06. tbl. 91. árg. 2005

Broshorn 59. Man minna og dýrt orðið

p03-hofnyErgilegt

Sumir læknar geta verið hálf þreytandi. Maður getur þurft að bíða vikum saman eftir því að fá tíma hjá þeim á stofunni og þá leyfa þeir sér að segja: "Þú hefðir átt að koma fyrr til mín."

Ný pilla

Hafið þið heyrt um nýju getnaðarvarnarpilluna fyrir karlmenn? Hún er tekin daginn eftir og breytir blóðflokknum hjá manni.

Man minna

Eldri herra virtist áhyggjufullur þegar hann kom til læknisins í árlega skoðun.

"Er eitthvað sem veldur þér sérstökum áhyggjum?" spurði læknirinn af nærgætni.

"Ef ég á að segja allan sannleikan þá verð ég að svara því játandi," sagði maðurinn.

"Ég er orðinn nokkuð gleyminn. Í raun er það vægt orðað hjá mér því ég man stundum ekki hvar ég lagði bílnum mínum eða hvert ég er að fara. Ef ég kemst þangað sem ég ætla að fara þá man ég stundum ekki hvað ég ætlaði að gera þar. Eins og þú getur rétt ímyndað þér, læknir, þá er mér brugðið. Ég þarf svo sannarlega á hjálp þinni að halda. Hvað get ég gert?"

Læknirinn varð þögull eitt andartak en sagði svo: "Ég held að það sé réttast að þú greiðir viðtal­ið fyrirfram."

Gömul og hress

Einstaklega ern og skemmtileg 89 ára kona var að útskrifast af sjúkrahúsinu eftir að hafa legið inni vegna lungnabólgu. Læknirinn sem kvaddi hana sagði hughreystandi: "Mér sýnist enn vera nokkuð góð hleðsla á batteríunum hjá þér, Sigrún mín." "Æ, finnst þér það?" svaraði sú gamla að bragði, " en það mætti að ósekju vera meira bensín eftir í tanknum."

Í tívolí

Þeir segja að Viagra sé eins og rússíbani. Maður bíður fyrst í klukkutíma og svo er gamanið búið á þremur mínútum.

Dýrt orðið

Það var um 1970 að kona nokkur sem var nýorðin ekkja og bjó úti á landi kom á ritstjórnarskrifstofu dagblaðs á landsbyggðinni og vildi birta dánartilkynningu um bónda sinn í blaðinu.

"Orðið kostar 10 krónur," sagði ritstjórnarfulltrúinn.

"Tíu krónur orðið," hváði konan, "ja, það er ekki gefins." Hún hugsaði sig um og sagði svo: "Þá skulum við hafa það "Jón Jónsson látinn"."

"Það verða að vera í það minnsta sjö orð í tilkynningunni," sagði ritstjórnarfulltrúinn.

Konunni var ekki skemmt. "Jæja þá, láttu standa "Jón Jónsson látinn. 1960 jeppi til sölu"."

Önnur frá því í gamla daga

Það var um 1960 þegar fyrst var verið að rannsaka hve áreiðanlegar getnaðarvarnartöflur væru að ung kona varð ófrísk þó svo að hún hefði notað pill­una reglulega. Þetta olli miklum heilabrotum þar til einum af læknunum sem að rannsókninni stóðu datt í hug að spyrja hvort konan hefði gleypt pill­una. ?Gleypt hana, hvers vegna ætti ég að gleypa hana?? spurði konan.

Úr sjúkraskrám

- Konan er miður sín og grætur stanslaust. Hún virðist einnig vera döpur.

- Sjúklingurinn á tvo táninga en að öðru leyti er félagssagan ómarkverð.

- Hún hefur hvorki verið með sjálfta né köldu­köst, en eiginmaðurinn staðhæfir að hún hafi verið mjög heit í rúminu í gærkvöldi.

- Skar sig á loki af niðursuðudós sem hún var að setja í ruslið. Niðursuðudósin hafði innihaldið portúgalskar sardínur sem að sögn sjúklings smökkuðust vel.

- Starfar sem lögmaður. Hefur reykt en hætti fimm ára.

- Var að taka til í geymslunni sem maður skyldi aldrei gera og rak vinstra handarbak í öngul sem kræktist í hann og fékk sár á vinstra handarbakið.

- Að öllum líkindum hefur sjúklingur útskrifast heim til sín 25.07.03.

- Hafði hægðir klukkan 7 og vaknaði klukkan 8:30.

- Tyllti fæti á klósett í gær. Skrikaði fótur og vinstri fótur hennar fór ofan í klósettið og hún datt svo aftur fyrir sig og sparkaði upp undir brúnina á klósettinu. Hefur verið með verki í vinstra fæti síðan.

- Þessi kona hefur haft kolbikasvartar malbikshægðir síðan í gær.

- Björk er kona sem er annars frísk.

- Rúna var að dansa við bónda sinn á þorrablóti. Dönsuðu þau af ástríðu svo hann mjaðmarbrotnaði, en hún hlaut ákomu á höfði og hné.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica