12. tbl. 91. árg. 2005

Ritstjórnargrein

Mikilvægi skráningar Læknablaðsins í Medline

Vilhjálmur Rafnsson

2004-06-f01-fig2Fyrr á þessu ári var sagt frá því að Læknablaðið hefði verið samþykkt til skráningar í Medline sem er gagnabanki alríkislæknisfræðibókasafns Bandaríkjanna (National Library of Medicine, NLM). Þegar þetta er skrifað er búið að skrá í Medline nánast allt það sem birst hefur í Lækna­blaðinu það sem af er árinu. Vilyrði hefur fengist fyrir því að allt efni sem birst hefur í Læknablaðinu frá og með árinu 2000 geti fengist skráð í Medline, en það er allur sá tími sem Læknablaðið hefur verið til á rafrænu formi á netinu. Tæknilega er þessi skráning enn að mótast en frumrannsóknargreinum verður gert hæst undir höfði og verða höfundar, titlar, ártal, árgangur, blaðsíðutal og útdráttur skráð í Medline og verður hægt að leita að öllum þessum þáttum. Það sama verður skráð vegna sjúkratilfella og yfirlitsgreina. Leiðarar, fræði­leg bréf til ritstjórnar, fræðileg innlegg og klín­ískar leiðbeiningar verða titlar og höfundar ásamt ártali, árgangi og blaðsíðutali skráð. Öll þessi skráning á efni Læknablaðsins í Medline er á ensku en þess getið að skrifin séu á íslensku. Þegar búið verður að leysa úr tæknilegum málum verður í framtíðinni hægt að fara beint inn á rafræna útgáfu Læknablaðsins af Medline.

Skráning Læknablaðsins í Medline hefur mikla þýðingu. Læknablaðið telst nú til sérflokks lækna­blaða á heimsvísu þar sem það er nú skráð í einn virtasta gagnagrunn heimsins fyrir tímarit um líf- og læknisfræði. Læknablaðið var tekið til skráningar í Medline vegna þess að það stendur undir þeim gæðakröfum sem strangastar eru gerð­ar til læknablaða. Þetta á bæði við um útlit og framleiðslu en þó einkum hvað varðar rit­rýnis­ferilinn og hvernig vandað er til fræðilegs efnis. Það hefur þegar verið tekið eftir því í ná­granna­löndum okkar að Læknablaðið er komið í Medline og okkur hafa borist fyrirspurnir frá ritstjórn læknablaðs um það hvernig okkur gekk að fá skráningu í Medline. Virðing og hróður blaðsins hefur aukist við þessa viðurkenningu. Segja má að dreifing blaðsins hafi orðið víðfeðmari og það er því eftirsóknarverðara fyrir höfunda að birta grein­ar í Læknablaðinu. Fyrir eigendurna Læknafélag Íslands og Læknafélag Reykjavíkur þýðir þetta að Læknablaðið er nú verðmætara en áður. Þá hefur gildi blaðsins sem huglægrar eignar aukist. Þessi vegsemd Læknablaðsins gerir frekari kröfur til ritstjórnar og starfsfólks blaðsins um að slaka hvergi á gæðum í framleiðslu og ritrýnisferli og er hvatning um að fylgjast með auknum kröfum í þessum málum í framtíðinni.

Fræðigreinar sem birtast í Læknablaðinu eftir skráningu í Medline hafa meira akademískt vægi en áður. Í Háskóla Íslands var fræðigrein sem skrifuð var í Læknablaðið áður fyrr talin gefa um tvo þriðju af þeim stigum sem samsvarandi fræðigrein hefði fengið ef hún væri birt í ritrýndu blaði sem skráð væri í Medline. Þannig var fræðigrein í Læknablaðinu hæst gefin 10 stig en ef greinin hefði birst í tímariti sem skráð var í Medline hefði hún getað fengið 15 stig. Þetta var mat og vinnuregla Háskóla Íslands á akademískum stigum fræðigreina sem til dæmis var beitt þegar læknar sóttu um stöður við háskólann og metin var hæfni umsækjenda eftir stigum. Þetta mun nú breytast og hefur mikla þýðingu fyrir höfunda sem skrifa í Læknablaðið. Fræðigreinar í Læknablaðinu voru einnig metnar eftir sömu reglu þegar rannsóknastig voru talin hjá Kjaranefnd en kennarar og fræðimenn við læknadeild skila yfirlitum til Kjaranefndar á hverju ári sem aftur greiðir þeim umbun eftir fjölda stiga sem þeir hafa áunnið sér. Skráning Læknablaðsins í Medline hefur því fjárhagslega þýðingu fyrir háskólakennara. Hér hefur verið bent á akademískt gildi fræðigreina í Læknablaðinu frá íslenskum vettvangi en svipuð breyting verður á gildi greina í Læknablaðinu alþjóðlega. Þegar fram líða stundir mun Læknablaðið verða metið með þeim kvörðum sem tíðkast á alþjóða vettvangi.

Medline gagnagrunnurinn er á ensku og skráning fræðigreina Læknablaðsins er því á ensku. Einhverjum kann að sýnast að þetta sé enn einn ósigur íslenskunnar í baráttunni við enskuna. Undirritaður vill halda því fram að skráning Læknablaðsins í Medline muni þvert á móti efla íslenskt mál, nú er eftirsóknarverðara en áður fyrir höfunda að skrifa um læknisfræði á íslensku og því verður meira skrifað. Erlendis verður tekið eftir því að skrifað er um læknisfræði á íslensku og að þau skrif eru verðug skráningar í Medline. Skráning Læknablaðsins í Medline er því óbein viðurkenning á íslensku máli sem fræðimáli í lækningum. Það er því viðeigandi að lýsa eftir íslensku heiti á gagnagrunninum Medline.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica