04. tbl. 91. árg. 2005

Fræðigrein

Klínískar leiðbeiningar Landspítala um greiningu og meðferð bráðaversnunar á astma

Í janúar 2003 voru gefnar út á vegum Scottish Inter­collegiate Guidelines (SIGN) og The British Thoracic Society vandaðar leiðbeiningar um grein­­ingu og meðferð bráðrar versnunar á astma. Birt­ust leiðbeiningarnar í Thorax 2003; 58 (Suppl 1) og eru aðgengilegar á pdf-formi á slóðinni:

www.sign.ac.uk/guidelines/fulltext/63/index.html

Ástæða þess að talið var æskilegt að þýða og staðfæra hluta leiðbeininganna hér á landi var að um algengt bráðavandamál er að ræða sem læknar þurfa að vera færir um að bregðast við. Því er til mikilla bóta ef hægt er að nálgast einfaldar og skýrar leiðbeiningar um greiningu og meðferð þessara sjúklinga. Rétt er að benda á að heildarleiðbeiningarnar frá SIGN eru mjög ítarlegar og taka meðal annars til astma í börnum, astma á meðgöngu auk almenns fróðleiks um greiningu og meðferð sjúkdómsins.

Vinnuhópurinn sem tók að sér að þýða og staðfæra þessar leiðbeiningar um bráðaversnun á astma var skipaður eftirtöldum:

Hjalti Már Björnsson, deildarlæknir

Gunnar Guðmundsson, lungnalæknir

Jón Steinar Jónsson, heilsugæslulæknir

Unnur Steina Björnsdóttir, ofnæmislæknir

Inga Sif Ólafsdóttir, deildarlæknir

Ari J. Jóhannesson, formaður nefndar um klínískar leiðbeiningar á Landspítala.

Þar sem um er að ræða gagnreynda (evidence based) ferla voru óverulegar breytingar gerðar á þeim við þýðingu. Nánari sundurliðun á öllum breytingum sem gerðar voru má finna á vefsvæði kínískra leiðbeininga á www.landspitali.is

Uppsetning ferlanna miðast við að auðvelt sé að prenta þá út og hafa á veggspjöldum þar sem þeirra er þörf.

Hámarks útöndunarflæði heilbrigðra fullorðinna



Þetta vefsvæði byggir á Eplica