07/08. tbl. 91.árg. 2005

Umræða og fréttir

Þing áhugamanna um sögu læknisfræðinnar

- verður haldið í Reykjavík 10.-13. ágúst

Í sumar heldur Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar alþjóðlegt þing í Háskóla Íslands. Norrænu samtökin um sögu læknisfræðinnar þinga annaðhvert ár og er röðin komin að Íslandi. Stjórn félagsins ákvað að gera þingið enn alþjóðlegra en ella með því að skylda fyrirlesara til að mæla á tungu engelskra en ekki á hefðbundna skandinavísku. Þegar hafa um 50 útlendingar boðað komu sína og nokkur fjöldi Frónbúa.

Á þinginu verður fjallað um margvísleg söguleg efni en yfirskrift þingsins er "sjúklingur og samfélag". Rætt verður um læknislist á miðöldum, konur í læknisfræði, sögu tannlækninga, sögu lyfjafræði, faraldsfræði pesta, heimilislækninn að fornu og nýju og fleira. Læknislist í Íslendingasögum verður gerð sérstök skil. Þrír aðalfyrirlesarar flytja lengri tölur; Jan Sundin frá Svíþjóð, Haraldur Briem úr Laugarásnum í Reykjavík og Charlotte Kaiser frá Þýskalandi. Fjölmargir verða með styttri erindi um margvísleg efni í amk. þremur sölum samtímis. Auk þess verða veggspjöld til sýnis.

Miðvikudag 10. ágúst
safnast þáttttakendur saman til skrafs og ráðagerða í Þjóðmenningarhúsinu til að bera saman fundargögn, lyfta glasi og hlýða á tónlist og stuttar hátíðaræður.

Fimmtudag 11. ágúst 
hefðbundið fyrirlestrahald með nauðsynlegum hressandi hléum.

Föstudag 12. ágúst 
fer öll ráðstefnan á Snæfellsnes og siglir um Breiðafjörð. Ferðalagið á einkum að ljúka upp augum gesta fyrir þeim vanda sem læknar fyrri alda stóðu andspænis áður en jeppar urðu fleiri en prentuð eintök Passíusálmanna. Komið verður í Bjarnarhöfn og fræðst um Þorleif Þorleifsson smáskammtalækni, og síðan að Borg á Mýrum. Þar verður fjallað um einn öflugasta geðlækni Íslendingasagna, Egil Skallagrímsson, sem stríddi reyndar eins og fleiri mektarmenn við margs konar geðfár. Á Breiðafjarðarsiglingunni verður fræðst um líf lækna sem áður stunduðu eyjaskeggja. Á heimleiðinni verður snætt í Skessubrunni.

Laugardag 13. ágúst
fyrirlestrar fram eftir degi, síðan farið í Bláa lónið þar sem Grímur Sæmundsen læknir og starfsmenn hans bjóða uppá bað og bús. Ráðstefnunni verður slitið með sameiginlegum kvöldverði, hefðbundnum ræðum og verðlauna­afhendingu í veitingasal Lónsins.

Við hvetjum lækna og aðra áhugamenn um sögu læknisfræðinnar til að koma og taka þátt í þessu þingi. Því hefur stundum verið fleygt að íslenskir læknar telji að saga læknisfræðinnar hafi þá fyrst hafist þegar þeir sjálfir byrjuðu störf og henni ljúki þegar þeir leggi hlustarpípuna á hilluna. Þátttaka í söguþingi sem þessu sendir slíkt ábyrgðarlaust gaspur beint til föðurhúsanna. Ráðstefnugjaldi er í hóf stillt fyrir meðlimi í Félagi áhugamanna um sögu læknisfræðinnar. Leitið frekari upplýsinga á heimasíðu ráðstefnunnar www.icemed.is/saga/



Þetta vefsvæði byggir á Eplica