skaða. Hennar erindi bar yfirskriftina: Á að banna áfengi eftir áttrætt?

Gerður var góður rómur að fyrirlestrum og í þeim komu fram dæmi um verk-efni eða úrlausnir sem ýmist eru þegar að skila bættri heilsu eða gætu bætt heilsu og sparað fé fyrir samfélagið og/eða heilbrigðiskerfið.

Steinunn Þórðardóttir formaður LÍ sat fundinn og tók þátt í pallborðsumræðum ásamt fyrirlesurum að Héðni undanskildum. Steinunn lagði út af því hve samstarf milli ólíkra hópa lækna á sviði lýðheilsu sé mikilvægt og að þessi vettvangur sýndi það. Mörg mál voru tíunduð í pallborði, svo sem mikilvægi lýðheilsumats á frumvörp til laga og í tengslum við umræðu um áfengisneyslu var einnig minnst á einmanaleika og ójöfnuð sem skaðvalda þegar kemur að heilsu og ekki síst aldraðra. Það var ánægjulegt að finna hljómgrunn -meðal lækna, þingmanna og annarra gesta fyrir auknu samtali um verkefni á sviði lýðheilsu, á vettvangi Læknafélags Íslands.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica