04. tbl. 91. árg. 2005

Umræða og fréttir

Heiðursfélagar í Félagi íslenskra lyflækna

Á síðasta ári voru útnefndir þrír heiðursfélagar í Félagi íslenskra lyflækna, þeir Árni Kristinsson, Páll Ásmundsson og Tryggvi Ásmundsson. Áður höfðu aðeins tveir lyflæknar verið útnefndir heiðursfélagar í Félagi íslenskra lyflækna en þeir eru Ólafur Sigurðsson, læknir á Akureyri sem nú er látinn, og Sigurður Þ. Guðmundsson læknir.

Þann 25. febrúar sl. voru heiðursfélögunum afhent heiðursskjöl. Ekki reyndist unnt að veita þeim formlega staðfestingu fyrr þareð félagið þurfti að skipta um lógó eða merki. Lyfjafyrirtækið MSD fór fram á þetta þar sem forráðamönnum fyrirtækisins þótti merki Félags íslenskra lyflækna líkjast sínu. Stjórn Félags íslenskra lyflækna leitaði til eins heiðursfélaganna, Páls Ásmundssonar, og óskaði eftir að hann hannaði nýtt merki. Hann brást skjótt við og hannaði merki sem stjórn félagsins hefur samþykkt og getur það að líta á heiðursskjölunum sem afhent voru.

Félag íslenskra lyflækna telur mikilvægt að gefa þeim læknum gaum sem sem hafa skarað fram úr á starfsferlinum og lagt mikið af mörkum til sérgreinar sinnar eða til félags- og trúnaðarstarfa í tengslum við fag sitt. Þetta er ekki síst til að vekja athygli annarra lækna á gildum sem við teljum þýðingarmikil fyrir lækna og endurspegla fagmennsku sem þeir eiga að hafa að leiðarljósi í störfum sínum. Ekkert er mikilvægara fyrir læknisefni og unga lækna sem eru að hefja sérfræðinám og leggja grunn að starfsferli sínum en góðar fyrirmyndir.

Allir hafa heiðursfélagarnir verið frumkvöðlar í sérgreinum sínum hér á landi og einnig haldið merki almennra lyflækninga á lofti. Þá hafa þeir lagt ríkulega af mörkum til félagsstarfs innan sérgreina sinna eða Landspítalans sem var meginstarfsvettvangur þeirra allra. Þeir hafa verið ötulir þátttakendur í starfi Félags íslenskra lyflækna á liðnum árum. Þótt aðrir læknar hafi notið góðs af verkum þessara ágætu manna eru það fyrst og fremst sjúklingarnir og í raun íslenskt samfélag sem mestan ávinning hafa haft af störfum þeirra.

Árni Kristinsson hefur verið frumkvöðull á sviði hjartalækninga á Íslandi undanfarna fjóra áratugi. Störf hans hafa einkennst af fagmennsku og má segja að hann hafi verið fyrirmynd lyflækna hér hver sem sérgrein þeirra hefur verið.

Páll Ásmundsson byggði upp nýrnalækningar og meðferð lokastigsnýrnabilunar á Íslandi. Hann var formaður Félags íslenskra lyflækna 1973-74 og stóð að fyrsta vísindaþingi Félags íslenskra lyflækna 1973 í samvinnu við Sigurð Þ. Guðmundsson. Páll hefur verið í fararbroddi í félagslífi lyflækna og eins konar hirðskáld þeirra um árabil.

Tryggvi Ásmundsson hefur verið í fararbroddi íslenskra lungnalækna allan sinn starfsferil og öðrum læknum góð fyrirmynd. Hann hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir samtök lækna og var ritari Félags íslenskra lyflækna 1974-76.

Heiðursfélagar Félags íslenskra lyflækna, talið frá vinstri: Tryggvi Ásmundsson, Páll Ásmundsson og Árni Kristjánsson.

Merki Félags íslenskra lyflækna sem Páll Ásmundsson hannaði.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica