09. tbl. 91. árg. 2005

Eftir morgunmat

Hlustað eftir morgunmat

Barnalæknir nokkur var algjör snillingur í að ná sambandi við sjúklinga sína. Þegar hann gekk stofugang átti hann til að leggja hlustunarpípuna á kvið barnsins sem hann var að sinna og giska á hvað það hefði borðað í morgunmat.

"Mér heyrist þú hafa fengið hafragraut í morgun," sagði læknirinn við fjögurra ára hnátu sem lá í rúmi úti við glugga á stofu 14. Stúlkan ljómaði eins og sól og fannst mikið til um hæfni læknisins koma. Svo leit hann á föður stúlkunnar sem spurði undrandi: "Geturðu í alvöru HEYRT hvað barnið borðaði?"

Hvíslað í eyra

Læknirinn var á stofugangi á geðdeildinni þegar sjúklingur kom að honum og hvíslaði í eyra hans: "Þú ættir að gera eitthvað fyrir herbergisfélaga minn af því að hann heyrir raddir."

"Hvernig veistu það?" spurði læknirinn.

"Af því ég heyri þær líka."

Dýrar töflur

Læknirinn spurði sjúklinginn hvaða lyf hann notaði.

"Sko, ég á að taka eina bláa og eina hvíta töflu á hverju kvöldi en þessar bláu eru svo dýrar að ég tek bara tvær hvítar í staðinn."

Á stofugangi

Unglæknir var á stofugangi ásamt hjúkrunarfræðingi og nema. Hann kom að rúmi eldri konu sem hafði farið í kviðarholsaðgerð tveimur dögum áður. "Hafið þér leyst vind í morgun, frú mín góð?" spurði unglæknirinn. "Nei, góði minn, það hlýtur að hafa verið þú sjálfur."

Sólarhringssöfnun

Maður nokkur hringdi áhyggjufullur í rannsóknastofu á spítala og sagði við meinatækninn: "Konan mín er að safna sólarhringsþvagi til rannsóknar. Hún er búin að halda í sér í 23 klukkustundir og getur ekki meir."

Hugulsamur sjúklingur

Ungur maður var búinn að liggja inni á spítala í rúma viku. Hann var hinn viðkunnanlegasti en það var eitthvað í fari hans sem gerði hann ólíkan öðrum í háttum og tilsvörum. Þegar stutt var í að hann útskrifaðist birtist hann með fulla skál af hnetum inni á vaktinni á deildinni og gaf starfsfólkinu. Hjúkrunarfræðingur sem sólgin var í hnetur skellti slatta af þeim upp í sig og þakkaði manninum hug­ulsemina. "Það var nú svo lítið," sagði maðurinn "mér þykja hnetur ekkert sérstakar, en mér fannst súkkulaðið gott sem var utan á þeim."

Inn og út

Hressilegur og ern eldri bóndi kom til héraðslæknis í gamla daga til almennrar skoðunar. Það amaði ekkert sérstakt að honum nema hvað heyrnin var farin að dofna verulega. Bóndanum þótti hálfvandræðalegt að heyra jafn illa og hann gerði og hafði lítinn áhuga á að ræða það frekar. Þegar læknirinn hlustaði lungun og sagði: "Viltu anda djúpt inn og út" gerðist ekkert. Læknirinn hækkaði róminn og sagði: "Andaðu djúpt inn og út." Ekkert gerðist. Þá tók læknirinn hlustunarpípuna úr eyrum sér og setti í eyru gamla mannsins og hrópaði síðan í hinn enda hlustunarpípunnar: "ANDAÐU INN, ANDAÐU ÚT". Bóndinn leit undrandi á lækninn og hrópaði á móti: "Hvernig í andsk" á ég annars að anda."

Augndropar

Sjúklingur kom til læknis á Læknavaktinni vegna sýkingar í auga. Hann fékk í hendur lyfseðil sem hann fór með í Lyfju. Biðin þar var stutt og að henni lokinni fór sjúklingurinn heim.

Tveimur tímum síðar hringdi sjúklingurinn í lyfjafræðing í lyfjabúðinni og sagði: "Það stendur á miðanum á augndropaglasinu: "TVEIR DROPAR Í VINSTRA AUGA ÞRISVAR Á DAG."

"Já," sagði lyfjafræðingurinn.

Sjúklingurinn var á báðum áttum og spurði: "Er það vinstra augað þegar maður horfir í spegil?"

Aðstandandi í símanum

Síminn hringdi að morgni dags á hjúkrunarheim­ili og rödd í símanum spurði: "Gætir þú sagt mér hvernig móðir mín hefur það í dag?" Hjúkr­unar­fræðingurinn sem svaraði kveikti hvorki á því hver var í símanum né um hvern var spurt og sagði: "Hver er þetta með leyfi?" Röddin í símanum varð nokkuð hvefsin: "Nú, dóttir hennar, að sjálfsögðu."



Þetta vefsvæði byggir á Eplica