11. tbl. 91. árg. 2005
Umræða og fréttir
Líf af lífi
Þrátt fyrir miklar umræður um erfðafræði síðustu ár er almenn þekking á efninu sumpart brotakennd. Nú er komin út bókin Líf af lífi ? gen, erfðir og erfðatækni þar sem höfundurinn, Guðmundur Eggertsson prófessor í líffræði við Háskóla Íslands, rekur rannsóknir á erfðaefninu, skýrir hvernig genið er gert úr garði og hvernig það starfar í lifandi frumu. Sagt er frá þeim umdeildu rannsóknaraðferðum sem kenndar eru við erfðafræði og frá hugmyndum manna um að nýta þær aðferðir til lækninga og jafnvel breytinga á erfðaefni mannsins.