11. tbl. 91. árg. 2005

Broshorn 63. Barnamagnýl og tvíslá

Hálf barnamagnýl

Þetta var á þeim árum að ekki var búið að uppgötva hjartamagnýl. Eldri herra sem þekkti heimilislækninn sinn vel og hafði átt gott og farsælt samstarf við hann áratugum saman kom í heimsókn og vildi ræða um lyfin sín.

Gamli maðurinn var vel ern og þurfti að hafa alla hluti fullkomlega á hreinu.

Læknirinn útbjó lyfjakort og fór síðan yfir kortið, lyf fyrir lyf.

?Svo er alveg nóg fyrir þig að taka hálfa barnamagnýl á hverju kvöldi,? sagði læknirinn.

?Hvað á ég þá að gera við hinn helminginn af töflunni?? spurði sá gamli.

Borðað eftir fæðingu

Frumbyrja sem komin var á tíma var orðin vel þekkt á fæðingardeildinni vegna þess að hún hafði komið í fleiri skipti en fimm upp á deild með fæðingarhríðir sem hættu um leið og hún steig inn fyrir þröskuldinn á deildinni. Loks kom að því að hún fæddi og allt gekk eins og í sögu. Þegar fæðingin var afstaðin leit deildarlæknirinn sem hafði hitt konuna nokkrum sinnum áður inn til hennar til að óska henni til hamingju. Hin nýorðna móðir sat upp í rúmi sínu eins og drottning og eiginmaðurinn í stól við hliðina og bæði brostu þau hringinn. Hjónin voru að ljúka við matinn þegar læknirinn spurði:

?Jæja, Anna mín, hvað fékkstu??

Sigri hrósandi svaraði Anna: ?Ég fékk mér spag­etti.?

Húðflúr á bringunni

Hraustur og stæltur 35 ára karlmaður kom til læknis í almenna skoðun vegna þess að hann þurfti að fá heilbrigðisvottorð. Læknirinn gat ekki annað en tekið eftir risastóru húðflúruðu konuandliti á bringu mannsins.

?Þetta er mynd af fyrrverandi eiginkonu minni,? sagði maðurinn.

?Nú á dögum er hægt að fjarlægja svona húðflúr með sérstakri tækni ef óskað er,? sagði læknirinn.

?Nei, ekki fyrir mig,? sagði maðurinn. ?Ég lét tattóvera mig eftir að við skildum. Þegar ég lít í spegil á morgnana er ég minntur á að gera ekki sömu vitleysuna aftur að gifta mig.?

Lyfjaofnæmi

Þreytulegur og dálítið sjúskaður maður á miðjum aldri kom á bráðamóttökuna og var spurður: ?Ertu með ofnæmi fyrir einhverjum lyfjum??

?Já, ég held að ég sé með ofnæmi fyrir lyfi sem heitir antabus. Alla vega verð ég fárveikur þegar ég fæ mér sjúss eftir að hafa tekið lyfið.?

Skoðun eftir áfall

Aðstoðarlæknirinn var að framkvæma taugaskoð­un á gamalli konu sem talin hafa fengið blóðtappa í heilann. Þegar hann kannaði styrkleika í andlits­vöðvum með því að biðja hana að brosa og sýna tennurnar gerði hún sér lítið fyrir, galopnaði munninn, tók út báða gómana og skellti fölsku tönnunum á borðið.

Læknahúmor

Það er heilög regla að læknir má aldrei vera fyndinn á kostnað sjúklings. Stundum er farið býsna nálægt mörkum þess leyfilega. Ef læknir og sjúklingur þekkja hvor annan vel er minni hætta á að húmorinn misskiljist. Eftirfarandi saga leiddi til þess að sjúklingur og læknir gátu hlegið saman vel og lengi.

Sjúklingur kom til héraðslæknisins sem þótti ástæða til að skoða hægðasýni frá manninum í smásjá til að leita að ormaeggjum. ?Ormar, ég trúi því ekki að ég sé með orma,? hrópaði sjúklingurinn upp yfir sig í skelfingu. ?Svona, stilltu þig,? sagði læknirinn, ?það gæti verið verra.? ?Verra, hvað meinarðu?? spurði maðurinn. ?Það hefði getað verið ég,? sagði læknirinn sposkur.

Á tvíslá

Sjúkraþjálfarinn var að fara yfir æfingaáætlun með manni sem hafði slasast á hné. Maðurinn hafði þurft að fara undir hnífinn og nú var komið að endurhæfingunni. ?Við byrjum á því að æfa okkur á tvíslánni,? sagði sjúkraþjálfarinn. Sjúklingurinn varð dálítið hikandi þegar hann sagði: ?Ég var aldrei neitt sérstaklega góður í leikfimi.?

Fjölgun í fjölskyldunni

Stundum talar maður af sér og óskar þess heitast af öllu að geta gufað upp á staðnum.

Ung móðir í góðum holdum kom með veikan tveggja ára gamlan son sinn til heimilislæknisins. ?Bráðum kem ég svo með nýjan viðskiptavin til þín,? sagði konan. ?Já mér sýndist þú vera komin vel á leið, átta mánuðir eða svo, er það ekki?? spurði læknirinn og horfði gaumgæfilega á konuna. ?Nei,? sagði konan og var ekki skemmt, ?við hjónin erum að fara að ættleiða barn.?



Þetta vefsvæði byggir á Eplica