01. tbl 92. árg. 2006

Umræða og fréttir

Íslensk heilbrigðissaga komin út

Um miðjan desember rann upp langþráð stund í sögu Læknafélags Íslands en þá kom út ritið Líf og lækningar - Íslensk heilbrigðissaga sem Jón Ólafur Ísberg sagnfræðingur hefur ritað. Formaður LÍ af­henti Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra fyrsta eintakið við hátíðlega athöfn sem fram fór í Þjóð­menningarhúsinu.

Bókin er 312 bls. að stærð í stóru broti og skiptist í 10 kafla. Kaflaheitin gefa góða mynd af efni bókarinnar en þau eru: Læknislist fyrri alda, Upphaf raunlækninga, Íslensk læknislist, Upphaf heilbrigðiskerfis, Heilbrigðis- og tryggingakerfið á 20. öld, Sjúkdómar og sóttir, Sjúkdómar á 20. öld, Heilbrigt samfélag!, Læknar og heilbrigðismál og Samtök lækna.

Með útgáfu bókarinnar lýkur verkefni sem hófst með samþykkt aðalfundar LÍ á Húsavík árið 1994. Þá var Örn Bjarnason kjörinn formaður ritnefndar og gegndi hann því embætti fram til ársins 2001 þegar Hafsteinn Sæmundsson tók við og lauk verkinu. Ýmsir læknar hafa lagt á ráðin en á síðasta sprettinum unnu þau Hlíf Steingrímsdóttir og Lúðvík Ólafsson með Hafsteini.

Samið var við Hið Íslenska bókmenntafélag um útgáfu bókarinnar og er hún til sölu í öllum helstu bókabúðum.

-ÞH

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra tekur við fyrsta eintakinu og þakkar Sigurbirni Sveinssyni formanni LÍ fyrir.

Á kápu bókarinnar er mynd úr Þórðarrími sem kom út í Skálholti árið 1692. Á henni eru leiðbeiningar um hvar taka eigi mönnum blóð út frá stöðu himintunglanna.

Höfundur bókarinnar þakkar fyrir sig og ráðherra hlakkar til að lesa bókina, nú er jólanóttinni bjargað.

Á efri myndinni til vinstri er höfundur bókarinnar, Jón Ólafur Ísberg, á milli þeirra Sverris Bergmanns og Arnar Bjarnasonar. Sverrir var formaður LÍ þegar ákveðið var að ráðast í gerð bókarinnar og Örn var fyrsti formaður ritnefndar.

Á myndinni hér til vinstri er Örn ásamt arftaka sínum, Hafsteini Sæmundssyni en með þeim eru fulltrúar útgefenda, Sverrir Kristinsson og Sigurður Líndal frá Hinu íslenska bókmenntafélagi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica