01. tbl. 99. árg. 2013

Umræða og fréttir

Gagnsæ samskipti lækna og lyfjaframleiðenda - rætt við Jakob Fal Garðarsson

Íslenskur viðauki um samskipti lyfjaframleiðenda og fagfólks í heilbrigðisstéttum var sendur út til lækna í byrjun nóvember. Jakob Falur Garðarsson framkvæmdastjóri Frumtaka segir að viðaukanum sé ætlað að kveða skýrar á um samskiptareglur varðandi ferðatilhögun, þáttöku maka í ferðum og viðburðum, atburði, risnu og gjafir.


u08-fig1
„Með því að setja skýrar reglur er verið að vernda þessi mikilvægu samskipti,”
segir Jakob Falur Garðarsson framkvæmdastjóri Frumtaka.

„Samskipti lyfjaframleiðenda við lækna byggja á reglum EFPIA og gildandi viðaukum við þær en þær hafa verið þýddar og var dreift með Læknablaðinu í sérstökum bæklingi í vor. Þar er beitt huglægum hugtökum um samskipti þessara aðila svo sem „skynsamt”, „ódýrt”, „hóflegt” og okkur fannst nauðsynlegt að kveða skýrar á um þetta í íslenska viðaukanum svo enginn vafi léki á hvað átt væri við,” segir Jakob Falur.

Stjórn Læknafélags Íslands var á aðalfundi félagsins falið að ganga frá samningi við Frumtök um samskipti lyfjaframleiðenda og lækna og mun sá samningur væntanlega verða undirritaður á Læknadögum í janúar.

„Með því að setja skýrar reglur er verið að vernda þessi mikilvægu samskipti sem hafa oft verið gagnrýnd en með því að hafa umræðuna opna og samskiptin gagnsæ og aðgengileg teljum við að hægt sé að fyrirbyggja óþarfa tortryggni.”

Reglur EFPIA í íslenskri þýðingu ásamt íslenska viðaukanum er að finna á heimasíðu Frumtaka, frumtok.is/sidareglur



Þetta vefsvæði byggir á Eplica